Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 65
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
Viltu miða?
9. hver vinnur
Vinningar eru: Bíómiðar fyrir 2 • DVD myndir • Tölvuleikir og margt fleira
Sendu SMS skeytið JA UWF á númerið 1900 og þú gætir unnið miða fyrir tvo.
FRUMSÝND 16. FEBRÚAR
Útgefendur plötunnar Hjálpum
þeim, sem var gefin út fyrir síð-
ustu jól til styrktar hjálparstarfi
í Pakistan, afhentu Hjálparstarfi
kirkjunnar ávísun upp á rúmar
átta milljónir króna í gær.
Það var Shabana Zaman frá
Norður-Pakistan sem hefur búið
hér á landi í tólf ár sem tók við
framlaginu fyrir hönd landa
sinna. Það voru DV, Hagar, Saga-
film og fulltrúar tónlistarfólks
sem afhentu ávísunina í Grens-
áskirkju.
„Menn höfðu áhyggjur vegna
teikningamálsins, að það gæti
verið erfitt með hjálparstarf í
Pakistan, en þar halda öll verk-
efni áfram eins og ekkert hafi í
skorist,“ segir Einar Karl Har-
aldsson, stjórnarformaður Hjálp-
arstarfs kirkjunnar.
Tíu þúsund plötur með Hjálp-
um þeim voru gefnar út fyrir
jólin og allir sem komu að gerð
hennar gáfu vinnu sína. Upplagið
seldist upp á nokkrum dögum og
skilaði tíu milljónum króna með
virðisaukaskatti. Fjögur þúsund
plötur til viðbótar hafa verið
gefnar út en afraksturinn af því
verður gerður upp síðar.
Einar segist sjá eftir þessum
tveimur milljónum sem fara í
virðisaukaskattinn. „Við reynd-
um tvisvar á síðasta ári að sækja
um framlag til ríkisstjórnarinn-
ar vegna þessa hjálparstarfs en
fengum ekki. Í staðinn erum við
nú farnir að styrkja ríkið með
framlögum sem áttu að fara til
hjálparstarfs. Mér finnst það
skjóta svolítið skökku við að við
þurfum að greiða í ríkissjóð af
söfnunarfé,“ segir hann.
ACT, Alþjóðaneyðarhjálp
kirkna hefur á síðustu þremur
mánuðum dreift 19.000 tjöldum,
6.130 vatnsheldum dúkum og
tæplega 50.000 peysum og tepp-
um í Pakistan. Auk þess rekur
ACT búðir fyrir flóttamenn,
kemur upp hreinlætisaðstöðu,
útvegar vatn, sér börnum fyrir
menntun og leiðir áfallahjálp.
Kemur söfnunarféð því að mjög
góðum notum.
-fb
Átta milljónir króna
til nauðstaddra
ÁVÍSUNIN AFHENT Ávísun upp á rúmar átta milljónir króna var afhent í Grensáskirkju í gær.
Rennur peningurinn til hjálparstarfs í Pakistan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Rapparinn Kanye West hefur viður-kennt að hann sé háður kynlífi og
klámi og segist stunda kynlíf að minnsta
kosti fjórum sinnum á hverju kvöldi.
„Ég held að þetta sé vandamál hjá mér,
ég er háður kynlífi. Ég er alltaf að horfa
á klám,“ segir Kanye.
„Þegar ég býð stelpu
í heimsókn þá hef
ég alltaf kveikt á
klámi í sjónvarp-
inu. Ef hún vill
slökkva á því
þá segist ég
ekki vita hver
kveikti. En
ef hún segir
„Hmm, hvað
er þetta?“ þá
hef ég kveikt á
því,“ segir Kanye.
Kate Moss er hrædd um að hún sé að missa skammtímaminnið. „Kate
hefur miklar áhyggjur af minni sínu. Hún
er alltaf að gleyma hlut-
um,“ sagði heimildar-
maður. „Hún gleymir
hvert hún er að fara,
eftir að hún leggur
af stað. Þetta var
fyndið í byrjun
en nú er hún
orðin áhyggju-
full enda byrjaði
vandamálið
áður en hún
fór í meðferð
í Ameríku á
síðasta ári.“
Gwyneth Paltrow segist efast um að dóttir hennar Apple muni verða
leikkona eða söngkona eins og foreldrar
hennar í framtíðinni. „Hún gæti orðið
listamaður eða jafnvel
vísindamaður. Það
verður spennandi
að sjá því það er oft
sem börn leikara
vilja ekkert með
leikarastarfið hafa.
Ég mun að
sjálfsögðu styðja
hana hvað sem
hún ákveður
að taka sér fyrir
hendur,“ sagði
Gwyneth.
Nicole Kidman og nýi kærastinn, Keith Urban, mættu sem par á
Grammy-verðlaunahátíðina en hingað
til hafa þau ekki viður-
kennt samband sitt. Þau
héldust í hendur og
fylgdust með hátíðinni.
„Hann er gjörsamlega
heillaður af henni og
getur ekki hætt að
horfa á hana,“ sagði
heimildarmaður. „Nicole
hefur ekki átt sjö dagana
sæla í ástamálum og
því gaman að sjá hana
svo glaða. Þegar Keith
tók á móti verðlaun-
unum sem besti
kántrísöngvarinn
var hún svo stolt
og gat ekki leynt
ánægju sinni.“
Hljómsveitirnar Skakkamanage,
Borko, Hudson Wayne og Seaber
héldu fyrri tónleika sína af tvenn-
um í Berlín í Þýskalandi í gær.
Síðari tónleikarnir verða á laugar-
daginn.
Tónleikarnir í gær voru haldn-
ir í klúbbnum N.B.I en hinir síðari
verða í Zentrale Randlage. Báðir
klúbbarnir eru vel þekktir í Berlín.
Eru tónleikarnir haldnir undir yfir-
skriftinni Senjórinn, Isländische
Klugscheisser. Hljómsveitin Kim-
ono hefur haldið nokkra tónleika
í Berlín að undanförnu við góðar
undirtektir.
Tónleikar í Berlín
SKAKKAMANAGE Fjórar íslenskar hljómsveitir spila í Berlín í annað sinn á laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
„Cheaper by the
Dozen 2 er falleg
og skemmtileg
fjölskyldumynd,
sem heppnast
hreint ágætlega“
- MMJ Kvikmyndir.com
Sprenghlægilegt
framhald.
Steve Martin fer enn og
aftur á kostum
���
- Kvikmyndir.com
6 Tilnefningar
til Óskarsverðlauna
FU
N
�����
- L.I.B. Topp5.com
�����
- L.I.B. Topp5.com
�����
- S.K. DV
�����
- S.V. MBL
�����
- M.M.J. Kvikmyndir.com
VINSÆLASTA MYNDIN Á
ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ
VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM YKKUR HENTAR
ZATHURA kl. 6 B.I. 12 ÁRA
FINAL DESTINATION kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
WALK THE LINE kl. 8 B.I. 12 ÁRA
FUN WITH DICK AND JANE kl. 6 og 10.20
MRS. HENDERSON kl. 5.45, 8 og 10.15
WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
MEMOIRS OF GEISHA kl. 9
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6 B.I. 14 ÁRA SÍÐASTA SÝNING
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
HLAUT
GOLDEN GLOBE
SEM BESTA MYND ÁRSINS,
BESTI LEIKARI OG LEIKKONA ÁRSINS3
tilnefningar til
Óskarsverðlauna
M.A. BESTI LEIKARI OG BESTA LEIKKONA ÁRSINS5
„... Walk the Line er eins og klettur,
sterk ástarsaga og mannlífsdrama sem
lætur engan ósnortinn.“ - SV MBL
- MMJ Kvikmyndir.com
„Enginn ætti að láta Walk
the Line framhjá sér fara
því myndin er auðgandi fyrir
augun, eyrun og hjartað.“
- VJV topp5.is
ÞEGAR RÖÐIN KEMUR
AÐ ÞÉR ÞÁ FLÝRÐU EKKI
DAUÐANN!
SVAKALEGUR SPENNUTRYLLIR
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna
M.A. JUDY DENCH BESTA LEIKKONA
Í AÐALHLUTVERKI2
SÝNINGIN VERÐUR AÐ HALDA ÁFRAM,
EN FÖTIN VERÐA AÐ FJÚKA
ÆVINTÝRIÐ ER RÉTT AÐ BYRJA!
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
- LIB, Topp5.is
- SV, MBL
„...Zathura er frábær
fjölskylduskemmtun,
skemmtileg ekki aðeins
fyrir börn og unglinga
heldur einnig fyrir
foreldra“
- DÖJ - kvikmyndir.com
„Þetta er frábær mynd
sem allir ættu að sjá...“
- ÓÖH DV
ZATHURA m/íslensku tali kl. 3.40 og 5.50 B.I. 10 ÁRA
ZATHURA m/ensku tali kl. 5.45 og 8 B.I. 10 ÁRA
FINAL DESTINATION 3 kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
WALK THE LINE kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
FUN WITH DICK AND JANE kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 10.15 B.I. 12 ÁRA
CHEAPER BY TE DOZEN 2 kl. 3.45
„..Zathura fínasta
fjölskylduskemmtun sem
býður eldri áhorfendum
upp á ágætis afþreyingu
og þeim yngri upp á
saklausa ævintýra- og
spennumynd“
-VJV Topp5.is
„Mrs. Henderson Presents er
hægt að lýsa með einu orði;
hún er yndisleg. Myndin er
frábær skemmtun, uppfull af
skemmtilegum samtölum og
hnyttnum orðaskiptum ásamt
skemmtilegum söng og dans.
Þetta er mynd sem þið viljið
ekki missa af.“
- DÖJ Kvikmyndir.com