Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 22
[ ]Sumarbústaðaferðir með fjölskyldunni, vinunum eða saumaklúbbnum geta verið mjög skemmtilegar. Á veturna er tilvalið að skreppa í sumarbústað helgi og helgi.
„Við eigum að selja erlendum
ferðamönnum sérstöðu Ís-
lands og við eigum að stunda
sölumennskuna af metnaði og
fagmennsku. Myrkur, kuldi,
auðn, jarðhiti, gljúfur og grjót
getur verið afbragðs söluvara
– ef því er pakkað í réttar um-
búðir,“ segir Akureyringurinn
Sigurbjörg Árnadóttir.
Sigurbjörg þekkir vel til ferða-
mála, bæði í Finnlandi og á Íslandi
en hún hefur starfað sem ráðgjafi
hjá finnskum ferðaskrifstofum
auk þess sem hún hefur skrifað
einu ferðahandbókina um Ísland
sem til er á finnsku. Sigurbjörg
rekur nú ráðgjafafyrirtækið
Bjálkann og stýrir verkefninu
Knörrinn, hafið og síldin, en
það er samvinnuverkefni Norð-
manna og Íslendinga í menningar-
tengdri ferðaþjónustu, atvinnu- og
byggðaþróun.
Sigurbjörg segir að Finnum
hafi á síðustu tuttugu árum tekist
að stemma stigu við fólksflótta úr
strjálbýli Lapplands og gera land-
ið að vinsælum áningarstað ferða-
manna. „Við eigum að læra af
Finnum hvernig þeir vinna saman
og hafa með samstöðu mótað sér
skýra ímynd. Um þrjár millljónir
ferðamanna sækja árlega Lapp-
land heim til að njóta ósnortinn-
ar náttúru og upplifa norðurljós,
myrkur, kulda, kyrrð, nætursól
og önnur náttúru- og menningar-
auðæfi Finna,“ segir Sigurbjörg.
„Lappland er í hugum þessara
ferðalanga landið þar sem hinn
eini sanni jólasveinn hefur aðset-
ur, landið þar sem norðurljósin
dansa á veturna og sól sest ekki á
sumrin. Land friðsældar þar sem
þú getur verið einn með sjálfum
þér í áþreifanlegri kyrrð, fjarri
hávaðamengun og neonljósum
stórborganna. Sama lýsing gæti
átt við um Ísland en af hverju
koma þessir ferðamenn ekki hing-
að?“ spyr Sigurbjörg.
Stórt er spurt en Sigurbjög
telur sig hafa svarið. „Ísland
skortir vel skilgreinda ímynd
sem hægt er að selja. Hver höndin
vinnur gegn annarri í ferðaþjón-
ustunni og skilningur og stuðning-
ur stjórnvalda er sami og enginn.
Sveitarstjórnarmenn trúa margir
hverjir ekki á ferðaþjónustu sem
alvöru atvinnugrein og þeir sem
sinna ferðaþjónustunni þjást af
metnaðarleysi og skorti á sjálfs-
gagnrýni.“
Sigurbjörg segir að í desem-
ber flykkist fólk til Lapplands til
að berja augum hinn eina sanna
jólasvein. „Íslendingar eiga falin
verðmæti í sínum 13 jólasveinum.
Þessir yndislegu og prakkaralegu
hrekkjalómar hafa mikla sérstöðu
á meðal jólasveina heimsins og
það eigum við tvímælalaust að
nýta okkur,“ segir Sigurbjörg.
Samvinna er lykilatriði að mati
Sigurbjargar ef fjölga á erlendum
ferðamönnum til Íslands. „Ferða-
þjónusta er ímynd sem þú selur og
það verða allir að standa saman
að baki þeirri ímynd þannig að
hún sé sönn. Stjórnvöld eiga að
leggja línurnar varðandi ímynd-
ina en síðan þarf hvert svæði, eða
sveitafélag, að skilgreina ímynd
sína í samræmi við heildarímynd-
ina. Hvert einasta fyrirtæki þarf
einnig að skapa sér sína sérstöðu;
finna sína eigin ímynd. Öll heildin
þarf síðan að hljóma eins og vel
stillt hljóðfæri. Takist okkur þetta
getur íslensk ferðaþjónusta orðið
að þeirri stóriðju sem margir bera
væntingar til,“ segir Sigurbjörg.
kk@frettabladid.is
Í steinum er falin stóriðja
Íslensku jólasveinarnir, myrkrið, norðurljósin, fjöllin, heita vatnið og auðnin eru góð söluvara að mati Sigurbjargar; að því gefnu að umbúð-
irnar séu réttar.
Ísafold Travel býður upp á 8
daga skíðaferð á Snowbird- og
Alta-svæðin í Utah.
Örfá sæti eru laus í skíðaferð til
Utah dagana 20.-27. mars á vegum
Ísafold Travel. Dvalið verður á
Snowbird og Alta svæðunum í
nágrenni Salt Lake City, en þau
eru talin vera mjög falleg og
skemmtileg skíðasvæði. Þar eru í
boði framúrskarandi aðstæður til
skíðaiðkunnar enda voru Ólymp-
íuleikarnir haldnir þar árið 2002.
Fyrir utan skíðaiðkunina er
möguleiki á heimsókn í byggðir
Vestur-Íslendinga í Spanish Fork.
Farið verður til Sundance þar sem
leikarinn Robert Redford hefur
byggt upp útivistar- og menning-
arsvæði eftir sínum hugmyndum
og umhverfisstefnu og í leiðinni
fræðst um hans hugmyndastefnu.
Einnig er hægt að fara í áhuga-
verða skoðunarferð um ólympíu-
svæðið í Park City og Salt Lake
City 26. mars fyrir þá sem hafa
hug á að stíga af skíðunum, auk
fjölda annarra uppákoma.
Innifalið í verði er íslensk far-
arstjórn, gisting í tvíbýli með baði,
passi sem gildir á Snowbird-, Alta,
Solitude- og Brighton-svæðin og
flug til og frá Salt Lake City.
Átta daga skíðaferð til Utah
Gott er að fara á skíði í Utah.
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar