Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 34
MARKAÐURINN
Nadine Deswasiere á að baki
starfsferil sem flestir myndu
vera stoltir af. Eftir að hafa lokið
háskólanámi varð hún markaðs-
stjóri franskrar auglýsingastofu
þaðan sem hún landaði fyrsta
stóra starfinu sínu hjá einum af
kúnnum sínum, matvælaframleið-
andanum Campbell Soup. Eftir
fjögur ár þar krækti svissneska
stórfyrirtækið Nestlé í hana og
átti hún eftir að vinna ýmis störf
fyrir það á næstu sextán árum.
Hún byrjaði í Frakklandi þar sem
hún var yfir markaðs- og sölumál-
um og fluttist svo í höfuðstöðv-
arnar í Sviss þar sem hún varð
yfirmaður samrunaferla fyrir
sælgætisgerðir í Mið- og Austur-
Evrópu. Þegar hún kom til starfa
hafði Nestlé 5.000 tonn í útflutn-
ingi til þessa svæða. Þremur
árum síðar framleiddi Nestlé 150
þúsund tonn á svæðinu.
SEX BOÐLEIÐA HERTÆKNIN
Eftir þetta góða gengi var Nadine
flutt til Kuala Lumpur í Malasíu
þar sem hún sá um allar sæl-
gætisverksmiðjur á Suðaustur-
Asíusvæðinu. Hún byggði upp
sex lið skipuð fólki víðs vegar að
af svæðinu sem hafði bækistöðv-
ar í Malasíu. Liðin sköpuðu „sex
boðleiða hertæknina“ með það að
markmiði að nýta hverja boðleið
sem til væri, ekki bara til stór-
verslana. „Þessi leikaðferð geng-
ur út á að þú eigir að geta nálgast
vöruna hvar sem þú ert, nema
kannski á almenningsklósettum,“
segir Nadine hlæjandi.
Þessi aðferð gekk vel og Nestlé
varð helsti samkeppnisaðili
Cadbury’s á svæðinu. „Þetta eru
svæði sem heyrðu undir breska
samveldið. Súkkulaðibragð er
nokkuð sem maður elst upp með.
Ef þú ert vanur ákveðnu bragði
er mjög erfitt að breyta smekk
þínum,“ segir Nadine. „Við
náðum góðum árangri og fljótt
var ný verksmiðja opnuð. Þetta
gerðist allt saman mjög hratt,
sem er líka það skemmtilega við
Asíu. Fólkið þar er svo vinnu-
samt, klukkan 10 á kvöldið þurfti
ég nánast að pína það til að fara
heim til sín. Okkur tókst að koma
hugmyndum á koppinn og sjá
árangurinn af þeim mjög hratt,“
segir Nadine.
FRÁ MALASÍU TIL BÚLGARÍU
Nadine bjó í þrjú ár í Malasíu,
þangað til henni var falið að fara
til Búlgaríu þar sem Nestlé rak
verskmiðju sem til stóð að loka.
Hún fékk sex mánuði til að sjá
hvort möguleiki væri á að snúa
við rekstrinum. Það tókst og þegar
hún fór þaðan var Nestlé komið í
sextíu prósenta vöxt á svæðinu
og verksmiðjan fékk að standa.
„Þarna voru 600 manns í vinnu og
því gladdi þetta mig mjög mikið,“
segir Nadine og segist láta sig
varða hag fólksins þar sem hún er
við störf, ekki síst í löndum eins
og Búlgaríu þar sem þjóðfélags-
aðstæður eru erfiðar.
Eftir þessa frammistöðu lá
leið Nadine til Rússlands þar
sem hún varð framkvæmdastjóri
sælgætisgerðar og stjórnaði yfir
1.500 starfsmönnum. Meðal þess
sem hún gerði þar var að fækka
dreifingaraðilum úr 200 í 70. Það
olli mikilli reiði meðal þeirra og
þurftu Nadine og samstarfsfólk
hennar um tíma að hafa vopnaða
verði í kringum sig enda bár-
ust þeim reglulega hótunarbréf
frá birgjum sem töldu sig hlunn-
farna. Þeir sjötíu birgjar sem
eftir stóðu voru hvattir til þess
að fjárfesta í dreifingarleiðunum
og leggja sig alla í að ná til kúnn-
ans í stað þess að „bíða eins og
feitir kettir“ eftir því að varan
seldist.
GOTT SIÐFERÐI FRAMAR ÖLLU
Eftir að hafa lifað og starfað
víðs vegar um heim sneri Nadine
aftur til Frakklands. Í fyrra
ákvað hún svo að söðla um, eftir
sextán ár hjá Nestlé, og stofn-
aði sitt eigið ráðgjafarfyrirtæki
undir nafninu EthiConseil. Vísar
nafnið til góðs siðferðis og legg-
ur hún áherslu á að fyrirtæki nái
árangri og haldi áfram vexti á
ábyrgan og siðferðislegan hátt.
„Á þroskuðum mörkuðum er
oft erfitt að vaxa en það er vel
hægt, bæði með innri og ytri
vexti. Með innri vexti er til að
mynda hægt að vaxa í gegnum
nýsköpun. Algengt er að fólk hafi
hugmyndir en nýsköpun snýst
ekki bara um það. Hún snýst
um að koma réttu ferli í gang
til að þróa ákveðið kerfi fyrir
næstu árin. Og þarna kem ég
að með strategískum leiðbeining-
um sem ég þróa með fólki innan
fyrirtækisins sem utan þess.“
EthiConseil er jafnframt sérhæft
í dreifingunni. Í Frakklandi hafa
dreifingaraðilar mikið vald sem
getur falið í sér hættur fyrir lítil
og meðalstór fyrirtæki. „Ef þú
ert með minna þekkt vörumerki
og stórir dreifingaraðilar, líkt og
Carrefour, ákveða að skilja við
þig, þá ertu svo gott sem dauða-
dæmdur. Það er algengt að 30 til
40 prósent af sölu séu hjá þessum
stóru aðilum.“ Vinna Nadine felst
í að minnka áhættu fyrirtækj-
anna og finna aðrar dreifingar-
leiðir, eins og hún hafði gert í
sælgætisgeiranum.
EthiConseil veitir líka ráðgjöf
varðandi ytri vöxt, til dæmis með
landfræðilegum vexti, ekki ein-
ungis með útflutningi heldur með
því að framleiða erlendis. Nadine
leggur áherslu á að hún ráðleggi
fyrirtækjum ekki að loka verk-
smiðjum sínum í Frakklandi til að
flytja annað. Hluti af því að halda
áfram að vaxa sé hins vegar að
fara inn á nýja markaði. Á þess-
um mörkuðum komi fyrirtækin
með gæðastaðla og -venjur sem
séu viðkomandi landi til góðs og
hjálpi þeim í þróun sinni. Þannig
skapist aðstæður sem séu báðum
til góða.
HREIFST AF SKÝRRI STEFNU SÍF
En hvernig skyldi það hafa komið
til að Nadine gekk til liðs við
stjórn SÍF? „Mér var boðið viðtal
við forsvarsmenn SÍF varðandi
stjórnarsetu þar. Þegar ég hitti
Ólaf Ólafsson, stjórnarformann
SÍF, sá ég hversu áreiðanlega,
sterka og ekki síst skýra hug-
mynd stjórnendur höfðu um
stefnu fyrirtækisins - að færa
sig frá fyrra skipulagi og yfir á
arðbærari markaði. Það kveikti
hjá mér áhugann. Þetta er líka
það sem ég hef verið að gera allt
mitt líf og ég hef því ýmislegt til
málanna að leggja.“
Nadine tók þátt í hugmynda-
vinnu á nýju nafni SÍF, Alfesca.
Nýtt nafn félagsins er samsett úr
grísku og latínu. Alpha er fyrsti
stafur gríska stafrófsins, festiv-
us merkir veisla eða hátíð og
esca tengist matvælum. Nafnið á
að vera táknrænt fyrir sýn fyrir-
tækisins, sem er að verða leiðandi
fullvinnslu- og markaðsfyrirtæki
á tilbúnum neysluvörum. Nadine
segir að Íslendingar ættu að vera
stoltir af Alfesca. Það hafi komið
Frökkum í opna skjöldu þegar
þetta íslenska fyrirtæki yfirtók
Labeyrie, sem var meðal annars
númer eitt í Evrópu í foie gras
og laxi. Það hafi ef til vill verið
fyrsta skref SÍF í þá átt að vera
leiðandi á völdum sviðum mat-
væla.
KONUR ÞURFA AÐ BERJAST
GEGN STAÐALÍMYNDUM
Engum hefur dulist að hlutur
kvenna í stjórnum fyrirtækja er
heldur rýr. Sama er uppi á ten-
ingnum hvar í heiminum sem
mann ber niður. „Konur þurfa að
berjast,“ segir Nadine þegar hún
er spurð um hug sinn til þessa
málefnis. „Það er ekki boðlegt
hversu fáar konur eru í stjórnum
og æðstu stjórnunarstöðum fyrir-
tækja, ekki síst þegar litið er til
þess hversu ráðandi konur eru
í kaupum á flest-
um neysluvörum.
Konur eiga ekki
að sætta sig við
staðhæfingar á
borð við að þetta
sé til komið af því
við þurfum að eiga
og sjá um börnin.“
Hún bendir á að
í dag hafi konur
alla burði til að
takast á við sömu
störf og karlar.
Þær hafi réttu
gráðurnar og
rétta bakgrunninn og um leið
og þær heyri staðhæfingar af
þessu tagi þurfi þær að rísa gegn
þeim. „Þetta er bara spurning um
skipulagningu, það er til dæmis
hægt að hafa fóstru á heimilinu.
Það þýðir ekki að þú sért slæm
móðir,“ segir Nadine, sem sjálf
á tvær dætur með búlgörskum
eiginmanni sínum.
Hefur hún sjálf fundið fyrir
fordómum af þessu tagi? „Já,
auðvitað, ég hef barist gegn þess-
um hugmyndum allt mitt líf. Það
er sérstaklega svo margt sem
ekki er sagt og það er það versta.
Það er svo erfitt að eiga við það
sem liggur undir niðri,“ segir
Nadine. Svo er hún þotin á kynn-
ingu nýja nafnsins en bætir við að
lokum að það sé mikilvægt fyrir
alla að vera vel á verði gagnvart
umhverfi sínu. Þetta sé bara eitt
atriði í viðbót sem konur þurfi að
taka með í reikninginn.
15. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR10
� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �
F R É T T A S K Ý R I N G
ÓLAFUR ÓLAFSSON, AÐALSTEINN INGÓLFSSON, NADINE DESWASIERE, GUÐMUNDUR HJALTASON OG HARTMUT M.
KRÄMER Í STJÓRN ALFESCA Nadine Deswasiere og Hartmut M. Krämer voru kosin í stjórn SÍF í mars 2005 en bæði hafa þau mikla
reynslu af sölu- og markaðsmálum á smásölumarkaði víðs vegar um heim.
JAKOB ÓSKAR SIGURÐSSON, FORSTJÓRI SÍF SEM NÚ
HEITIR ALFESCA SÍF fékk nýtt nafn á föstudaginn. Nafnið er
táknrænt fyrir sýn fyrirtækisins, sem er að verða leiðandi full-
vinnslu- og markaðsfyrirtæki á tilbúnum neysluvörum.
Franska ofurkonan í stjórn Alfesca
Í stjórn hins nýnefnda Alfesca situr franska athafnakonan Nadine Deswasiere. Hún var stödd hér
á landi í vikunni sem leið til að vera viðstödd stjórnarfund og kynningu á nýju nafni fyrirtækisins.
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir krækti sér í spjall við konuna sem státar af glæstum starfsferli.
Nadine bjó í þrjú
ár í Malasíu,
þangað til henni
var falið að fara
til Búlgaríu þar
sem Nestlé rak
verksmiðju sem
til stóð að loka.
Hún fékk sex
mánuði til að sjá
hvort möguleiki
væri á að snúa
við rekstrin-
um. Það tókst
og þegar hún
fór þaðan var
Nestlé komið í
sextíu prósenta
vöxt á svæðinu
og verksmiðjan
fékk að standa.