Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 36
MARKAÐURINN 15. FEBRÚAR 2006 MIÐVIKUDAGUR12
Ú T T E K T
Horft var til framtíðar á nýafstöðnu
Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands, en þó
ekki lengra en til ársins 2015. Á þinginu
var kynnt metnaðarfullt markmið um að
árið 2015 yrði landið það samkeppnishæf-
asta í heimi, en síðustu ár höfum við mjak-
ast æ ofar á lista þjóða þar sem borin er
saman samkeppnishæfni. Kynnt var skýrsla
framtíðarhóps Viðskiptaráðs og Háskólans
í Reykjavík þar sem fjallað er um hvað
þurfi til svo að þessu mark-
miði verði náð, en kallaður
var til fjöldi forystumanna úr
viðskiptalífinu, háskólum og
menningarstofnunum til að
ræða framtíðina.
Jón Karl Ólafsson, fráfar-
andi formaður Viðskiptaráðs,
áréttaði reyndar í ræðu sinni
á viðskiptaþingi hversu erfitt
það væri að ætla að spá fyrir
um framtíðina. Hann benti
á að fyrir um tíu árum síðan
hefði verið talið fásinna að
spá því að á áratug mætti tvö-
falda fjölda háskólanema, að
árlegur hagnaður viðskipta-
bankanna næmi um tíu pró-
sentum af landsframleiðslu,
að Ísland yrði fjórða samkeppnishæfasta
land í heimi eða að erlendir starfsmenn
íslenskra fyrirtækja yrðu meira en fimmt-
ungi fleiri en næmi samanlagðri íbúatölu
Kópavogs, Seltjarnarness, Garðabæjar,
Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar, Grindavíkur,
Akraness, Ísafjarðar, Vestmannaeyja og
Reykjanesbæjar. Hann sagðist hins vegar
telja að í framtíðarskýrslu Viðskiptaráðs
væru sett fram raunhæf markmið. Þá sagði
hann ráðið myndu beita sér fyrir því að
á þessu ári færi fram umræða á ýmsum
sviðum þjóðlífsins um langtímastefnumótun
fyrir landið.
UMBÆTUR Í STJÓRNKERFINU
Í framtíðarskýrslunni er lögð áhersla á ein-
földun stjórnkerfisins og að áfram verði
haldið með skattalækkanir sem skilað hafi
miklum og góðum árangri í eflingu atvinnu-
lífsins.
„Innleiðing EES-samningsins hefur haft
mjög mikil og ráðandi áhrif á starfsumhverfi
íslenskra fyrirtækja. Að sama skapi má slá
því föstu að skattalækkanir á fyrirtæki hér á
landi úr 30 í 18 prósent voru sennilega bestu
og árangursríkustu aðgerðir stjórnvalda í
seinni tíð. Með aðgerðinni sýndu stjórnvöld
þá víðsýni og stefnufestu, sem nauðsynleg
er til að betrumbæta rekstrarumhverfi fyr-
irtækja í landinu og bæta þannig samkeppn-
isstöðu þeirra, sérstaklega á alþjóðavett-
angi,“ sagði Jón Karl í ræðu sinni á þinginu.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka,
bætti um betur í pallborðsumræðum og sagði
stjórnvöld eiga að taka þann pól í hæðina
að lofa því að hér yrðu alltaf lægstir fyrir-
tækjaskattar í Evrópu. Hann gerði umbætur í
stjórnkerfinu einnig að umræðuefni og benti
á að sumar þeirra væru tiltölulega einfaldar
og ætti að vera auðvelt að kippa í liðinn. Hann
sagði til dæmis alveg nauðsynlegt að stjórn-
sýslan yrði tvítyngd. „En það er skammarlegt
hvernig við stöndum í þeim málum í dag,“
sagði hann og benti á að ef laða ætti hingað
útlendinga með starfsemi sína þyrftu þeir
að geta sinnt erindum og áttað sig á greiðan
hátt á því umhverfi sem rekstri þeirra væri
hér búinn.
Á svipuðum nótum talaði
Jón Karl og benti á að á síð-
ustu fimm árum hefðu Danir,
Svíar, Hollendingar, Belgar,
Ástralar og Írar komið á víð-
tækum umbótum á skattkerfi
og rekstrarumhverfi fyrir-
tækja til að laða til sín aukna
starfsemi á sviði alþjóðlegra
fjármála. „Þjóðirnar hafa
gengið mislangt í umbótun-
um, en íslensk stjórnvöld
eiga að setja sér það metnað-
arfulla markmið að fylgjast
vel með þessari þróun og ná um það breiðri
sátt að ganga helst aldrei skemur en viðmið-
unarþjóðir okkar þegar kemur að umbótum
í stjórnsýslunni,“ sagði hann og taldi að hér
ætti að stefna að því að „draga vagninn í
alþjóðlegu samhengi, í stað þess að sigla
aðeins í kjölfar annarra þjóða.“
Framtíðarhópur Viðskiptaráðs segir
mikið svigrúm til fækkunar bæði ráðuneyta
og stofnana, en nú eru starfandi hér fjór-
tán ráðuneyti sem fyrir fara tólf ráðherr-
ar. „Oft hafa stjórnmálamenn gengið fram
fyrir skjöldu með háleitar hugmyndir um
að sameina ráðuneyti og
fækka þeim. Aldrei hafa
slíkar hugmyndir náð fram
að ganga,“ segir í skýrslu
hópsins sem leggur til tvær
leiðir í fækkun ráðuneyta.
Önnur gerir ráð fyrir að
þeim verði fækkað í ellefu,
en hin að ráðuneytin verði
sjö: Forsætisráðuneyti;
dóms- og kirkjumálaráðu-
neyti; velferðarráðuneyti,
sem tæki yfir verkefni
félags-, heilbrigðis- og
Ísland framtíðarinnar verði í fararbroddi
Á næsta áratug sér framtíðarhópur Viðskiptaráðs fyrir sér að Ísland verði samkeppnishæfasta land í heimi. Til að af
þessu geti orðið þarf að gera ákveðnar breytingar, meðal annars skal þjóðin verða tvítyngd. Óli Kristján Ármannsson kynnti
sér framtíðarsýn Viðskiptaráðs. Þröskuldarnir á leiðinni eru sagðir dýrtíð og lágt hlutfall útflutnings í alþjóðaviðskiptum.
FISKVEIÐAR OG
FJÁRMÁLASTARF-
SEMI Á bak við
skipin má sjá glitta í
Seðlabankann. Á nýaf-
stöðnu viðskiptaþingi
var velt upp hugmynd-
um um grunnatvinnu-
vegi framtíðarinnar
og voru hugleiðingar
um að koma hér á fót
fjármálamiðstöð áber-
andi. Þá var og rætt
um nauðsyn þess að
afnema takmarkanir á
fjárfestingum útlend-
inga hér, svo sem í
sjávarútvegi.
MARKAÐURINN/VALLI
Ísland 18,0%
Hong Kong 17,5%
Chile 17,0%
Rúmenía 16,0%
Ungverjaland 16,0%
Litháen 15,0%
Lettland 15,0%
Búlgaría 15,0%
Írland 12,5%
Kýpur 10%
S K A T T A R Á F Y R I R T Æ K I
Samkvæmt upplýsingum
Viðskiptaráðs er í höfuðborginni
fólk frá 120 löndum. Hér fara á
eftir níu fjölmennustu hóparnir.
Pólverjar 430
Filippseyingar 400
Danir 360
Fv. Júgóslavía 340
Bandaríkjamenn 300
Taílendingar 270
Litháar 250
Þjóðverjar 200
Víetnamar 200
F Ó L K Í R E Y K J A V Í K
Í KENNSLUSTOFUNNI Fjallað er nokkuð ítarlega um
menntakerfið í skýrslu framtíðarhóps Viðskiptaráðs sem
kynnt var á viðskiptaþingi í síðustu viku. Eins viðruðu frum-
mælendur á þinginu skoðanir sínar á því hvernig málum
yrði best fyrir komið hér og töldu að efla þyrfti mennta-
kerfið. MARKAÐURINN/VALLI