Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 71
15. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR34
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tónlistarmaðurinn Hörður Torfason er að vinna að útgáfu fjögurra platna.
Þar af eru tvær þeirra endurútgáfur.
Önnur platan sem hann ætlar að endur-
útgefa heitir Tabú og var mjög umdeild
þegar hún kom út í byrjun
níunda áratugarins.
Einnig ætlar Hörður
að gefa út plötu frá
tónleikum sem voru
haldnir honum til
heiðurs síðastliðið
haust og þóttu heppn-
ast mjög vel.
Næturlífið í Reykjavík heldur áfram
að blómstra og framundan er opnun
tveggja nýrra staða í miðborginni.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir nokkru hafa nýir eigendur
tekið við lyklavöldunum á 22 og þar
er nú verið að vinna nótt sem nýtan
dag við að endurbæta staðinn.
Það er Gunnar Már Þráinsson,
sem hefur verið innanhandar á
Óliver, sem hefur sölsað undir sig
þennan fornfræga stað en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
verða gerðar gagngerar breytingar
á rekstri staðarins sem á að höfða
til sem flestra. Vonast er til að dyrn-
ar muni opnast um miðjan mars.
Glöggir vegfarendur hafa tekið
eftir því að rekstri Pasta Basta á
Klapparstígnum hefur nú verið
hætt. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins kemur þar nýr stað-
ur og aðilar tengdir bæði Óliver
og 22 hafi keypt hann en þar mun
víst bætast ný vídd inn í íslenskt
skemmtanalíf.
Heimildir blaðsins herma að
þarna verði útiveitingahús þar sem
fólk geti keypt „picknick“-körfur
og drukkið rauðvín og borðað osta
utandyra þegar þannig viðrar á
íslenskum sumarnóttum. Helsta
nýjungin yrði þó sú að eldhúsið
yrði opið langt fram á nótt en oft
hefur það reynst svöngum erfitt að
fá góðan mat seint á kvöldin þegar
næturbröltinu lýkur.
-fgg
ÓLIVER RISARNIR Þeir Arnar Þór og Gunnar Már hafa gert góða hluti með Óliver og hafa í
hyggju að færa út kvíarnar. FRÉTTABLAÐIÐ / HEIÐA
Nýir kóngar í Reykjavík?
LÁRÉTT
2 þurrka út 6 frá 8 ríki dauðra 9 loftþrýst-
ieining 11 gangþófi 12 brellur 14 kven-
vargur 16 tveir eins 17 skordýr 18 rá 20
ryk 21 óskipt.
LÓÐRÉTT
1 plat 3 íþróttafélag 4 sár 5 fiskur 7 heilla-
drjúgur 10 ástæður 13 útdeildi 15 sæmd
16 espa 19 málmur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 afmá, 6 af, 8 hel, 9 bar, 11 il, 12
brögð, 14 skass, 16 ææ, 17 fló, 18 slá, 20
im, 21 allt.
LÓÐRÉTT: 1 gabb, 3 fh, 4 meiðsli, 5 áll, 7
farsæll, 10 rök, 13 gaf, 15 sómi, 16 æsa, 19
ál.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Nei, það er bara nokkuð rólegt hjá
mér núna,“ segir Baldvin Jónsson,
skipuleggjandi sælkerahátíðar-
innar Food & Fun sem stendur yfir
dagana 22. til 25. febrúar. „Það fer
vissulega mikil vinna í þetta, en
þetta orðin ágætis rútína. Ég og
Siggi Hall förum að taka á móti
blaðamönnum og svona núna.“
Aö sögn Baldvins tekur árlegan
viðburð sem þennan að minnsta
kosti fimm ár að festa sig í sessi, en
Food & Fun hefur vaxið fiskur um
hrygg með hverju árinu sem líður.
„Í fyrsta lagi hefur almenningur
tekið þessu fagnandi. Það fóru um
fimmtán til tuttugu þúsund manns
út að borða á meðan hátíðin stóð
yfir í fyrra, sem er geysilega gott
í ljósi þess að þetta er yfirleitt
dræmasti tími ársins, svona í kjöl-
far þorrans. Þá hefur Food & Fun
virkað mjög vel sem hugmynd og
er orðið velþekkt meðal kokka
víðs vegar um heiminn. Nú er svo
komið að matreiðslumeistarar í
hæsta gæðaflokki bjóða sig fram
til að annað hvort elda eða dæma
í matreiðslukeppninni, bara til að
fá að vera með.
Ísland breytist í sannkallað
gósenland sælkerans á meðan á
hátíðinni stendur. „Við erum með
tólf ólíka matseðla frá jafnmörg-
um matreiðslumeisturum sem
elda hver með sínum hætti; allt
frá japönskum sushi-meistara til
norsks „gourmet“-kokks. Reykja-
vík breytist líka í alþjóðlega borg
á meðan á hátíðinni stendur, það
koma kokkar víðs vegar að frá
Evrópu og Ameríku, ferðamenn
og blaðamenn. Það er gaman að
upplifa þessa fjölbreyttu flóru.“
Baldvin er að allt árið til að
skipuleggja hátíðina og segir
starfið skemmtilegt en margslung-
ið. „Við ferðumst mikið og heim-
sækjum veitingahús erlendis. Við
erum líka alltaf að auka kröfurn-
ar ár frá ári og nú er svo komið að
við fáum matreiðslumeistara sem
okkur hefði ekki dreymt um að
kæmu fyrir nokkrum árum. Núna
kemur til dæmis matargagnrýn-
andi New York Times til 24 ára og
höfundur einnar mest seldu mat-
reiðslu bókar heims, Cooking for
Dummies.
Baldvin segist ekki vita til
þess að Food & Fun eigi sinn líka
í heiminum. „Þetta er allt annað
konsept en tíðkast og gengur út á
að kokkar fái að kynnast kolleg-
um frá ólíkum löndum og læra
af þeim og ekki síður kynna sér
íslenskt hráefni og náttúru. Það
er mikils virði fyrir okkur að fá
viðurkenningu frá bestu kokkum
heims þegar við kynnum vörur
okkar fyrir neytendum í versl-
unum. Þá kemur sér vel að þetta
er gott tækifæri fyrir Flugleiðir
til að kynna Ísland, því án þeirra
stuðnings væri þetta ekki hægt.“
Nánari upplýsingar um hátíð-
ina má finna á heimasíðu hennar,
foodandfun.is.
bergsteinn@frettabladid.is
BALDVIN JÓNSSON: SKIPULEGGUR FOOD & FUN Í FIMMTA SINN
Gósenland fyrir sælkera
BALDVIN JÓNSSON Hátíðinni hefur vaxið fiskur um hrygg með hverju ári og nú er svo
komið að kokkar víðs vegar að bjóða sig fram til að fá að vera með. FRÉTTABLAÐIÐ/ HEIÐA
Dagur er alvöru
maður
Það verður Dagur
B., hann er frábær.
Hann er alvöru maður.
Hann er klár og hann er
framsýnn og vinnur af
heilindum.
Ragnar Kjartansson
tónlistarmaður.
Treysti núverandi meiri-
hluta
Ég held að þetta verði
mjög spennandi og tví-
sýnt. Ég held að þessi
meðbyr sem er með Sjálf-
stæðisflokknum muni að
einhverju leyti ganga til
baka og fari yfir á Samfylk-
inguna og einhverja hinna
flokkanna. Mér finnst að
margt megi betur fara en
samt treysti ég núverandi
meirihluta betur.“
Hilmar Oddsson, leik-
stjóri.
Dagur líklegur
Ætli það verði ekki bara
Dagur. Ég er reyndar Hafn-
firðingur þannig að þetta
skiptir mig ekki miklu
máli. En ef maður horfir á
hvernig þetta prófkjör fór
þá virðist Dagur ætla að
verða sigursæll.
Íris Kristinsdóttir söng-
kona.
ÞRÍR SPURÐIR - LÍNUR ERU TEKNAR AÐ SKÝRAST FYRIR BORGARSTJÓRNARKOSNINGARNAR
Hver verður næsti borgarstjóri í Reykjavík?
HRÓSIÐ
...fær Hjördís Reykdal Jónsdóttir
á Blómaverkstæði Binna fyrir
að sjá rómantískum sálum fyrir
rósum á Valentínusardaginn, sem
og aðra daga.
Bart Cameron, ritstjóri tímaritsins Reykjavik Grapevine, er frekar
óhress með leikstjórann Baltasar
Kormák þessa dagana en Baltasar tók
sig til og fleygði öllum eintökum nýjasta
tölublaðs tímaritsins út af Kaffibarnum.
Baltasar er sem kunnugt er einn eig-
enda Kaffibarsins og kærði sig víst ekk-
ert um að Grapevine lægi á glámbekk
á barnum þar sem tímaritið hafði
áður birt dóm, sem honum var ekki að
skapi, um kvikmynd hans A Little Trip
to Heaven. Berin eru því greinilega súr
þó myndin hafi fengið prýðilega dóma í
öðrum íslenskum fjölmiðlum og gengið
vel í kvikmyndahúsum. Þá eykur það
varla líkurnar á því að um heilt muni
gróa á milli Baltasars og Grapevine að
utanríkisþjónustan tók sig til og dreifði
tölublaði Grapevine með dómnum á
öll sendiráð Íslands á erlendri grundu
og því vandséð að Grapevine fái þar
inni að nýju eftir að utanríkisráðuneytið
fór að bera bíódóminn útlæga út um
allan heim. Baltasar getur þó huggað
sig við það að hann er vanur að synda
gegn straumnum og ritstjórn Grapevine
á það til að fara fram úr sér í pólitískri
rétthugsun. Nærtækasta dæmið um
þetta er skopteikning sem birtist í tölu-
blaðinu sem Baltasar henti á haugana
þar sem DV og fleiri fjölmiðlum, sem
birt hafa skopmyndir
Jótlandspóstsins
af Múhameð
spámanni, er líkt
við nasista sem
berjast fyrir mál-
frelsi. fb/þþ
Hefur
sé› DV
í dag?
flú
Garðar Thor Cortes
Syngur í
Höllinni
með
breskri dívu
2x10 14.2.2006 21:21 Page 1