Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2006 5
Gönguferð um
Cinque Terre
FERÐASKRIFSTOFAN ÍSLANDSVINIR
LEGGUR ÍTALÍU UNDIR FÓT ÞAR
SEM GENGIÐ VERÐUR UM ÞORPIN Í
CINQUE TERRE.
Þann 24. til 31. maí ætlar ferða-
skrifstofan Íslandsvinir með Sigrún
Elefsen sem fararstjóra að ganga um
ströndina og þorpin í Cinque Terre
á Ítalíu. Göngusvæðið er vel geymd
ferðaperla og gefur öðrum þekktari
göngusvæðum ekkert eftir.
Cinque Terre heitir eftir þorpunum
fimm, Monterosso, Veranazza, Corn-
iglia, Manarola og Riomaggiore en
þorpin hanga utan í bröttum hlíðum
við ströndina sunnan við Genúa. Á
milli þorpanna liggur fjöldi göngu-
stíga, ýmist um þverhnípta kletta
eða grænar hæðir þaktar vínviði og
ólífuviðarlundum. Náttúrufegurðin er
óviðjafnanleg og göngugarpar munu
þræða sannkallað sögu og menning-
arsvæði og er þetta draumaferð fyrir
þá sem vilja blanda saman hæfilegri
útiveru og þægindum í fögru
umhverfi og fá ítalska stemmningu
beint í æð.
Skíðaganga um
Landmannalaugar
NÆSTU HELGI MUN FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS GANGA INN JÖKUGIL.
FÆRÐ MUN RÁÐA LEIÐUM.
Ferðafélag Íslands ætlar um næstu
helgi í vetrar- og gönguskíðaferð í
Landmannalaugar. Lagt verður af
stað á föstudagsmorgni klukkan hálf
átta. Stoppað verður í morgunkaffi í
Hálendismiðstöðinni á Hrauneyjum
þar sem lagt verður endanlega á
ráðin um hvaða leið verður gengin
á gönguskíðunum. Á laugardeginum
verður svo gengið annað hvort á
gönguskíðum eða skósólum inn í
Jökulgil og víðar. Ferðin er ætluð
fólki sem er í góðri þjálfun og hefur
reynslu af skíðagöngu. Áætlaður
göngutími hvern dag er um sex til
átta tímar. Fararstjóri verður Páll
Guðmundsson.
Aukaferð til Costa
del Sol í apríl
TIL AÐ MÆTA MIKILLI EFTIRSPURN
BJÓÐA HEIMSFERÐIR AUKAFERÐ TIL
COSTA DEL SOL UM PÁSKANA.
Heimsferðir mæta eftirspurn og
bæta við ferð til Costa del Sol
dagana 11. til 23. apríl. Costa del
Sol hefur löngum verið vinsæll
áfangastaður Íslendinga og seldust
ferðir þangað um páskana upp á
skotstundu. Ströndin á Costa del Sol
er ein sú hreinasta í Evrópu og þar
má einnig finna glæsilega gististaði
og gott úrval veitingastaða. Costa
del Sol er staðsett í suðurhluta
Andalúsíu sem er einn sögufrægasti
hluti landsins.
ferðir }
Reykjavík Excursions Kynn-
isferðir býður upp á ferð um
söguslóðir í nágrenni Reykja-
víkur.
Víða er farið í þessari ferð Kynn-
isferða um staði úr sögu Íslend-
inga en ferðin hefst á bænum þar
sem Egill Skallagrímsson ólst
upp. Fjallað er um sigra hans og
sögu á meðan ferðast er um Borg-
arfjörðinn. Við tekur svo saga
Gunnlaugs Ormstungu sem var
uppi þegar sonur Egils Skalla-
grímssonar, Þorsteinn, hafði tekið
við búinu.
Þaðan er farið í Reykholt og
fræðst um Snorra Sturluson og
verk hans, en Snorri bjó í Reyk-
holti nær allt sitt líf. Snorra-
stofa er skoðuð, Hraunfossar og
Deildartunguhver. Boðið er upp
á veitingar á veitingastaðnum
Tímanum og Vatnnu við Grímsá.
Ferðin endar svo á skoðunarferð
um Hvalfjörð.
Lagt er af stað klukkan 9.00
á mánudags-, þriðjudags-, mið-
vikudags- og sunnudagsmorgnum
frá hótelum og gistiheimilum
á Reykjavíkursvæðinu. Ferðin
miðast aðallega við erlenda ferða-
menn og er leiðsögnin á ensku.
Frekari upplýsingar má finna á
www.re.is.
Hringferð um söguslóðir
Snorralaug í Reykholti.