Fréttablaðið - 18.05.2005, Page 45
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2005 21
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
„Það sem við hér hjá Símanum metum mest við Enska málstöð er
fjölhæfni þeirra og að þeir slá aldrei af sínum stöðlum.“
Hermann Ársælsson
Símanum
„Oft þarf ég að treysta einhverjum fyrir enskum texta eftir mig; stundum
flóknum eða skáldlegum. Þá er valið ljóst.“
Ari Trausti Guðmundsson
„Við höfum nýtt okkur þjónustu Enskrar málstöðvar undanfarin ár, fyrst
og fremst vegna þess að þeir eru ákaflega vandaðir í vinnubrögðum og
hafa alltaf skilað verkefnum samkvæmt umsaminni tímasetningu.
Þeir tryggja okkur vandaðar enskar og íslenskar þýðingar. Það eru fá, ef
nokkur, önnur þýðinga-/prófarkalestrarfyrirtæki sem geta veitt jafnmikla
fyrirmyndarþjónustu hvað fagkunnáttu varðar á slíkum sérsviðum.“
Sólrún Halldórsdóttir
Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
Hvað er sagt?
„Það er frábært að geta fengið alla enskuþjónustu sem mann vantar á
einum og sama stað. Til dæmis er textagerð Enskrar málstöðvar á
heimsmælikvarða og þannig vill til að eigandi fyrirtækisins, Mike
Handley, er meðal fremstu enskuþula heims. Þetta veitir kvikmynda- og
auglýsingaiðnaðinum á Íslandi sterka samkeppnisstöðu.“
Jón Þór Hannesson
Saga Film
„Það var eitt tilvik sem staðfesti fyrir mér að oft er á endanum
hagkvæmast að ráða þá bestu. Þá þurftum við að láta þýða fyrir okkur
stórt verkefni og höfðum fengið í það tilboð frá Enskri málstöð upp á
465.000 kr. – sem var næstum upp á hár það sem ég hafði þá þegar
áætlað að verkið myndi kosta. Þeir sem stóðu að þessari framkvæmd
fundu aftur á móti aðra þýðingaþjónustu sem var tilbúin að vinna verkið
fyrir miklu lægra verð. En hún skilaði svo ófullnægjandi verki að á
endanum kostaði það yfir 800 þúsund krónur að lagfæra þýðinguna.
Þetta gerði útslagið og við höfum síðan verið tryggir viðskiptavinir
Enskrar málstöðvar.“
S. B.
Sérfræðingur hjá ríkisstofnun
Áhugi á þróun eignaverðs og efnahags-
stærða er mikill hér á landi. Húsfyllir var
á morgunverðarfundi greiningardeildar
Landsbankans þar sem velt var vöngum
yfir því hvort eignaverðsbóla væri að
myndast á Íslandi.
Edda Rós Karlsdóttir fjallaði um fast-
eignaverð og velti fyrir sér nánustu fram-
tíð á fasteignamarkaði. Greiningardeild
Landsbankans telur að draga muni úr fast-
eignahækkunum þegar líður á árið, en á
ekki von á almennum lækkunum.
Hins vegar telur deildin að ef hækkun-
um linni ekki muni lækkun verða óhjá-
kvæmileg fyrr eða síðar.
Ívar Guðjónsson, forstöðumaður eigin
fjárfestinga Landsbankans, benti á að Úr-
valsvísitala Kauphallarinnar stæði nú
hærra en hún stóð áður en lækkanir hófust
almennt á mörkuðum árið 2000. Hann taldi
að gott samræmi væri milli hækkana og af-
komu fyrirtækja. Verðmöt virtust í lagi,
þótt greina mætti hættumerki verðbólu.
MIKILL ÁHUGI Mikill áhugi er á þróun efnahagsmála og venjulega fullt út úr dyrum á
morgunverðarfundum þar sem spáð er í spilin. Fundur greiningardeildar Landsbankans var
engin undantekning og fundarmenn fylgdust með af áhuga.
EDDA RÓS KARLSDÓTTIR Fasteignaverð hefur hækkað gríðarlega á undan-
förnum misserum. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, telur miklar líkur á að draga muni úr hækkun fasteigna þegar
líða tekur á árið.
VERÐMÆT VITNESKJA Forystumenn Landsbankans fylgdust áhugasamir með umræðum um stöðu eignaverðs hér á landi. Margt bend-
ir til þess að hægja fari á hækkunum á eignamörkuðum og vitneskja um hver þróunin verður á næstunni getur reynst þyngdar sinnar virði
í gulli.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
Eignaverð í brennidepli