Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 55
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2006 19
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.838 +1,61% Fjöldi viðskipta: 1.096
Velta: 9.565 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 54,50 +1,50% ... Alfesca 4,05 +0,00% ... Atorka 6,15
-0,80% ... Bakkavör 52,40 +1,40% ... Dagsbrún 5,98 +2,60% ... FL Group 27,70 +6,10% ...
Flaga 3,82 +0,00% ... Íslandsbanki 22,60 +5,10% ... KB banki 996,00 +0,20% ... Kögun 64,80
+0,60% ... Landsbankinn 29,60 +1,70% ... Marel 63,20 -2,60% ... Mosaic Fashions 18,00
+0,60% ... Straumur-Burðarás 21,10 +1,40% ... Össur 105,50 +2,90%
MESTA HÆKKUN
FL Group 6,13%
Íslandsbanki 5,12%
Tryggingam. 3,03%
MESTA LÆKKUN
Marel 2,62%
Atorka 0,81%
Icelandic Gr. 0,58%
Umsjón: nánar á visir.is
Ísland er sjötta ríkasta land í heimi
samkvæmt nýrri könnun OECD.
Listinn er birtur sem vísitala þar
sem meðaltalið er hundrað stig
og var Ísland með tuttugu og þrjú
prósent hærri tekjur á mann en
meðaltalið.
Lúxemborg er sem fyrr í efsta
sæti, en þar eru meðaltekjur tæp-
lega tvöfalt hærri en að meðaltali
í ríkjum OECD. Norðmenn eru í
öðru sæti og hafa tekið fram úr
Bandaríkjunum. Bandaríkjamenn
sitja nú í þriðja sæti, Írar í fjórða
og Svisslendingar í því fimmta.
Danir narta í hæla okkar
Íslendinga í sjöunda sæti. Svíar
eru í ellefta sæti og Finnar í því
fimmtánda.
Við útreikning vísitölunnar
er stuðst við verga þjóðarfram-
leiðslu á mann að teknu tilliti til
kaupmáttar. -jsk
Ísland sjötta
ríkasta landið
Hæstu meðaltekjur á mann sam-
kvæmt lista OECD
1 Lúxemborg 220
2 Noregur 146
3 Bandaríkin 144
4 Írland 133
5 Sviss 123
6 Ísland 122
7 Danmörk 118
8 Holland 117
9 Austurríki 117
10 Kanada 115
Leyfilegur loðnukvóti til íslenskra
skipa er sem stendur hundrað og
fimmtíu þúsund tonn sem telst mjög
lítið í samanburði við afla á vetr-
arvertíð síðustu ára. Þetta hefur
komið illa við mörg fyrirtæki í
sjávarútvegi, enda ljóst að um veru-
legan tekjusamdrátt að ræða. Ekki
hjálpar hátt gengi krónunnar held-
ur til og eiga margir mikið undir að
kvótinn verði aukinn enn frekar.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum, segir ljóst
að ástandið komi til með að hafa
gríðarleg áhrif á rekstur margra
fyrirtækja og þá sérstaklega loðn-
ubræðslurnar. Þar sé mikill fastur
kostnaður og höggið þyngst „Pyngj-
an kemur til með að léttast hjá
sumum, og alls ekki víst að allir geti
staðið við greiðslur.“
Vinnslustöðin gaf nýlega út
uppgjör fyrir fjórða ársfjórðung
2005 og nam tap félagsins þrjátíu
og átta milljónum króna, en grein-
ingardeild Íslandsbanka hafði gert
ráð fyrir rúmlega tuttugu milljóna
króna hagnaði. Greiningardeild KB
banka telur horfur dökkar og spáir
verulegri tekjurýrnun sjávarút-
vegsfyrirtækja. -jsk
Kemur verst niður á bræðslunum:
Lítill loðnukvóti er áfall
LOÐNU LANDAÐ VIÐ GRINDAVÍKURHÖFN Lítill loðnukvóti er sjávarútvegsfyrirtækjum áfall.
Greiningardeildir bankanna telja horfur dökkar.
Greining Íslandsbanka spáir því
að ávöxtunarkrafa verðtryggðra
bréfa muni ekki hækka meira til
loka ársfjórðungsins og jafnvel
halda áfram að lækka þegar nær
dregur mars. Nokkur viðsnún-
ingur varð á skuldabréfamarkaði
í síðustu viku þegar krafa verð-
tryggðra bréfa tók að lækka eftir
nánast samfellda hækkun frá því
í janúar.
Það vakti athygli að þróunin
hélt áfram eftir birtingu vísitölu
neysluverðs en vísitalan lækkaði
milli mánaða. Það ætti að draga
úr áhuga á verðtryggðum bréf-
um og þrýsta kröfunni upp á við.
Hugsanlega hefur áhrif að KB
banki tilkynnti um útgáfu verð-
tryggðra skuldabréfa með láns-
hæfismat Aaa í vikunni. Útgáfan
er ætluð til að fjármagna íbúðalán
bankans og er ætlunin að gefa út
62 milljarða króna með mögu-
leika á stækkun útgáfunnar í 200
milljarða. Með þessu munu útlán
bankanna koma fram í framboði
á skuldabréfamarkaði sem ætti
að setja þrýsting til hækkunar
kröfu verðtryggðra bréfa. Hins
vegar gæti þetta einnig dregið úr
trú markaðarins á því að íbúða-
lán banka verði fjármögnuð í
samvinnu við Íbúðalánasjóð og
því má draga þá ályktun að það
muni draga verulega úr framboði
íbúðabréfa. - hhs
Lækkun ávöxt-
unarkröfu
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI