Fréttablaðið - 18.05.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.05.2005, Blaðsíða 2
2 18. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR Davíð Oddsson ræddi Mannréttindadómstólinn á leiðtogafundi Evrópuráðsins: Fjalli bara um mannréttindabrot MANNRÉTTINDI Davíð Oddsson utan- ríkisráðherra sagði í ávarpi á leið- togafundi Evrópuráðsins í Varsjá í gær að brýn þörf væri á umbót- um á störfum Mannréttindadóm- stóls Evrópu í ljósi gífurlegrar fjölgunar mála sem til hans ber- ast. Hann sagði að Ísland væri fylgjandi því að komið yrði á fót vettvangi þar sem farið yrði yfir þessi mál. Þar ætti að hafa að leið- arljósi að Mannréttindadómstóll- inn veldi mál sín af kostgæfni. „Dómstóllinn ætti að forðast að verða áfrýjunardómstóll í öllum málum sem rísa milli borgaranna og ríkisvaldsins. Hann á að ein- beita sér að málum sem snerta brot á grundvallar mannréttind- um,“ sagði Davíð. Hann taldi að aðildarríki Evrópuráðsins gætu stuðlað að því að draga úr fjölda umsókna og málafjölda sem dóm- stólnum berast meðal annars með því að bæta þekkingu dómstóla sinna á fordæmisgildi í rétti Mannréttindadómstólsins. Á leiðtogafundinum undirrit- aði utanríkisráðherra þrenna samninga á vegum Evrópuráðs- ins, einn gegn hryðjuverkum, annan sem tekur á fjármögnun hryðjuverkastarfsemi og í þriðja lagi samning um aðgerðir gegn mansali. - jh Khodorkovskí-málið: Dómsuppkva›ningu aftur fresta› RÚSSLAND, AP Uppkvaðningu dóms- ins yfir rússneska auðjöfrinum Mikhaíl Khodorkovskí var fram haldið í Moskvu í gær, en dómhaldi aftur frestað án þess að dómsúr- skurðurinn sjálfur væri kveðinn upp. Dómsuppkvaðningin hófst á mánudag. Þótt orðalag þess hluta dómsins sem fram er kominn bendi sterk- lega til þess að Khodorkovskí verði sakfelldur töldu verjendur hans sig merkja vísbendingar í textanum um að búast mætti við því að refsingin yrði mildari en sá tíu ára fangelsisdómur sem ákæruvaldið hefur krafist fyrir skattsvik og fleiri glæpi. Réttarhaldið yfir Khodorkov- skí – sem var aðaleigandi og for- stjóri Yukos-olíufyrirtækisins – hefur grafið undan orðstír rúss- nesks réttarkerfis og skaðað traust erlendra fjárfesta á rúss- nesku viðskiptalífi. Tiltölulega mildur dómur kann að verða túlk- aður sem tilraun af hálfu yfir- valda til að hrekja gagnrýni er- lendis frá á pólitísk afskipti af málinu og til að endurheimta traust fjárfesta. Stjórnmálaskýrendur halda því fram að skyndileg handtaka Khodorkovskís í október 2003 hafi verið hefnd Vladimírs Pútíns for- seta fyrir stuðning auðjöfursins við stjórnarandstöðuflokka – en þar með hefði hann brotið óskrif- að samkomulag um að stjórnvöld leyfðu auðjöfrum landsins að hafa sitt misjafnlega fengna ríkidæmi í friði svo lengi sem þeir skiptu sér ekki af stjórnmálum. ■ ÚSBEKISTAN Sjónarvottar telja að allt að 745 manns hafi látið lífið í átökum við stjórnarher Ús- bekistans um helgina. Formæl- endur ríkisstjórnarinnar segja hins vegar að mannfallið hafi verið mun minna. Allt var með kyrrum kjörum í borginni Andijan í austurhluta Úsbekistans í gær en þar brutust út mikil mótmæli á föstudaginn sem enduðu með átökum við stjórnarhermenn. Í gær sagði Nigara Khidoyatova, leiðtogi eins stjórnarandstöðuflokksins, að allt benti til að hermennirnir hefðu síðustu daga myrt 745 sak- lausa borgara í Andijan og í ná- grannaborginni Pakhtabad. Fólk úr hópi þeirra ríflega 500 flóttamanna sem komust til Kirgisistan segir svipaða sögu. Það kveðst hafa veifað hvítum dulum og hrópað að það væri vopnlaust en engu að síður var skotið á það. Fólkið hafnar því algerlega að íslamskir öfga- menn hafi staðið fyrir mótmæl- unum heldur hafi það aðeins viljað knýja á um efnahags- og lýðræðisumbætur. Sjónarvottar sögðu í samtölum við fréttarit- ara BBC að hermenn hefðu fjar- lægt lík barna og kvenna en skil- ið lík karla eftir á vettvangi til að breiða yfir dauðsföll sak- lausra borgara. Islam Karimov, forseti Ús- bekistans, og undirmenn hans vísa ásökunum stjórnarandstöð- unnar á bug og segja að aðeins 169 manns hafi fallið. „Her- sveitir okkar skutu einungis á hryðjuverkamenn,“ sagði Ras- hid Kadyrov, formælandi ríkis- stjórnarinnar, við blaðamenn í gær. Hann sagði auk þess að mannfall óbreyttra borgara væri sök hryðjuverkamannanna sem væru flestir öfgasinnaðir múslimar og mannfallsáætlanir stjórnarandstæðinga væru þvættingur sem villa ætti um fyrir erlendum fréttamönnum. Yfirvöld í Moskvu hafa tekið undir með Karimov og sagt að ofbeldið væri heittrúuðum múslimum að kenna. Ekki var von á öðru enda hafa þau iðu- lega afgreitt þjóðfrelsisbaráttu Tsjetsjena sem verk íslamskra öfgamanna. Bretar hafa hins vegar fordæmt aðgerðir stjórn- valda í Taskent svo og Banda- ríkjamenn þótt margir telji það gert með hálfum hug. 37 mót- mælendur voru handteknir í Lundúnum í gær en þeir höfðu slett málningu á úsbeska sendi- ráðið í borginni. sveinng@frettabladid.is Sænska þingið: Flóttafólk fái hæli SVÍÞJÓÐ Fimm stjórnmálaflokkar á sænska þinginu hyggjast leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis að öllum flóttamönnum sem komið hafa til Svíþjóðar fram til síðustu áramóta verði veitt hæli í landinu. Flokkarnir sem um ræðir eru Vinstri flokkurinn, Umhverfis- flokkurinn, Miðflokkurinn, Kristi- legir demókratar og Þjóðarflokk- urinn. Með þessu eru flokkarnir að taka undir kröfu forystumanna sænsku þjóðkirkjunnar. Ef tillagan nær fram að ganga fá milli 20 og 30 þúsund manns sjálfkrafa hæli í Svíþjóð. ■ Í VONDUM MÁLUM Mark Whitaker, ritstjóri Newsweek, er ekki öfundsverður af stöðu sinni um þessar mundir. Dýrkeypt mistök: Newsweek sæti ábyrg› KABÚL, AP Afganskir ráðamenn eru æfir út í bandaríska tímaritið Newsweek vegna frétta þess um vanhelgun Kóransins í fangabúð- unum í Guantanamo sem það síð- ar dró til baka. 15 manns létust í uppþotum í landinu eftir að frétt- ist af hinni meintu vanhelgun. Talsmaður forseta Afganistan kvaðst í samtali við blaðamenn í gær vera þeirrar skoðunar að draga ætti útgefendur Newsweek til ábyrgðar fyrir mistökin. Hann sagði jafnframt að vísbendingar væru um að erlendir flugumenn hefðu hleypt illu blóði í mótmæl- endurna. ■ ÍRAK KLERKAR MYRTIR Uppreisnar- menn í landinu eru farnir í aukn- um mæli að beina spjótum sínum að múslimaklerkum. Í gær var klerkur úr hópi sjía skotinn til bana í Bagdad en jafnframt fund- ust lík tveggja súnní-klerka sem hafði verið rænt á dögunum. Talið er að með þessu vilji upp- reisnarmenn kynda undir ófriðar- báli á milli trúarhópa. SPURNING DAGSINS Ólafur, er komi› anna› hljó› í strokkinn? Já, það er komið gott og bjart hljóð í hann. Ólafur M. Magnússon er framkvæmdastjóri Mjólku, sem er fyrsti framleiðandi mjólkurafurða hér á landi sem starfar án beinna framleiðslu- styrkja. Alltaf hagstætt www.ob.is 14 stöðvar! Bílvelta við Kirkjubæjarklaustur: Beltin björgu›u LÖGREGLUMÁL Bíll fór út af Land- brotsvegi við Kirkjubæjarklaust- ur í fyrrakvöld og valt þrjá hringi. Ökumaður og farþegi sem í bíln- um voru slösuðust lítillega og voru fluttir á heilsugæslustöð til aðhlynningar. Bíllinn er að sögn lögreglunnar í Vík gjörónýtur. Báðir voru mennirnir í bílbelt- um en án þeirra hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum, að sögn lögreglu. - oá BÍÐUR DÓMS Rússneski auðjöfurinn Mikhaíl Khodorkovskí sést hér fluttur, undir strangri gæslu, úr dómhúsinu í bíl í Moskvu í gær. LÁTNIR JARÐSETTIR Þegar er farið að bera þá sem féllu í átökum í Andijan til grafar. Um nöfn sumra þeirra er ekkert vitað. DAVÍÐ ODDSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA Mannréttindadómstóllinn má ekki verða áfrýjunardómstóll í öllum málum sem rísa milli ríkisvalds og borgaranna. fivertaka fyrir mann- fall óbreyttra borgara Umfang mannfalls í átökum hermanna vi› mótmælendur í Kirgisistan er mjög á reiki. Andstæ›ingar Karimovs forseta telja a› 745 manns hafi be›i› bana en flví vísa stjórnvöld á bug.Bíll í árekstri við bifhjól: Tveir fluttir á slysadeild SLYS Ökumaður og farþegi á bif- hjóli slösuðust þegar bifhjólið og bifreið rákust saman á Hring- braut klukkan hálf átta í gær- kvöldi. Þeir eru þó ekki alvarlega slasaðir. Bifreiðin, sem er kennslubifreið, skemmdist tals- vert að sögn lögreglunnar og varð að fjarlægja hana með kranabíl. Ekki er vitað hvort nemandi var við akstur. -jse BIFHJÓL Á SLYSSTAÐ Bifhjólið liggur illa farið í götunni eftir áreksturinn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M VEÐUR SNJÓAR FYRIR AUSTAN Sumarið virðist vera tvístígandi í komu sinni til landsins því það snjóaði af fullum krafti á Seyðisfirði og Egilsstöðum í gær. Reyndar festi snjóinn ekki á jörðu en ekkert lát var þó á snjókomunni. Að sögn lögreglu á Egilsstöðum létu flest- ir Austfirðingar þetta ekki slá sig út af laginu enda þolinmóðir með endemum og segja þetta til merk- is um að gott sumar sé í aðsigi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.