Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 54
12
FASTEIGNIR TILKYNNINGAR
15. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, eru hér með auglýstar tillögur að
breytingum á deiliskipulagáætlunum í
Reykjavík.
Kleifarsel 18.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að efri hæð
núverandi húss verði rifin og ný efri hæð
byggð með mest fjórum íbúðum, á neðri hæð
núverandi húss verða einnig innréttaðar fjórar
íbúðir. Ný viðbygging verður reist, að hámarki
þrjár hæðir með allt að fjórum íbúðum á hæð,
samtals tólf í húsi.
Bílastæði verða sex á lóð ofanjarðar og
þrjátíu og fjögur í bílgeymslu neðanjarðar,
samtals fjörutíu stæði sem eru tvö á íbúð ef
reistar verða tuttugu íbúðir.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Austurstræti 17.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að byggt verði við
sjöundu hæð (efstu hæð) hússins sem er nú
27,7 m2 en verður að hámarki 210 m2,
inndregin frá götulínu Austurstrætis um
minnst 238 cm, á göflum um 120 cm og á
bakhlið um 110 cm.
Leyfilegt yrði að setja burðarsúlur utar til að
tengjast burðarkerfi eldri byggingar og
salarhæð yrði aukin, úr 2,7 m í 3,2 m.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Traðarland 1 – Víkingur.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. nýjum upplýstum
gerfigrasvelli í stað núverandi vallar á svæði
A. Völlurinn yrði girtur af með fjögurra metra
hárri girðingu með þremur ljósamöstrum á
hvorri langhlið, lýsingu yrði beint inn á völl og
leitast við að lágmarka glýju gagnvart
umhverfinu.
Einnig gerir tillagan ráð fyrir sextíu og sjö
nýjum álagsstæðum á opnu svæði norð-
austan við núverandi íþróttahús ásamt því að
legu á almennum göngustíg verður breytt
lítillega.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 15. febrúar til og með 29.
mars 2006. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við tillögur-
nar skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingar-
sviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en
29. mars 2006.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 15. febrúar 2006
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Áríðandi tilkynning frá Félagsbústöðum hf.
til eigenda búslóða í vörslum félagsins.
Félagbústaðir og þar áður Félagsmálstofnun
Reykjavíkur hafa í gegn um tíðina þurft að taka
í sínar vörslur búslóðir o.fl. sem leigjendur hafa
skilið eftir í kjölfar útburðarmála eða við
leigulok af öðrum ástæðum. Hefur það verið
kostnaðarsamt og íþyngjandi.
Hafa eigendur í mörgum tilvikum árum saman
ekkert hirt um þessar eigur sínar.
Geymsluskylda Félagsbústaða í þessum tilvikum
er neyðarúrræði og varir ekki lengur en nauðsyn
krefur. Eigendum bar að vitja þeirra í framhaldi
af útburði, sér í lagi ef um peningaleg eða
tilfinningarleg verðmæti er að tefla. Í flestum
tilvikum er augljóst og blasir við að um engin
eða hverfandi verðmæti er að tefla. Verður og
að líta á langvarandi afskiptaleysi eigenda í
þessu efni sem vísbendingu um ekki sé um
að ræða verðmæti sem þeir hirði um.
Eigendum bar og ber skylda til að taka þessa
muni í sína vörslu og þeir bera lögum
samkvæmt ábyrgð á geymslukostnaði og öðrum
kostnaði, s.s. flutningskostnaði, og er hann
tryggður með haldsrétti í umræddum munum.
Félagsbústaðir telja sér ekki skylt að geyma og
annast þessa muni lengur og skorar félagið á
eigendur þessara búslóða að sækja þær hið
fyrsta og eigi síðar en 1. mars n.k. Gefst
eigendum þá kostur á að fá þessar eigur sínar
afhentar sér að kostnaðarlausu, þ.e. án greiðslu
á geymslukostnaði og öðrum áföllnum kostnaði.
Beri þessi áskorun ekki árangur verður
umræddum munum annað hvort fargað eða
þeir seldir nauðungarsölu til lúkningar á
kostnaði. Hvoru tveggja á ábyrgð og kostnað
viðkomandi búslóðareigenda.
Eigendur hafi samband við Birgi Ottósson,
forstöðumann þjónustudeildar
Félagsbústaða, um tilhögun viðtökunar og
eins ef þeir hafa athugasemdir fram að færa
eða óska frekari skýringa.
Reykjavík, 15. febrúar 2006
F.h. Félagsbústaða hf.
Sigurður Friðriksson frkvstj,
29.900.000
Falleg 4 herbergja 97,6 fm. sérhæð í tvíbýli
með sérinngangi auk 31,4 fm. bílskúrs á mjög
góðum stað. Samtals 129 fm. MÖGULEIKI Á
STÆKKUN.
Fr
um
Tunguvegur - 108 Rvk
Framleiðsla/pökkun
Starfsmaður í
grænmetisvinnslu
Hollt og Gott ehf. óskar eftir að ráða starfsmann
til starfa í vinnslu fyrirtækisins í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Máni Ásgeirsson
framkvæmdastjóri í síma 575-6051 eða
Gunnlaugur Reynisson, framleiðslustjóri í síma 575-6054.
Mat á umhverfisáhrifum
– Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að hitaveita í
Grundarfirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum
samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr.
106/2000 m.s.br.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Lauga-
vegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á
heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráð-
herra og er kærufrestur til 15. mars 2006.
Skipulagsstofnun
ATVINNA
49-54 smáar 14.2.2006 16:12 Page 8