Fréttablaðið - 18.05.2005, Blaðsíða 60
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Miðvikudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
20.00 KV og Hrunamenn mætast á
KR-velli í VISA-bikar karla í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
15.05 Fylkir-KR á Sýn.
Endursýndur leikur.
16.45 Olíssport á Sýn.
18.00 Sporting Lissabon-CSKA
Moskva á Sýn. Bein útsending frá
úrslitaleik UEFA-keppninnar
20:45 Enski boltinn Ipswich-West
Ham á Sýn.
22.20 Formúlukvöld á Rúv.
22.25 Olíssport á Sýn.
20 18. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
> Við undrumst ...
... hversu hljótt er orðið í Garðabænum
eftir komu Tites Kalandadze
og Rolands Eradze. Það átti
víst bara að vera byrjunin
en í stað tíðra frétta af
nýjum leikmönnum
ræður þögnin ríkjum
í Garðabænum.
sport@frettabladid.is
> Við hrósum ...
... körfuknattleiksdeild KR sem ætlar sér
stóra hluti á næstu leiktíð en þeir
lönduðu Fannari Ólafssyni í gær eftir
harða baráttu við Grindavík um
þjónustu leikmannsins. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins
ætla Vesturbæingar
ekki að láta þar við
sitja og er von á fleiri
leikmönnum í
Vesturbæinn von
bráðar.
KR-ingar styrkjast
Körfuknattleikslið KR sýndi í gær að
Vesturbæingar ætla sér að berjast á
toppnum næsta vetur. Til þess þarf
góðan mannskap og þeir fengu
aldeilis góðan liðsstyrk í gær þegar
landsliðsmaðurinn Fannar Ólafsson
skrifaði undir tveggja ára samning við
félagið en hann hefur leikið erlendis
síðustu ár.
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeild kvenna
BREIÐABLIK–VALUR 4–1
1–0 Greta Mjöll Samúelsdóttir (21.), 2–0 Tesia
Koslowski (28.), 3–0 Edda Garðarsdóttir, víti
(31.), 3–1 Dóra María Lárusdóttir (32.), 4–1
Guðlaug Jónsdóttir (77.).
ÍBV–ÍA 12–2
1–0 Hólmfríður Magnúsdóttir (1.), 2–0 Hólm-
fríður Magnúsdóttir (3.), 3–0 Elín Anna Steinars-
dóttir (6.), 4–0 Elín Anna Steinarsdóttir (7.), 4–1
Anna Þorsteinsdóttir (8.), 5–1 Hólmfríður
Magnúsdóttir, víti (25.), 6–1 Bryndís Jóhannes-
dóttir (29.), 7–1 Bryndís Jóhannesdóttri (42.),
8–1 Elín Anna Steinarsdóttir (49.), 9–1 Bryndís
Jóhannesdóttir (72.), 10–1 Bryndís Jóhannes-
dóttir (77.), 10–2 Bára Rúnarsdóttir (79.), 11–2
Telma Sigurðardóttir (84.), 12–2 Elín Anna
Steinarsdóttir (90.).
KEFLAVÍK–FH 2–0
1–0 Ólöf Helga Pálsdóttir (40.), 2–0 Ólöf Helga
Pálsdóttir (79.).
Það fór eins og margir héldu – Guðjón
Þórðarson var í gær formlega kynntur
sem nýr knattspyrnustjóri enska 3.
deildar-liðsins Notts County, aðeins fjór-
um dögum eftir að hann rifti samningi
sínum við lið Keflavíkur í Landsbanka-
deildinni hér heima. Guðjón skrifaði
undir þriggja ára samning við félagið og
kveðst hann ætla sér stóra hluti með
liðið. „Fyrir mér er þetta félag mun
neðar í deildarkeppninni en það á að
vera. Mitt markmið er einfalt – að
koma félaginu á þann stall sem það
á heima,“ sagði Guðjón eftir að hafa
handsalað samninginn við Notts
County.
Guðjón sagði við Fréttablaðið
að ráðning hans hjá Notts
County ætti engin tengsl að
rekja við brotthvarf hans frá Keflavík á
föstudag og að hlutirnir hefðu gerst
hratt um helgina. „Ég talaði við aðila í
Englandi seinni partinn á
föstudaginn og skýrði þeim
frá minni stöðu á Íslandi.
Mér var ráðlagt að drífa
mig út strax því ég gæti
þurft að hitta ákveðna að-
ila sem fyrst,“ segir
Guðjón sem um
helgina ræddi við
fulltrúa Millwall,
Gillingham og áð-
urnefnds Notts
County. „Ég var
búinn að heyra
af áhuga
Notts County
en vissi
aldrei í hverju hann fólst. Ég hafði ekki
heyrt í neinum frá félaginu áður en ég
rifti samningnum við Keflavík. Ég hef
áður sagt að það var vegna vanefnda
og það stendur enn,“ sagði Guðjón.
Honum líst vel á það verkefni sem bíð-
ur hans í Nottingham, en Notts County
er elsta félagið í ensku knattspyrnunni,
stofnað árið 1862 og oft sagt vera elsta
félagslið í heimi. Aukinheldur var félag-
ið eitt af þeim sem átti þátt í að setja
ensku deildarkeppninna á laggirnar.
„Hér er mikil saga og liðið á ekki heima
í 3. deildinni. Það þarf að styrkja leik-
mannahópinn og það verður mitt fyrsta
verk,“ sagði Guðjón. Aðspurður um
hvort hann myndi horfa til Íslands í
þeim efnum svaraði hann að bragði:
„Af hverju ekki? Það væri gaman.“
KNATTSPYRNUÞJÁLFARINN GUÐJÓN ÞÓRÐARSON: EKKI LENGI AÐ FINNA SÉR NÝTT FÉLAG
Hlutirnir ger›ust hratt um helgina
Landsbankadeild kvenna:
Óvæntur
Blikasigur
FÓTBOLTI Breiðablik vann óvæntan,
en sanngjarnan, sigur á
Íslandsmeisturum Vals í Lands-
bankadeild kvenna í gær.
Blikastúlkur mættu mikið mun
grimmari til leiks og uppskáru
þrjú mörk á fyrsta hálftímanum.
Það jók ekki á sigurlíkur Vals að á
sama tíma fékk Ásta Árnadóttir
að líta rautt spjald fyrir að brjóta
á Gretu Mjöll.
Nokuð jafnræði var með
liðunum í síðari hálfleik enda
voru Blikastúlkur með vænlega
stöðu og þær gáfu mjög fá færi á
sér. Þær voru samt betri og
skoruðu eina mark seinni
hálfleiks og kórónuðu þar með
frábæran, óvæntan en fyllilega
sanngjarnan sigur.
GLEÐI, GLEÐI, GLEÐI Blikastúlkur fögnuðu
vel og innilega í gær.