Fréttablaðið - 18.05.2005, Side 64
IAN CURTIS Forsprakki Joy Division framdi sjálfsvíg fyrir 25 árum.
18. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Bíómiðar!
Sony Heimabíó!
vMedion tölva
með flatskjá!
Medion tölva!
Medion 27” Plasmatæki!
Coca Cola!
DVD spilarar!
DVD myndir!
Playstation two!
Tölvuleikir!
MP3 spilarar!
Haugur af
græjum frá BT
í vinning!
Viltu 1/2 milljón?
Sendu SMS skeytið
JA BTV á númerið 1900!
Við sendum þér
3 spurningar sem þú
svarar með því að
senda SMS skeytið
JA A, B eða C á númerið
1900.
• •Sá sem svarar hraðast 3 spurningum fær 500.000kr*!
• • Allir sem svara 2 rétt gætu fengið aukavinning!
• • 10. hver vinnur aukavinning!
500.000
krónur*!
*Sá sem vinnur 500.000 kr fær einn dag til að kaupa sér vörur í verslunum BT og Iceland Express að andvirði 500.000 kr.
Leik lýkur 3. júní 2005 24:00 Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið. Ef það tekur þig lengur en 5 mín. að svara spurningu þarftu að byrja leikinn aftur.
Fartölvur • Flugmiðar með Iceland Express • Heimabíó • Sjónvörp • PS2 tölvur
• Samsung GSM símar • MPp3 spilarar • DVD spilarar • DVD myndir • Tölvuleikir
• Kippur af Coca Cola og margt fleira.
D3
Samsung Símar!
SMS LEIKUR
Flugmiðar!
Hafðu hraðann á!
BTnet gefur 500.000 kr.*!
SMS LEIKUR
rir flesta er
ðvelt að
reppa til
nnlæknis ef
nnpína gerir
rt við sig. Má
ækist hins veg
kkuð þegar
0 kílógramm
jörn á í hlut
Hin 37 ára gamla söngkona
Kylie Minogue hefur neyðst til
þess að hætta við tónleikaferð
sína, Show Girl: Greatest Hits,
vegna þess að hún hefur greinst
með brjóstakrabbamein. Í yfir-
lýsingu frá umboðsmanni henn-
ar segir að hún hafi verið í heim-
sókn hjá fjölskyldu sinni í Mel-
bourne þegar krabbameinið hafi
greinst og söngkonan muni því
taka sér frí þar til hún hefur náð
fullum bata.
Tónleikaferðin átti að vera
hennar síðasta og sjálf segist
söngkonan knáa vera mjög von-
svikin yfir þessu. Hana hafi
hlakkað mikið til að syngja fyrir
aðdáendur sína en hún átti að
fara til Ástralíu og Asíu eftir að
hafa verið á ferðalagi um Evr-
ópu. Aðdáendur, sem keypt
höfðu miða, voru þó beðnir um
að geyma miðana, því ekki er
útilokað að Kylie muni fara af
stað aftur að loknum veikindum.
„Tónleikaferðin átti að vera
virðingarvottur við aðdáendur
mína,” sagði söngkonan í Glas-
gow á dögunum.
Kylie Minogue varð fyrst
þekkt fyrir leik sinn í Nágrönn-
um. Eftir að hún sagði skilið við
þættina lagði hún sönginn fyrir
sig og sló í gegn með laginu I
Should Be so Lucky. Kylie er ein
vinsælasta söngkona heims um
þessar mundir og hún gaf ný-
verið út sína tíundu plötu, Body
Language, þar sem Emiliana
Torrini samdi eitt lag. ■
Minningartónleikar verða
haldnir á Gauki á Stöng í kvöld í
tilefni þess að 25 ár eru liðin frá
því Ian Curtis, fyrrum for-
sprakki hljómsveitarinnar Joy
Division, framdi sjálfsvíg að-
eins 23 ára gamall.
Hljómsveitirnar sem koma
fram eru: Taugadeildin, Singa-
pore Sling, Worm is Green,
Magga Stína og Hringir, Hanoi
Jane, Sólstafir og Ghost
Division, með þá Mike og Danny
Pollock í fararbroddi. Auk þess
mun Birgitta Jónsdóttir flytja
ljóð Curtis, New Dawn Fades, án
undirleiks.
Skipuleggjandinn Ólafur
Thorsson segist hafa fengið frá-
bær viðbrögð við tónleikunum.
„Fyrir svo mörgum er þetta
merkilegur hlutur,“ segir Ólaf-
ur. „Bæði fyrir hinn venjulega
tónlistaráhugamann og fyrir
kynslóð tónlistarmanna sem
kom úr pönkinu, úr hljómsveit-
um eins og Þey, Fræbblunum og
Utangarðsmönnum. Á tónleik-
unum verða gamlir pönkhundar
og svo yngri menn eins og
Singapore Sling, þar sem Joy
Division er greinilegur áhrifa-
valdur, aðallega í gegnum
hljómsveitina Jesus and Mary
Chain.“
Að sögn Ólafs var óhjá-
kvæmilegt að skipuleggja þessa
tónleika. „Það er alveg við hæfi
að sýna honum smá virðingar-
vott því þetta var stórmerkileg-
ur listamaður. Hann stendur upp
úr með mörgum konungum.“
Joy Division lagði upp
laupana eftir dauða Curtis en
hóf síðan störf á ný undir nafn-
inu New Order. Sú sveit er enn
starfandi í dag og gaf hún ný-
verið út plötuna Waiting for the
Sirens' Call.
Joy Division markaði djúp
spor í tónlistarsöguna en hún
tróð nýjar slóðir undir sterkum
áhrifum frá pönkbylgjunni í
Bretlandi. Textar og ljóð Ian
Curtis voru þó af allt öðrum
toga en þeir sem sveitir á borð
við Sex Pistols sömdu. Fjölluðu
þeir um stjórnmál og þá djúp-
stæðu innri baráttu fólks við
ytri táknmyndir hins versta sem
mannkynið endurvarpaði bæði í
sögulegum skilningi og þeim
eymdarveruleika sem verka-
mannastéttin í Manchester
þurfti að kljást við dag hvern.
Nafn sveitarinnar er bein til-
vísun í deild í útrýmingarbúðun-
um í Treblinka þar sem gyðinga-
konur voru neyddar til vændis.
Þessi tilvísun átti þó eftir að
draga þann dilk á eftir sér að
nýnasistar í Bretlandi héldu í
einfeldni sinni að þessi tilvísun
væri lofgjörð til nasista. Að
sögn Ólafs var hljómsveitin
þvert á móti að setja sig í spor
fórnarlambsins og þeirra sem
minnst mega sín í stríði. „Fólk
mun muna eftir Joy Division
eftir 100 ár. Hljómsveitin er
komin í þá kategoríu. Þetta eru
stór orð en ég ætla að standa við
þau,“ segir hann.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 21.00 og er aðgangseyr-
ir 700 krónur.
freyr@frettabladid.is
KYLIE MINOGUE Hún hefur neyðst til
þess að fresta öllum tónleikum um óá-
kveðinn tíma vegna þess að hún greindist
með brjóstakrabbamein
Kylie me› brjóstakrabbamein
M
YN
D
: A
P
PH
O
TO
■ TÓNLIST
Stendur upp úr me› mörgum