Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2006
Flugumýri 28 · 270 Mosfellsbæ
Sími 544 2090 · Fax 544 2091
www.global-taeki.com
Global-tæki ehf. eru umboðsaðilar
fyrir Dieci á Íslandi
Bjóðum 35 mismunandi útfærslur af Dieci skotbómulyfturum sem sérsniðnar eru
að þörfum hvers og eins. Lyftihæð frá 6 metrum upp í 25 metra, með eða án
snúnings. Margskonar aukahlutir fáanlegir s.s. körfur, gafflar, kranar, vinnupallar,
gripklær og skóflur. Dieci hefur þróað og hannað skotbómulyftara frá árinu 1985
og er nú þriðji stærsti framleiðandi skotbómulyftara í heiminum.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf veita sölumenn okkar í síma 544 2090.
VIÐ TEYGJUM OKKUR
AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
Golfbílar …… Golfbílar……
LEXA: býður uppá golfbíla frá Bandaríkjunum, Bílarnir eru
uppgerðir af fagmönnum. Allir sem staðfesta pöntun fyrir 28. Febrúar
fá gashitara í bílinn að verðmæti 29.900 kr í kaupbæti
Lexa býður einnig uppá yfirbyggingar með rennihurðum á allar
tegundir Golfbíla, Kerrur fyrir golfbílinn og mikið úrval aukahluta
Lexa veitir alla almenna þjónustu fyrir Golfbílinn þinn,,
s.s. Skipta um olíu, reimar, kerti,þrif og fl.
Þeir sem eiga Pantaða bíla vinsamlegast staðfestið
pöntun fyrir 28 Febrúar.
E-Z-GO.....Club Car…..Yamaha…..Melex…..City Car.
Sími 897 1100
www.lexa.ws
Flestir hugsa um skutbíla sem
handhæga fjölskyldubíla fyrir
barnmargt fólk. Á bílasýningunni
í Chicago í vikunni sást klárlega
að Daimler-Chrysler og AMG
hafa tekið höndum saman um
að færa skutbíla í nýjar hæðir.
Sönnunargagnið er Mercedez
Benz R36 AMG.
Fyrir utan sportlegt og þokka-
fullt útlit er bíllinn hlaðinn bún-
aði sem kitlar stöðugt löngunina
til að fara aðeins hraðar. 503 hest-
afla vélin er hönnuð frá grunni
af AMG, sú fyrsta sem fyrir-
tækið setur frá sér. Rúmtakið
er 6,3 lítrar og togið er litlir 465
Nm. 7 gíra sjálfskiptingin miðlar
svo aflinu til hjólanna þannig að
bíllinn nær 0-100 á 5 sekúndum.
Og fyrir þá sem vilja að það sé
alvöru upplifun að skutla börn-
unum í skólann eða á skautaæf-
ingu eru hnappar í stýrinu til að
skipta um gíra – alveg eins og í
Formúlu 1 bíl.
Skutbíll nær
nýjum hæðum
AMG útgáfan af Mercedes
Benz R-class var afhjúpuð í
vikunni.
503 hestafla skutbíll frá Benz með hand-
bragði AMG.
Það kom mörgum á óvart þegar
Renault landaði báðum heims-
meistaratitlunum í Formúlu 1
kappakstrinum í fyrra. Liðið ætlar
sér þó stóra hluti á keppnistíma-
bilinu sem er skammt undan og
stefnir á að verja titlana og sanna
að úrslitin í fyrra voru engin til-
viljun. Nýlega kynnti liðið nýjan
R26 keppnisbíl sinn sem er tölu-
vert frábrugðinn þeim síðasta.
Vélin í R26 er 2,4 lítra V8 en
var í þeim gamla 3 lítra V10. Nýja
vélin er um 20% sparneytnari en
markmið breytinganna er meðal
annars að draga úr kostnaði. Þá
hefur bíllinn verið endurhannað-
ur með tilliti til loftmótstöðu og
gírkassinn er breyttur frá síðasta
keppnistímabili og á að hámarka
afköst vélarinnar.
Fyrir utan góða ökumenn
segja forráðamenn liðsins að
áreiðanleiki Renault-tækninnar
hafi verið lykillinn að sigrinum í
fyrra. Bilanir hafi ekki háð þeim
að sama skapi og öðrum liðum. Nú
er að sjá hvort nýi bíllinn standi
sig jafn vel.
Nýr Renault
F1 bíll
R26 er með minni mótor og
minni loftmótstöðu en fyrir-
rennari hans.
Nýi Renault Formúlu 1 bíllinn.
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 1