Fréttablaðið - 18.05.2005, Page 58
„Við ætlum að halda stóra veislu í
dag,“ segir Salóme Þórisdóttir,
formaður Þroskaþjálfafélags Ís-
lands sem fagnar 40 ára afmæli í
dag. „Á þessum degi árið 1965
var félag Gæslusystra stofnað, en
það var fyrsta félag þroskaþjálfa
hér á landi. Við lítum á það sem
okkar grunn og fögnum því af-
mælinu í dag.“
Fyrir 40 árum hlutu þroska-
þjálfar menntun sína á Kópavogs-
hæli og var námið byggt á
danskri fyrirmynd. Eins og nafn-
ið gefur til kynna voru eingöngu
konur í stéttinni til að byrja með,
en fljótlega bættust nokkrir karl-
ar í hópinn. Í kjölfarið var nafni
félagsins breytt í Félag þroska-
þjálfa árið 1971 og varð þá fagfé-
lag innan Starfsmannafélaga rík-
isstofnana. Árið 1996 var Þroska-
þjálfafélagið stofnað sem sjálf-
stætt stéttarfélag og er nú innan
vébanda Bandalags háskóla-
manna. „Í dag eru stéttarfélagar
rúmlega 400 og vitaskuld ein-
göngu faglært fólk með háskóla-
próf. Það eru ekki margir karl-
menn í stéttinni, en hlutföllin
hafa vissulega breyst frá því að
hundrað prósent félagsmanna
voru konur,“ segir Salóme og
hlær.
Sjálf hefur hún verið þroska-
þjálfi síðan 1981. „Ég get svo sem
ekki bent á neitt sérstakt sem dró
mig að þessu starfi, nema að ég
hafði ákveðna samfélagslega sýn
og fannst þetta spennandi vett-
vangur.“ Heilmargt hefur breyst
á þeim aldarfjórðungi sem hún
hefur starfað í greininni. „Þegar
ég var í námi var sú hugmynda-
fræði að ná fótfestu að fatlað fólk
ætti að eiga samleið með hinum.
Þessi afstaða hefur raungerst að
heilmiklu leyti á þessum árum,
þótt enn vanti mikið upp á að fatl-
að fólk búi við sambærileg lífs-
kjör og þeir sem eru ekki fatlað-
ir.“
Þroskaþjálfafélag Íslands fagn-
ar tímamótunum í sal Hjarta-
verndar í Hlíðarsmára klukkan 17
í dag. Salóme vonast til að sjá sem
flesta þroskaþjálfa og aðra sem
vilja fagna með þeim. ■
18 18. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
GUSTAV MAHLER
(1860-1911) lést þennan dag
Gæslusystur ruddu brautina
TÍMAMÓT: ÞROSKAÞJÁLFAFÉLAG ÍSLANDS 40 ÁRA
„Ef tónskáld gæti sagt það sem hann hefur
að segja í orðum myndi hann ekki reyna að
segja það með tónlist.“
Gustav Mahler var austurrískt tónskáld. Hann var einarður sinfónisti
sem leit á Beethoven sem hina sönnu fyrirmynd.
timamot@frettabladid.is
JAR‹ARFARIR
13.00 Arnþór Brynjar Þormóðsson,
Garðarsbraut 83, Húsavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu.
13.00 Elín J. Jónasdóttir, kennari, Sól-
túni 2, Reykjavík, verður jarðsung-
in frá Háteigskirkju.
15.00 Ragna Kr. Ágústsdóttir verður
jarðsungin frá Grafarvogskirkju.
AFMÆLI
Ólafur R. Dýrmunds-
son ráðunautur er 61
árs.
Ingibjörg Hjartardóttir
rithöfundur er 53 ára.
Þórunn Guðmundsdóttir söngkona er
45 ára.
Snæfríður Baldvinsdóttir aðjúnkt er 37
ára.
Sigurður Hjartarson,
bakarameistari, Álfaskeiði
96 Hafnarfirði er 75 ára í
dag. Hann og kona hans,
Bára Jónsdóttir, eru
stödd erlendis.
SALÓME ÞÓRISDÓTTIR Hefur verið þroskaþjálfi í aldarfjórðung og segir heilmargt hafa
breyst til hins betra þó mikið starf sé enn óunnið.
Þennan dag árið 1989 fóru af
stað mikil mótmæli hátt í milljón
manna í höfuðborginni Peking.
Mótmælendurnir kröfðust lýð-
ræðis og bættra mannréttinda
og fór spennan í kínversku þjóð-
félagi eftir þetta vaxandi dag frá
degi. Stúdentar fjölmenntu sér-
staklega í þessi mótmæli og
reyndu að koma skilaboðum
sínum til yfirvalda áleiðis með
friðsamlegum hætti.
Mótmæli höfðu verið að ágerast
í Kína frá því um 1980 og virtist
sem stjórnvöld væru endanlega
búin að glata sambandinu við
almenning í landinu.
Nokkrum vikum seinna létu
stjórnvöld til skarar skríða gegn
gríðarlegum fjölda fólks sem
safnast hafði saman á ýmsum
opnum svæðum, sérstaklega í
Peking. Þann 3. júní sama ár
réðust síðan hermenn gegn
fjölda fólks á Torgi hins
himneska friðar. Þessi viðbrögð
stjórnvalda vöktu gríðarlega reiði
um heim allan og létu þjóðar-
leiðtogar í ljós vanþóknun sína
og fordæmingu á voðaverkun-
um, sem leiddu til dauða þús-
unda manna. KÍNVERJAR MÓTMÆLA
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1860 Abraham Lincoln var á
þessum degi útnefndur
forsetaefni repúblikana á
fundi flokksins í Chicago.
1926 Aimee Sample McPherson,
þekktur bandarískur pré-
dikari, hverfur sporlaust í
Kalíforníu.
1974 Indverjar ná þeim vafa-
sama árangri að koma sér
upp sínu fyrsta kjarnorku-
vopni.
1980 Eldfjallið St. Helena í Was-
hington-ríki byrjar að gjósa
snemma morguns og veld-
ur gríðarlegu tjóni.
1985 Dagur ljóðsins er haldinn
hátíðlegur í fyrsta sinn, að
frumkvæði Rithöfundasam-
bands Íslands.
1989 Rúmlega sex vikna verkfalli
Bandalags háskólamanna
á Íslandi, sem olli mikilli
röskun á skólastarfi, lýkur.
Spennan magnast í Kína
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
í smáletursdálkinn hér a› ofan má
senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a
hringja í síma 550 5000.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Jóhanna Guðmundsdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum 10. maí sl. Útför fer fram frá Bústaða-
kirkju föstudaginn 20. maí kl. 15.00.
Jóna Sigrún Harðardóttir, Arilíus Engilbert Harðarson, Halldór Sigþór
Harðarson, Hólmfríður Alda Sigurjónsdóttir, Sigurður Páll Guðjónsson,
Hanna Björk Guðjónsdóttir, Ólafur Valgeir Guðjónsson, Hörður Jóhann
Halldórsson, Sigrún Birna Magnúsdóttir, Sigríður Hrönn Halldórsdóttir,
Sigmar Karl Stefánsson og langömmubörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurþór Halldórsson
fyrrverandi skólastjóri í Borgarnesi,
Gullsmára 5, Kópavogi,
sem lést á Landspítala í Fosssvogi 12. maí sl., verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju föstudaginn 20. maí kl. 11.00. Blóm og kransar vinsam-
legast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Rauða
Kross Íslands.
Kristín Guðmundsdóttir
Guðmundur Sigurþórsson Julia Sigurthorsson
Halldór Ellert Sigurþórsson Sesselja Sigurðardóttir
Gísli Þór Sigurþórsson Kolbrún Einarsdóttir
Ása Katrín Sigurþórsdóttir Hans Engen
Sóley Björk Sigurþórsdóttir Einar Óskarsson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
Halldóra Árnadóttir
Kvistagerði 2, Akureyri,
lést af slysförum laugardaginn 14. maí síðastliðinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Snorri Guðmundsson
Sigurður Árni Snorrason Kristín Linda Jónsdóttir
Jón Már Snorrason Kolbrún Sigurðardóttir
Snorri Snorrason Þóra Víkingsdóttir
Rúnar Þór Snorrason Guðlaug Marín Guðnadóttir
og barnabörn.
Smurbrau›sjómfrú í Flórunni
„Ég lýg því ekki að fólk lá á hurð-
inni,“ segir Marentza Poulsen, sem
rekur kaffihúsið Flóruna í Grasa-
garðinum sem var opnað á mánudag
eftir vetrarlokun. Flóran er opin frá
tíu að morgni til tíu á kvöldin fram í
september. „Við erum eins og far-
fuglarnir,“ segir Marentza hlæjandi
en hún hefur rekið staðinn í átta ár.
„Maður kemur hérna inn og
ákveður að ætla bara að vinna og
sofa og gera ekkert annað,“ segir
Marentza, sem líkir rekstrinum við
vertíð. Á veturna kennir hún nám-
skeið í smurbrauðsgerð og sér um
dönsk jólahlaðborð en hún er smur-
brauðsjómfrú að mennt. Smurbrauð
eru því vitaskuld einnig á boðstól-
um í Flórunni en Marentza segir að
kjúklingasalatið þyki best og hafi
ýmsir gerst fastakúnnar fyrir vikið.
Þótt enn sé kalt úti segir Mar-
entza að það sé himnaríki líkast að
sitja inni í gróðurhúsi. Þá megi
segja að Flóran hafi hlotið blessun í
sumarbyrjun en brúðkaup fór fram
í Grasagarðinum á opnunardaginn.
F32170
505 Sig-
urður
SMURBRAUÐSJÓMFRÚ Marentza Poulsen hefur rekið kaffihúsið Flóruna í átta ár í
Grasagarðinum við góðan róm.