Fréttablaðið - 18.05.2005, Page 22
Vatnsbrúsi
Á ferðalögum er mikilvægt að hafa með sér vatnsbrúsa sem auðvelt er að fylla á. Í bakpokan-
um þarf alltaf vera einn brúsi sem er fullur áður en lagt er í hann og svo er hægt að fylla á
hann í einhverri lækjasprænunni.[ ]
Ferðafélag Íslands
Mörkinni 6, 108 Reykjavík
s.568-2533 • fax.568-2535 • www.fi.is
Gönguferðir og gaman á fjöllum
Vanbúnum jöklaförum
getur verið voðinn vís
Öryggið í fyrirrúmi því hér er gengið í slóð leiðsögumanns með línuna á milli sín. Myndina tók Gunnar V. Andrésson ljósmyndari sl. laug-
ardag, eins og aðrar sem fylgja þessari grein.
Mikil hætta getur steðjað að
þeim sem fara án leiðsagnar
á jökul. Hjörleifur Finnsson
fjallaleiðsögumaður vill af
þeim sökum bera fram varn-
aðarorð.
Hjörleifur er einn af eigendum
fyrirtækisins Íslenskir fjallaleið-
sögumenn og hefur fylgt fólki upp
á Hvannadalshnúk síðustu 10
árin, nú síðast um hvítasunnu-
helgina. Hann hefur áhyggjur af
göngufólki sem leggur vanbúið
upp á jökulinn á eigin spýtur og
hyggst nýta sér slóð atvinnuleið-
sögumanna, án þess að vera með
þeim í hópi. Þannig fólk verður
hann oft var við, til dæmis um síð-
ustu helgi.
„Þarna voru að minnsta kosti
þrír einstaklingar utan við leið-
sögn. Tveir voru saman en höfðu
ekki línu á milli sín og sá þriðji
var aleinn og hafði hvorki
brodda né annan nauðsynlegan útbúnað,“ segir hann og telur
þessa menn einungis heppna að
hafa sloppið við hremmingar.
Hann segir alltaf varasamar
sprungur á leiðinni upp á
Hvannadalshnúk, jafnvel yfir
hundrað metra djúpar. „Seinni
part dagsins geta snjóbrýr yfir
slíkar sprungur hafa veikst mik-
ið frá því um morguninn þegar
heitt er í veðri. Ef menn eru ekki
með línur eru menn í stórhættu
en halda að allt sé í lagi,“ lýsir
hann.
Hjörleifur óttast að hann og
aðrir leiðsögumenn á hnjúkinn
geti fyrr eða síðar lent í meirihátt-
ar björgunaraðgerðum. „Þetta
svæði verður æ vinsælla og er
orðið þekkt sem aflraun. Þá er
fullt af fólki á fjallinu sem er í
ágætis formi en hefur engan
áhuga á fjallamennsku og enga
kunnáttu á því sviði heldur vill
skella sér upp af því það er svo
sérstök upplifun.“
Hjörleifur tekur skýrt fram að
þeir sem voru í skipulögðum ferð-
um á hnjúkinn um hvítasunnu-
helgina á vegum Íslenskra fjalla-
leiðsögumanna, Ferðafélags Ís-
lands, Útivistar og Einars Sig-
urðssonar á Hofsnesi voru að
sjálfsögðu með útbúnað og örygg-
isatriði í lagi.
gun@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
GOLF, VEIÐI OG GISTING
Gerum tilboð.
Efri-Vík ehf 880 Kirkjubæjarklaustur
netfang: efrivik@simnet.is • veffang: www.efrivik.is • s: 487 4694
Myndavélin er sjálfsagður ferðafélagi á Hvannadalshnúk, ekki síst þegar veðrið er eins og
um síðustu helgi. Hér er áð við Dyrhamarinn.
Hér mætast hópar frá Íslenskum fjallaleið-
sögumönnum neðan við Dyrhamar. Þeir
sem eru á niðurleið lögðu úr byggð kl. 1
að nóttu en hinir sem eru á uppleið fóru
kl. 6 af stað.
Útivist efnir til vorferðar til
Flateyjar á Breiðafirði 27. til
29. þessa mánaðar.
Flatey er oft kölluð perla Breiða-
fjarðar og hún er það vissulega
því hún hefur allt til að bera, fjöl-
skrúðugt fuglalíf, náttúrufegurð,
friðsæld og einstakt mannlíf. Fyr-
ir utan hvað menningarleg saga
eyjarinnar er sterk því Flatey var
ein helsta miðstöð menningar og
framfara á Íslandi,” segir Anna
Soffía Óskarsdóttir sem verður
leiðsögumaður með hópi Útivistar
í Flateyjarferðinni. Siglt verður
með Baldri út í Flatey og dvalið
þar og gist í svefnpokaplássi.
Anna Soffía segir hluta varplands
Flateyjar friðað á þessum árstíma
en hún eigi von á að farið verði í
siglingu til einhverrar úteyjar og
reiknar með að fólki verði gefinn
kostur á að „lifa af landsins gæð-
um“ og smakka egg svartfugls og
ritu. „Þetta verður upplifunarferð
af bestu sort,“ segir Anna Soffía
sannfærandi. ■
Vorferð í perlu Breiðafjarðar
Í Flatey eru falleg sumarhús sem bera fornri sögu vitni og enn er búið á tveimur bæjum
allt árið.