Fréttablaðið - 06.07.2005, Blaðsíða 1
Stukku í sjóinn
á Stokkseyri og drukku
íslenskt brennivín
NILFISK OG FOO FIGHTERS:
▲
SÍÐA 25
TÓNLIST
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
DANMÖRK Um 200 mótmælendur
gengu um götur Kaupmannahafn-
ar í gær og mótmæltu komu Geor-
ge Bush til landsins. Mótmælend-
urnir, sem voru svartklæddir og
flestir ungir að árum, gengu um
með skilti þar sem Bush var tjáð
að hann væri óvelkominn. Einn
var handtekinn fyrir að brenna
bandaríska fánann.
Flugvél Bandaríkjaforseta
lenti á Kaupmannahafnarflugvelli
klukkan rúmlega níu í gærkvöldi
að dönskum tíma en hann er í op-
inberri heimsókn í Danmörku
ásamt eiginkonu sinni og dóttur.
Að heimsókn sinni lokinni fer
Bush til Gleneagles í Skotlandi
síðar í dag þar sem G8-fundurinn
verður haldinn.
Bush-fjölskyldan gisti í sveita-
höllinni Fredensberg skammt
norðan við Kaupmannahöfn í boði
Danadrottningar. Kristján Sigur-
jónsson, fréttaritari Fréttablaðs-
ins, var viðstaddur mótmæli hjá
Fredensberg þegar Bush kom
þangað. Þar var einungis fámenn-
ur hópur mótmælenda og ljóst að
lítið varð úr fyrirætlunum þeirra
um að halda vöku fyrir Bush fram
á nótt við höllina. Kristján sagði
þó öryggisgæslu hafa verið gríð-
arlega. Mótmælendurnir lofuðu
meiri fjölda í mótmælum sem
verða í Kaupmannahöfn í dag.
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, tók á
móti Bush og fjölskyldu hans við
komuna. Í dag munu Rasmussen
og Bush snæða saman morgun-
verð og ræða hugsanlegar lausnir
á sárri fátækt í mörgum Afríku-
ríkjum.
- oá/ks
Meðallestur
75%
53%
*Höfuðborgarsvæðið skv. fjölmiðlakönnun Gallup í maí 2005.
á tölublað*
25-49 ára konur
SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM en rigning
eða súld með austurströndinni. Sýnu
bjartast vestan til á Suðausturlandi. Hiti
yfirleitt 10-17 stig, hlýjast suðaustan til.
VEÐUR 4
MIÐVIKUDAGUR
6. júlí 2005 - 180. tölublað – 5. árgangur
Nýtt
viðs
kipta
blað
með Fré
ttablaði
nu
alla miðvikudaga
Sögurnar • Tölurnar • Fólkið
HK sló út bikarmeistarana
annað árið í röð
1. deildarlið HK vann í
gærkvöld góðan 1–0
sigur á bikar-
meisturum
Keflavíkur en í
fyrra slógu þeir út
þáverandi bikar-
meistara ÍA í 32-
liða úrslitum. HK er eina
liðið úr neðri deild-
unum sem er enn
með í keppninni.
ÍÞRÓTTIR 20
Barátta háð tískustraumum
Baráttan gegn fátækt í heiminum lýt-
ur tískustraumum eins og flest annað
í mannlífinu, segir Jón
Ormur Halldórsson og
bætir við að þau ríki
sem hafi náð mestum
árangri í baráttunni
gegn fátækt hafi flest
þegið litla eða óveru-
lega þróunaraðstoð.
UMRÆÐAN 16
Ryan Phillippe í aðalhlutverki
Bandaríski leikarinn
Ryan Phillippe mun
taka að sér eitt aðal-
hlutverkanna í kvik-
myndinni Flags of Our
Fathers, sem leikstýrt
verður af Clint
Eastwood.
FÓLK 30
Ævint‡rafer›ir
á sjó og landi
HELGA BESTLA NJÁLSDÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● ferðir ● börn
▲
MÓTMÆLT VIÐ BANDARÍSKA SENDIRÁÐIÐ Heldur færri mótmæltu komu Bush í gær en búist hafði verið við. Um 200 manns mótmæltu
fyrir framan bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn.
ATVINNUFRAMBOÐ Kaupfélag Eyfirð-
inga hefur keypt eignarhlut ríkis-
ins á Glerárgötu 36 á Akureyri
fyrir rúmar 100 milljónir króna.
Tilgangurinn er að freista þess að
fjölga störfum á Akureyri með
því að bjóða opinberum stofnun-
um og einkaaðilum afnot af hús-
næðinu og eru viðræður þess efn-
is hafnar. Smáragarður, fasteigna-
félag BYKO-samsteypunnar,
gerði ríkinu einnig tilboð í eignina
og segir Guðmundur Halldór
Jónsson, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, að KEA hafi boðið betur.
„Smáragarður á aðrar fasteignir
sem tilheyra Glerárgötu 36 en við
höfum ekki tekið ákvörðun um
nýtingu þeirra,“ segir Guðmund-
ur.
Benedikt Sigurðarson, stjórn-
arformaður KEA, segir ekki ljóst
á þessu stigi
hvernig húsið
verði nýtt. „Það
er yfirlýst stefna
KEA að fjölga
störfum á Akur-
eyri og við höfum
átt viðræður við
fyrirtæki á höfuð-
borgarsvæðinu
um opnun starfsstöðva í húsnæð-
inu. Fyrirtækin eru af margvís-
legum toga og hugsanlegt að KEA
eignist hlut í einhverju þeirra.
Eitt af þeim fyrirtækjum sem við
höfum rætt við er Smáragarður
og samstarf við þá kemur vel til
greina,“ segir Benedikt.
Í apríl síðastliðnum samþykkti
stjórn KEA að óska eftir viðræð-
um við iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytið annars vegar og sjávarút-
vegsráðuneytið hins vegar um
flutning á opinberum störfum til
Akureyrar og hugsanleg kaup á
Íslenskum orkurannsóknum. „Í
síðustu viku áttum við góðan fund
með Valgerði Sverrisdóttur, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, um
þessi mál og í framhaldinu mun-
um við ræða betur við ráðherra,“
segir Benedikt.
KEA hefur lýst yfir áhuga á að
meginstarfsemi Fiskistofu og
Hafrannsóknastofnunar flytjist
til Akureyrar og er félagið tilbúið
að leggja fram verulegar fjár-
hæðir svo af því megi verða. Að
mati stjórnenda KEA er kostnað-
ur við flutning á Fiskistofu einni
og sér á bilinu 50 til 100 milljónir
króna. „Í næstu viku eigum við
bókaðan fund með sjávarútvegs-
ráðherra,“ segir Benedikt. - kk
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
VEÐRIÐ Í DAG
George W. Bush Bandaríkjaforseti kominn til Danmerkur:
Gæslan meiri en mótmælin
KEA b‡›ur húsnæ›i
fyrir störf a› sunnan
Ólympíuleikarnir 2012:
Sta›setning
kynnt í dag
SINGAPÚR, AP Í dag mun Alþjóða-
ólympíunefndin greina frá því hvar
ólympíuleikarnir verða haldnir árið
2012. Fundur nefndarinnar fer fram
í Singapúr og af því tilefni hefur
fjöldi áhrifamanna haldið þangað til
að auka möguleika sinna borga.
Hillary Clinton og Muhammed
Ali reyna að sannfæra nefndina um
að leikarnir eigi að fara fram í New
York; Jacques Chirac knýr á um að
París verði fyrir valinu; Tony Blair
og David Beckham reyna að vinna
Lundúnum brautargengi og Jose
Manuel Zapatero og Raul Gonzales
hvetja til að Madríd hreppi hnossið.
Vladimir Pútín ávarpaði nefndina í
gegnum gervihnött á ensku en það
er í fyrsta sinn sem hann mælir á þá
tungu. ■
Eigendur Lyfja og heilsu:
Kaupa breska
ilmvatnssölu
VIÐSKIPTI Móðurfélag lyfsölukeðj-
unnar Lyfja og heilsu hefur keypt
70 prósent í breska fyrirtækinu Pre-
Scent Group sem sérhæfir sig í sölu
og markaðssetningu á ilmvatni.
Kaupverðið er 42 milljónir
punda eða um fimm milljarðar
króna. Að sögn Karls Wernerssonar,
aðaleiganda fyrirtækisins, eru
kaupin liður í stefnu félagsins að
byggja upp alþjóðlegt markaðs- og
sölufyrirtæki á sviði heilsu, heilsu-
vara og munaðar- og snyrtivöru.
„Þetta er vel rekið og arðbært félag
með mikla vaxtarmöguleika.“
Við kaupin tvöfaldast velta fyrir-
tækisins og mun meirihluti tekna og
hagnaðar verða til erlendis eftir
kaupin.
- hh / Sjá Markaðinn sem fylgir blaðinu í dag
BENEDIKT
SIGURÐARSON
OPNUNARATHÖFN Dansarar skemmtu
fulltrúum við upphaf fundar
Alþjóðaólympíunefndarinnar.
M
YN
D
/A
P
Vi›ræ›ur eru hafnar milli Kaupfélags Eyfir›inga og i›na›ar- og vi›skiptará›u-
neytisins um flutning opinberra verkefna til Akureyrar. Jafnframt á KEA í vi›ræ›-
um vi› einkafyrirtæki á höfu›borgarsvæ›inu um opnun starfsstö›va á Akureyri.