Fréttablaðið - 06.07.2005, Page 6

Fréttablaðið - 06.07.2005, Page 6
6 6. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR Íraskir uppreisnarmenn taka upp nýjar aðferðir: Rá›ist á sendiherra íslamskra ríkja BAGDAD, AP Uppreisnarmenn í Írak hafa fundið sér ný skotmörk í baráttu sinni, erindreka ann- arra múslimaríkja sem starfa í landinu. Þeir hyggjast þar með fæla trúbræður sína frá því að mynda tengsl við ríkisstjórn Íraks sem starfar í skjóli banda- rískrar herverndar. Í gærmorgun særðist Hassan Malalah al-Ansari, fulltrúi ríkis- stjórnar Barein í Írak, þegar skotið var á hann á leið til vinnu í Bagdad. Síðar um daginn varð Mohammed Younis Khan, sendi- herra Pakistans í Bagdad, fyrir skotárás nokkurra byssumanna en hann slapp ómeiddur. Stjórn- völd í Islamabad hafa þegar kall- að Khan heim. Skemmst er að minnast ráns- ins á Ihab al-Sherif, sendiherra Egyptalands, á sunnudag. Ekkert hefur til hans spurst síðan þá. „Markmiðið er skýrt, að skapa ótta,“ sagði formælandi Íraks- stjórnar á blaðamannafundi í gær. Hann bætti því við að mark- mið árásanna væri að hrekja aðr- ar erlendar sendinefndir frá landinu. Barein er dyggur bandamaður Bandaríkjanna en á eynni hefur fimmti flotinn höfuðstöðvar sín- ar. Pakistönsk stjórnvöld hafa stutt Bandaríkjamenn í stríðinu gegn hryðjuverkum en voru lítt hrifin af innrásinni í Írak. ■ Lýður sem ógn stendur af, segir héraðsdómur: Dæmdur fyrir hasssmygl DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að hafa í apríl og maí í fyrra staðið að innflutningi á rúmlega 2,5 kílóum af hassi frá Danmörku. Hassið var falið í leikfangatraktor sem sendur var í pósti. Þá var ákært fyrir húsbrot og líkamsárás þegar maðurinn rudd- ist inn á heimili 17 ára drengs í byrjun síðasta árs, undir því yfir- skyni að vera að innheimta skuld. Í látunum meiddist móðir piltsins. Maðurinn var sýknaður af líkams- árásinni en húsbrotið talið honum til refsiþyngingar. Með í för var hópur félega hans og voru nokkr- ir þeirra handteknir á staðnum. Dómurinn segist líta mjög alvar- legum augum á þegar hópur rýfur heimilisfrið fólks með hótunum um ofbeldi. „Af slíkum lýð stend- ur varnarlausu fólki mikil ógn,“ segir í dómnum. - óká Brown varar vi› of mikilli bjarts‡ni Lei›togafundur G8-ríkjanna hefst í Skotlandi í dag. Forystumenn Afríkuríkja skora á starfsbræ›ur sína á Vesturlöndum til a› standa vi› yfirl‡singar sínar en Gordon Brown varar vi› of mikilli bjarts‡ni. LEIÐTOGAFUNDUR Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, varar við of mikilli bjartsýni fyrir leiðtogafund G8-ríkjanna sem hefst í dag. Leiðtogar Afr- íkuríkja hvetja G8-ríkin til að standa við stóru orðin. Fundur sjö helstu iðnríkja heims og Rússlands hefst í Gleneagles í Skotlandi í dag þar sem hlýnun jarðar og staða fá- tækustu ríkja heims verða efst á baugi. Miklar væntingar eru bundnar við niðurstöður fundar- ins en á þær reyndi Gordon Brown, fjármálaráðherra Bret- lands, hins vegar að slá í viðtali við BBC í gær. „Hvað Bretlandi finnst er eitt, hvað við getum sannfært aðrar þjóðir um að gera er hins vegar það sem koma mun út úr þessum fundi.“ Nefnd Tony Blair, forsætis- ráðherra Breta, um málefni Afr- íku sunnan Sahara hefur lagt til að þróunaraðstoð til þessara landa verði tvöfölduð og nemi árið 2010 þrjú þúsund milljörð- um króna. George W. Bush, for- seti Bandaríkjanna, er þessum tillögum hins vegar andvígur og því er ólíklegt að þær nái fram að ganga. Gremja Browns yfir þeirri staðreynd var augljós. „Maður getur ekki annað en verið reiður yfir stöðunni vegna þess að tækni og vísindi setja okkur engar skorður við að út- rýma fátækt, eingöngu skortur á pólitískum vilja.“ Leiðtogar 47 Afríkuríkja luku fundi sínum í Sirte í Líbíu í gær. Þar var útbúin ályktun þar sem skorað er á leiðtoga G8-ríkjanna að standa við loforð sín um að aðstoða álfuna í baráttunni við fátækt með því að stórauka þró- unaraðstoð og fjárfestingu. Auk þess var þess krafist að Afríka fengi tvö föst sæti með neitun- arvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og fimm sæti til við- bótar svo að gera megi nauðsyn- legar endurbætur á stofnuninni. Stund var á milli stríða hjá mótmælendum í Edinborg í gær en margir fluttu sig til fundar- staðarins í Gleneagles, skammt frá borginni. Bob Geldof, for- vígismaður Live-8, kom til Edin- borgar í gær. Þá bættist mót- mælendunum enn fremur góður liðstyrkur því í gær sendi trúar- leiðtoginn Dalai Lama frá sér yfirlýsingu þar sem hann hvatti G8-leiðtogana til að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að binda enda á neyð Afríku. sveinng@frettabladid.is ÁGÆT KJÖRSÓKN Þessi kona lét sig ekki vanta á kjörstað í Vyegwa. Kjörsókn var ríf- lega 63 prósent. Kosningar í Búrúndí: Flokkur Hútúa fær meirihluta BÚJÚMBÚRA, AP Flokkur uppreisnar- manna virðist hafa unnið meirihluta í þingkosningunum í Afríkuríkinu Búrúndí, þeim fyrstu sem haldnar hafa verið í landinu í tólf ár. Þegar búið var að telja 80 pró- sent atkvæðanna í gær virtist allt stefna í að Varnarsveitum lýðræðis- ins, flokki Hútúa sem barðist í borg- arastríðinu 1993-2001, hefði hlotn- ast drjúgur meirihluti atkvæða Varnarsveitirnar taka við völd- um af bráðabirgðastjórn Hútúa og er búist við umtalsverðum breyt- ingum í stjórnmálalífi landsins. Kosningarnar eru sagðar hafa farið vel fram miðað við það sem búist hafði verið við. ■ Banaslysið við Minni-Borg: Nafn manns- ins sem lést ANDLÁT Maðurinn sem lést í umferð- arslysi við Minni-Borg í Grímsnesi hét Hjörtur Jónsson. Hann var 79 ára og búsettur á Brjánsstöðum í Grímsnesi. Hjörtur lætur eftir sig eiginkonu og sex uppkomin börn auk fjölda barnabarna. ■ Vegna fréttar um hrefnuveiðar í sumar sem birtist í Fréttablaðinu í gær vill sjávarútvegsráðuneytið taka fram að engin ákvörðun hef- ur verið tekin um veiðar á 200 langreyðum og hundrað sand- reyðum þótt þær séu á hvala- rannsóknaáætlun. Dani hótaði Bush: Úrskur›a›ur í gæsluvar›hald DANMÖRK Þrítugur Dani hefur verið úrskurðaður í sex daga gæsluvarð- hald fyrir að hafa sent George Bush Bandaríkjaforseta líflátshótun. Maðurinn sendi tölvupóst til Hvíta hússins svohljóðandi: „Elsku George, þegar þú heimsækir Dan- mörku eftir um það bil viku reikna ég með því að þú myndir gjarnan vilja vita að margir Danir eru þakk- látir fyrir þetta tækifæri til að reyna að myrða þig.“ Maðurinn hefur játað sök en segir tölvupóstinn hafa verið send- an í hálfkæringi. ■ TEKINN Á 145 KÍLÓMETRA HRAÐA Einn ökumaður var tek- inn í gær á 145 kílómetra hraða í umdæmi lögreglunnar á Blöndu- ósi. Lögreglan á Blönduósi hefur verið með mjög virkt umferðar- eftirlit undanfarnar vikur og segja lögreglumenn að almennt flýti ökumenn sér of mikið. Lög- reglan á Sauðárkróki sektaði tólf ökumenn í gær fyrir hraða og annað smálegt. ÞJÓFNAÐUR ÚR VINNUVÉLUM Í KEFLAVÍK Geislaspilurum var stolið úr sjö vinnuvélum í Kefla- vík í gær. Vélarnar stóðu við Suð- urstrandarveg þar sem fram- kvæmdir standa yfir. Skemmdir höfðu verið unnar á einni vélinni. Beint flug til hinnar fögru miðaldaborgar Tallinn í Eistlandi Innifalið í verði: Flug, 4 stjörnu hótel m/morgunmat, akstur til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og skattar. Verð 49.900 kr. Ferðin er frá 12.-16. október Tallinn hefur breyst í nútímaborg með alþjóðlegu yfirbragði á síðustu 10 árum. Þrátt fyrir það eru íbúarnir stoltastir af gamla bæjarhlutanum. Þar eru götur steini lagðar og við þær standa vel varðveittar stórkostlegar byggingar frá 11-15 öld. Þá setja markaðirnir mikinn svip á borgina. Tallinn hefur verið bætt við á heimslista UNESCO sem ein best varðveitta miðaldarborg N-Evrópu. Menningarlíf í Talllinn stendur með miklum blóma og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Í Tallinn er hægt að gera góð kaup. Þar er ódýrt að versla og matur á veitingahúsum er ódýr. Þá er, næturlífið fjörugt, barir, skemmtistaðir og kaffihús á hverju götuhorni. Tallinn er borg sem fangar, borg sem skilur eitthvað eftir, löngu eftir að komið er heim. Spennandi skoðunarferðir í boði með íslenskri fararstjórn Trans-Atlantic Sími 5888900 www.transatlantic.is LEIÐRÉTTING LÖGREGLUFRÉTTIR Á að leyfa frumættleiðingar samkynhneigðra? SPURNING DAGSINS Í DAG: Samþykkja leiðtogar G-8 ríkj- anna eitthvað á fundi sínum til að draga úr fátækt í Afríku? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 40% 60% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN SÆRÐUR SENDIHERRA Hassan Malalah al-Ansari, fulltrúi bareinsku ríkisstjórnarinnar í Írak, fékk skot í öxlina í gær en var þó ekki alvarlega særður. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Með hassinnflutningi og húsbroti rauf ungur maður skilorð dóms sem upp var kveðinn í október 2003. Hann var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í 9 mánaða fangelsi sem kemur sem hegningarauki við fyrri dóm. HUGSJÓNAMAÐUR Bob Geldof kom með járnbrautarlest til Edinborgar í gær. Hann sagði við blaðamenn að viðræðurnar væru mikilvægasti G8-fundur sögunnar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.