Fréttablaðið - 06.07.2005, Síða 10
DÓMSTÓLAR Hæstiréttur sneri í gær
fyrri úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur og skipaði konu rétt-
argæslumann vegna ætlaðs heimil-
isofbeldis.
Í ákvörðun héraðsdóms sagði að
ekki mætti ráða af málsgögnum að
konan hefði orðið fyrir verulegu
tjóni á líkama eða andlegu heil-
brigði vegna brotsins sem hún
kærði og því var beiðni um réttar-
gæslumann hafnað. Kæran sneri
að árás fyrrverandi sambýlis-
manns á konuna í febrúarlok, en
hún bar einnig að mestan sambúð-
artíma þeirra hefði hún mátt sæta
ofbeldi. „Á þessu stigi málsins
verður ekkert fullyrt um til hverr-
ar niðurstöðu rannsókn lögreglu
leiðir og hvort hún muni beinast
eingöngu að líkamsárás 25. febrúar
2005. Ljóst er hins vegar að síend-
urtekið ofbeldi innan heimilis er til
þess fallið að valda þeim sem fyrir
því verður verulegu tjóni á andlegu
heilbrigði sínu,“ segir í dómi
Hæstaréttar og er vísað til
skýrslna heilbrigðisstarfsfólks um
að fleiri árásir kunni að hafa átt sér
stað. - óká
6. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Hæstiréttur snýr ákvörðun héraðsdóms:
Kona fær réttargæslumann
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Hæstiréttur sneri í gær úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 22.
júní þar sem konu var neitað um réttargæslumann. Hún hafði kært fyrrverandi sambýlis-
mann sinn fyrir líkamsárás og kvaðst hafa orðið fyrir heimilisofbeldi.
VEITINGAHÚS Veitingastaður fyrir
fína og fræga fólkið verður opnað-
ur innan skamms í Lækjargötu 6 í
Reykjavík.
„Arkitektar eru að klára teikn-
ingar og verið að leita að öllu sem
best er fyrir staðinn en það er
eftir heilmikil vinna í lokaútfærsl-
unni,“ segir Heiðar Hermannsson
sem á húsið við Lækjargötu 6.
Miklar framkvæmdir standa yfir
á húsinu utanverðu en allt innbúið
er sérsmíðað og tekur langan tíma
að koma öllu í endanlegt horf.
Aðspurður um hvers konar
staður þetta á að vera segir Heið-
ar að hann sé hugsaður fyrir fólk
með peninga milli handanna og
verðlagið verði eftir því. „Staður-
inn er hugsaður fyrir fólk sem fer
inn á dýra staði og vill fá að vera í
friði. Það er orðin svo mikil um-
ferð af útlendingum sem hefur
stutta viðdvöl á landinu og því tví-
mælalaust markaður fyrir svona
stað. Hann segir að hinum al-
menna borgara sé ekki meinaður
aðgangur að svona veitingastað en
verðlagið sjái sjálft um að ekki sé
mikið „rennerí“ af gestum. ■
NÝR VEITINGASTAÐUR „FÍNA FÓLKSINS“ Framkvæmdir sem standa að utanverðu á húsinu við Lækjargötu 6 eru liður í opnun nýs veit-
ingastaðar. Markhópurinn er fólk með peninga á milli handanna sem vill vera látið í friði.
Nýr veitingastaður fræga fólksins:
Fri›urinn d‡ru ver›i keyptur
ÚTIHÁTÍÐ Löggæsla verður hert til
muna á fjölskylduhátíðinni Ein
með öllu á Akureyri um komandi
verslunarmannahelgi frá því sem
verið hefur undanfarin ár. Bæjar-
yfirvöld munu greiða lögreglu
fyrir aukna gæslu á tjaldsvæðun-
um og aðstandendur hátíðarinnar,
Vinir Akureyrar, munu greiða
Lionsklúbbnum Hæng fyrir
aukna gæslu í miðbænum. Bragi
Bergmann, talsmaður Vina Akur-
eyrar, segir tilganginn að koma í
veg fyrir ólæti og slæma um-
gengni og að gera fjölskyldufólki
kleift að njóta hátíðarinnar til
hins ítrasta.
Bæjarráð Akureyrar hefur
ákveðið að styrkja hátíðina með
allt að tveggja milljóna króna
fjárframlagi en þar af fer hluti í
löggæslukostnað lögreglunnar.
Forsjárlaus ungmenni undir 18
ára aldri fá ekki aðgang að tjald-
svæðum bæjarins, né að tjald-
svæðunum í nágrenni Akureyrar.
Búið er að girða af tjaldsvæðið
ofan við Sundlaug Akureyrar og
þar verða einungis tjaldvagnar,
hjól- og fellihýsi um verslunar-
mannahelgina. Þeir sem ætla að
gista í tjöldum á Akureyri verða á
tjaldsvæðinu á Hömrum. -kk
EIN MEÐ ÖLLU 2004 Bragi Bergmann segir að 16 þúsund gestir hafi verið á hátíðinni í fyrra og líklega sé það fjölmennasta útihátíð sem
haldin hefur verið um verslunarmannahelgi á Íslandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/Á
Ö
H
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri:
Hertar a›ger›ir gegn ólátum