Fréttablaðið - 18.05.2005, Side 18
Sumarfrí
Nú fer að líða að sumarfríi hjá námsmönnum og margir hverjir pakka niður
bókunum. Aftur á móti væri sniðugt að nota tímann í sumar til að glugga í
námsbækur og þá sérstaklega þær skáldsögur sem þarf að lesa næsta vetur.[ ]
Að virkja jákvæðu hliðarnar
Í Lesblindusetrinu í Mosfells-
bæ er unnið með lesblindu á
jákvæðan hátt og nemendum
hjálpað að tileinka sér náms-
efni sem áður virtist yfirþyrm-
andi. Sigrún Jensdóttir er ein
leiðbeinenda.
„Lesblindir einstaklingar eiga í
erfiðleikum með tvívíð tákn, bók-
stafi og tölustafi en búa yfir mynd-
rænni hugsun og sköpunarhæfi-
leikum,“ segir Sigrún sem er ein
þeirra sex sem vinna á Lesblindu-
setrinu. Þar er boðið upp á 30
stunda einstaklingsnámskeið í svo-
kallaðri Davis-aðferðafræði sem
beinist að rótum lesblindunnar en
ekki áhrifum hennar. Segja má að
hindranir séu fjarlægðar með
þeim hætti að stafir og orð rugli
nemandann síður eða alls ekki og
því verður lestur og nám léttara.
Námskeiðinu fylgir svo eftir-
fylgni og símaþjónusta, að sögn
Sigrúnar. En hvaða aldur miðast
þessi námskeið við? „Undir venju-
legum kringumstæðum miðast
þetta við 9-10 ára en við förum neð-
ar. Við vinnum yfirleitt með börnin
fimm tíma í einu, sex tíma á dag.
Árangurinn getur orðið 96% þannig
að þau eiga mikla möguleika ef þau
leggja sig fram en auðvitað byggist
þetta á því hversu tilbúin þau eru
að tileinka sér aðferðirnar,“ segir
Sigrún og bætir við að lokum:
„Það er fullt af jákvæðum þátt-
um í lesblindunni. Maður þarf bara
að vinna á neikvæðu þáttunum til
að komast að þeim.“ ■
Ljósmyndari.is er að fara af stað með
þriggja daga ljósmyndanámskeið fyrir
sumarið. Námskeiðið
skiptist í fimm hluta
þar sem farið er yfir
myndavélina, mynda-
töku, myndatöku í
stúdíói, tölvuna og
forritið Photoshop.
Nemendur læra að
þekkja allar helstu
stillingar á myndavél-
inni auk þess sem myndbygging er
kennd. Þá eru tölvumálin tekin sérstak-
lega fyrir og nemendum kennt að færa
myndir úr myndavélinni í tölvuna og
síðan hvernig best er að vinna
myndirnar og ekki síst
koma skipulagi á mynda-
safnið.
Kennt er fjórar stundir í
senn, þrisvar sinnum í
viku eða í alls 12 stundir
en einnig er hægt að fara
á helgarnámskeið. Nánari
uppýsingar er að finna á
slóðinni ljósmyndari.is á net-
inu.
Kennir stafræna ljósmyndun
MYNDAVÉLIN, MYNDATAKAN OG TÖLVUVINNSLAN ER MEÐAL ÞESS SEM FARIÐ
ER Í Á ÞRIGGJA DAGA NÁMSKEIÐI.
Tillögur að breytingum í leik-
skólum og fleira.
Leikskólakennaranemar kynna
verkefni sín á námskeiðinu Vett-
vangstengt val á föstudag en
námskeiðið er kennt á lokamiss-
eri leikskólabrautar. Markmið
námskeiðsins er meðal annars að
nemendur öðlist þekkingu og
færni í að innleiða, framkvæma
og meta árangur af nýbreytni-
eða þróunarstarfi, tileinki sér að-
ferðir lausnaleitarnáms, sam-
þætti ýmsar fræðigreinar leik-
skólakennaranámsins og útfæri á
vettvangi.
Nemendur vinna í þriggja til
fjögurra manna hópum, velja
ákveðið viðfangsefni sem þeir
rannsaka, greina og koma með
breytingartillögur um og/eða inn-
leiða breytingar í leikskólum.
Átta kennarar koma að námskeið-
inu auk umsjónarmanna verkefn-
isins á vettvangi. Kynningin fer
fram í Bratta, fyrirlestrasal
Kennaraháskóla Íslands við
Stakkahlíð, föstudaginn 20. maí og
stendur frá klukkan 9-14. ■
Unnið er með leir á námskeiðunum fyrir lesblinda. Hér eru Sigrún og Kolbeinn Sigurjóns-
son leiðbeinendur á Lesblindusetrinu.
Verkefni leikskóla-
kennaranema kynnt
Verðandi leikskólakennarar kynna verkefni sín í Bratta á föstudag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA