Fréttablaðið - 06.07.2005, Page 8
1Hver er mesti verðmunurinn á einnivöru samkvæmt verðkönnun ASÍ?
2Hvað heitir halastjarnan sem banda-rískir vísindamenn skutu fari að?
3Hvað heitir nýr ritstjóri bogb?
SVÖRIN ERU Á BLS. 30
VEISTU SVARIÐ?
8 6. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Sko›a›ir á daginn
og skotnir á nóttunni
HVALVEIÐAR „Það er útlit fyrir að
dýrin verði skoðuð á daginn og svo
skotin að nóttu,“ segir Vignir Sigur-
sveinsson, skipstjóri á hvalaskoð-
unarbátnum Eldingunni, en hann
segist hafa orðið var við hrefnu-
veiðibáta strax í fyrradag á þeim
slóðum þar sem hann siglir um með
fólk í hvalaskoðun suðvestur af
Akranesi og norður með Kjalar-
nesi.
Sjávarútvegsráðuneytið til-
kynnti í fyrradag að heimilaðar
verði veiðar á 39 hrefnum í vísinda-
skyni, það er fjórtán fleiri en heim-
ilað var að veiða í fyrra.
Vignir segir að hvalveiðimenn
hafi samráð við hvalaskoðunar-
menn um hvenær og hvar þeir veiði
og telur líklegast að veiðar fari að
mestu fram að nóttu. „Ég hef mest-
ar áhyggjur af því að þeir taki gæf-
ustu og skemmtilegustu dýrin sem
hafa verið hvað aðgengilegust fyrir
okkur,“ bætir Vignir við.
Ásbjörn Björgvinsson formaður
Hvalaskoðunarsamtaka Íslands
bregst harðlega við ákvörðun sjáv-
arútvegsráðherra. „Það er alveg
með ólíkindum að stjórnvöld skulu
vera að skemma það sem við erum
að reyna að byggja upp því það eru
gæfustu dýrin sem yfirleitt eru
skotin og þar með er verið að taka
bestu söluvöruna og skjóta hana,“
segir hann. Hann dregur einnig vís-
indalegt gildi veiðanna í efa.
Ólafur S. Ástþórsson, aðstoðar-
forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
segir að hvalveiðimenn og hvala-
skoðunarmenn hafi samráð sín á
milli og þannig megi komast hjá
árekstrum.
Í tilkynningu frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu segir að afurðir þeirra
hrefna sem verði veiddar í ár verði
nýttar eftir því sem hægt er. Árni
Finnsson, formaður Náttúruvernd-
arsamtaka Íslands, segir þetta bera
með sér að sjávarútvegsráðuneytið
hafi áttað sig á því að sennilegast
verði að henda miklu af afurðunum
þar sem ekki sé markaður fyrir
hrefnukjöt, hvorki innanlands né til
útflutnings. jse@frettabladid.is
KROSSARNIR TEKNIR Gagnrýnendur bank-
ans telja að heldur fljótt hafi fennt yfir
minninguna um þá sem skotnir voru á
landamærum austurs og vesturs.
M
YN
D
/A
P
Checkpoint Charlie:
Minnismerki
tekin ni›ur
Hvalasko›unarmenn hafa sé› til hrefnuvei›imanna flar sem hvalasko›un er
stundu›. Stjórnvöld eru söku› um a› ey›ileggja uppbyggingu greinarinnar.
HVALASKOÐUN Hvalaskoðunarmenn segja að svokallaðir skoðarar séu felldir í hrefnuveið-
um en það eru gæfustu og aðgengilegustu dýrin. Nú þegar hafa hvalaskoðunarmenn séð
hrefnuveiðimenn á skoðunarslóðum og eru gramir út í sjávarútvegsráðherra.
BERLÍN, AP Verkamenn hófu í gær að
taka niður 1.067 krossa á mörkum
Austur- og Vestur-Berlínar sem
settir höfðu verið niður til minning-
ar um þá sem féllu fyrir kúlum
austur-þýskra landamæravarða á
tímum kalda stríðsins.
Minningarreiturinn er við
landamærastöðina Checkpoint
Charlie en lóðin er í eigu þýska
bankans BAG. Þar sem lóðin er á
afar verðmætu byggingarlandi vill
bankinn selja hana en hún er of dýr
fyrir tilsjónarmenn minningarreits-
ins. Dómsúrskurð þurfti til að láta
fjarlægja krossana.
Nokkur mótmæli voru höfð í
frammi og voru stjórnendur bank-
ans sakaðir um föðurlandssvik. ■
Boris Berezovskí:
Vill stefna
Abramovitsj
AUÐKÝFINGAR Boris Berezovskí,
rússneski auðkýfingurinn sem
komst í ónáð hjá Vladimir Pútín
Rússlandsforseta og fékk póli-
tískt hæli í Bretlandi, hyggst
stefna rússneska athafnamannin-
um Roman Abramovitsj, eiganda
knattspyrnuliðsins Chelsea.
Berezovskí segir að
Abramovitsj hafi með klækjum
fengið sig til að selja honum hluti
sína í Sibneft-olíufyrirtækinu á
mjög lágu verði og hagnast
óheyrilega af þeim sökum. Mál-
sóknin mun að líkindum fara fram
í Bretlandi þar sem Berezovskí
treystir ekki rússneskum dóm-
stólum.
Breska blaðið Independent
bendir hins vegar á að Berezovskí
fékk sjálfur rússnesk ríkisfyrir-
tæki á kostakjörum þegar þau
voru einkavædd. ■
INDÓNESÍA
JÖRÐIN NÖTRAÐI Jarðskjálfti af
stærðinni 6,7 varð snemma í
gærmorgun í Bengalflóa. Jörð
skalf á Súmötru og Nías-eyju en
þar fórust 900 manns í mun
stærri skjálfta fyrir þremur
mánuðum. Mikill ótti greip um
sig enda aðeins rúmlega hálft ár
frá skjálftunum og flóðbylgjun-
um á annan dag jóla. Hvorki
hafa borist fregnir af mannfalli
né eignatjóni.
STJÓRNMÁL „Að mínu viti er þetta
merki um að siðferðisþrek Sam-
fylkingarinnar sé á þrotum og
þeim sé nær að líta í eigin barm
en að reyna að klóra í bakkann
með dylgjum á borð við þessar,“
segir Jónína Bjartmarz, þing-
maður Framsóknarflokksins.
Hún segir aðdróttanir Helga
Hjörvar, þingmanns Samfylk-
ingarinnar, um fasteignakaup
flokksins og aðkomu Halldórs
Ásgrímssonar að þeim vera ekk-
ert annað en lágkúrulega tilraun
til að þyrla ryki í augu almenn-
ings.
Helgi sendi í fyrradag fyrir-
spurn til formanns fjárlaga-
nefndar Alþingis, meðal annars
vegna upplýsinga um að eignar-
haldsfélagið Ker hf. hafi afsalað
sér húseigninni að Hverfisgötu
33, þar sem skrifstofa flokksins
er til húsa, skömmu eftir að
samþykkt var að ganga til við-
ræðna við S-hópinn um kaup á
Búnaðarbankanum en Ker hf.
leiddi þann hóp. Telur hann ótví-
rætt að frá þeim tengslum
flokksins og Kers hf. hefði átt að
skýra við einkavæðingarferli
bankanna.
Framsóknarflokkurinn hefur
bent á að húseignin var keypt
1997, fimm árum áður en
Búnaðarbankinn var seldur.
Jónína segir allt varðandi
kaupin gagnsætt og uppi á borð-
inu. Farist hafi fyrir að ganga
frá afsali vegna kaupanna og við
það sé ekkert tortryggilegt.
„Mér finnst afar alvarlegt að
Helgi skuli geta komið með
dylgjur sem eingöngu er ætlað
að rýra traust almennings á for-
sætisráðherra landsins.
Ekki náðist í Helga Hjörvar í
gær. - aöe
Jónína Bjartmarz harðorð í garð Helga Hjörvar:
Si›fer›isflrek Samfylkingar á flrotum
ÞVÆTTINGUR HJÁ HELGA
Jónína Bjartmarz fullyrðir að ekkert við
húsakaup flokksins á Hverfisgötu 33 þoli
ekki dagsljósið og segir tilgang Helga
Hjörvar þann einan að kasta rýrð á
Halldór Ásgrímsson.