Fréttablaðið - 06.07.2005, Page 59
Tónlistarmaðurinn Peter Doher-
ty kemur fram á tónlistarhátíð-
inni Iceland Airwaves í haust
með hljómsveit sinni, Baby-
shambles.
Doherty, sem var áður í The
Libertines, stofnaði Baby-
shambles fyrst sem hliðarverk-
efni fyrir tveimur árum. Eftir að
stormasömu samstarfi Doherty
við félaga sína í The Libertines
lauk hefur stjarna hans haldið
áfram að skína með Baby-
shambles. Fyrir utan litríkan
lífsstíl nýtur Doherty gífurlegr-
ar virðingar sem texta- og laga-
höfundur í Bretlandi enda hafa
The Libertines gefið út tvær fyr-
irtaks plötur.
Fyrstu plötu Babyshambles er
beðið með mikilli eftirvæntingu
en útgáfudagur hennar er áætl-
aður í október. Hljóðupptöku-
stjóri á plötunni er Mick Jones
gítarleikari úr Clash. Baby-
shambles sendi frá sér tvær
smáskífur á síðasta ári. Seinni
smáskífan, „Killamanagiro“,
hafnaði í toppsæti breska vin-
sældarlistans en næsta smáskíf-
an,“Fuck Forever“, kemur út 8.
ágúst næstkomandi.
Þess má geta að Elton John og
Doherty sungu dúett á Live 8
tónleikunum í Hyde Park í
London um síðustu helgi. Sungu
þeir gamla Marc Bolan slagar-
ann „Children of the Revolution“
við gríðarlegan
fögnuð við-
staddra. ■
Babyshambles á Airwaves
PETE DOHERTY Tónlistarmaðurinn Pete
Doherty spilar á Iceland Airwaves í haust
ásamt hljómsveit sinni Babyshambles.
SCF
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
*****
svalasta
mynd
arsins
ÞÞ FBL