Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 43
MARKAÐURINN 19MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Og Vodafone kynnir
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
09
79
01
/2
00
6
Vodafone
World
MobileOffice
FRÁ OG VODAFONE
Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone, Síðumúla 28, í síma 599 9500. Einnig er hægt að senda tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is
Vodafone World er einfaldari og skýrari verðskrá í útlöndum fyrir
GSM áskrifendur í krafti öflugs samstarfs Vodafone fyrirtækja um
allan heim. Vodafone World gildir fyrir GSM notendur erlendis.
Vodafone World eru hluti af MobileOffice, heildstæðu þjónustuframboði Og Vodafone fyrir
viðskiptalífið sem gerir fólki mögulegt að miðla upplýsingum óháð stað og stund . Hraði, öryggi og
einfaldleiki eru einkunnarorð okkar í lausnum sem við bjóðum fyrirtækjum.
» Öllum heiminum er skipt upp í 5
verðsvæði.
» Skýr yfirsýn yfir verð í útlanda-
símtölum og einfaldur verð-
samanburður.
» Vodafone fyrirtækin eru alltaf
hagstæðari.
» Enginn kostnaður felst í skráningu
í Vodafone World.
» Veldu Vodafone í 36 löndum.
» Skráðu fyrirtækið þitt í síma
599 9500 eða á
www.ogvodafone.is
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Í hádeginu á mánudag var boðið til starfs-
mannafundar í matsal Skýrr við Ármúla
2 í Reykjavík. Á fundinum kynnti Hreinn
Jakobsson forstjóri að Skýrr hefði keypt
meirihluta í tölvufyrirtækinu EJS. Um
morguninn hafði Kögun, sem á Skýrr,
sent tilkynningu um kaupin til Kauphallar
Íslands.
Saman geta fyrirtækin boðið alhliða
þjónustu á sviði upplýsingatækni og eru
þau stærst þeirra tölvufyrirtækja sem
hér starfa. Fyrirtækin eiga sér bæði langa
sögu, því EJS (áður Einar J. Skúlason) var
stofnað árið 1939 sem skrifvélaverkstæði
og varð síðar að verslun og innflutnings-
og þjónustufyrirtæki fyrir skrifstofuvélar.
Skýrr var stofnað árið 1952, en 1. janúar
1996 tók hlutafélagið Skýrr yfir starfsemi
sameignarfélagsins Skýrsluvélar ríkisins
og Reykjavíkurborgar.
„Við erum nú búin að kaupa þessi 58,7
prósent og í gang fer áreiðanleikakönnun.
Ef allt gengur samkvæmt áætlun klárum
við kaupin í byrjun mars. Þá verðum við
orðin meirihlutaaðili í EJS og höfum sagt
að við vildum gjarnan fá tíma til að kynna
okkur betur innviði fyrirtækisins, bæði
starfsemi og það ágæta starfsfólk sem
þarna er, áður en við tökum ákvarðanir
um frekari kaup eða einhverjar breyt-
ingar,“ segir Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, um næstu skref eftir undirritun
kaupsamningsins. „Við teljum okkur vera
að kaupa mjög gott fyrirtæki, heilbrigt
fyrirtæki sem er í mjög góðum rekstri,“
segir hann og kveður EJS í höndunum á
mjög öflugu fólki og stjórnendum. „Við
viljum gjarnan vinna með þeim í fram-
haldinu og höfum óskað eftir því.“
Hreinn segir fyrirséð mörg spennandi
tækifæri þar sem fyrirtækin tvö geti
unnið nánar saman. „Þau liggja á ýmsum
sviðum upplýsingatækninnar, svo sem á
hugbúnaðarsviði, í rekstri á tölvukerfum
og hýsingu og í alls konar þjónustu því
samfara,“ segir hann og bendir á að hjá
Skýrr starfi um 200 manns og hjá EJS 150
manns, saman séu því fyrirtækin með um
350 manns og áætlaða veltu á þessu ári
yfir sex milljarða króna. Í fyrra nam velta
EJS-samstæðunnar 3,6 milljörðum króna
og velta Skýrr var rúmlega 2,2 milljarðar
króna. „Saman eru fyrirtækin að veita
heildarþjónustu. Það sem Skýrr hafði ekki
var sala á alls konar tölvum og vélbúnaði,
en á því sviði er EJS mjög sterkt.“
Með í kaupunum á EJS fylgja dóttur-
félögin Eskill, sem sinnir vefforritun í
Microsoft-umhverfi og tengdri ráðgjöf,
iSoft sem sinnir kennslu og þjálfun á
búnað Microsoft, Símaland sem býður
samskiptalausnir, og Hýsing, sem býður
hýsingu, kerfisleigu og útvistun tölvu-
rekstrar.
Megnið af vélbúnaði Skýrr er nú frá
Hewlett-Packard. Opin kerfi eru með
umboð fyrir HP-tölvubúnað, Skýrr var
áður hluti af Opnum kerfum Group, en
nú á eignarhaldsfélagið Kögun þetta allt
saman. Hreinn hlær við þegar hann er
spurður hvort líklegt sé að Skýrr færi sig
yfir í tölvubúnað Dell eftir kaupin í EJS.
„Við sjáum fram á að eiga gott samstarf
við EJS og það hlýtur að eiga við á þessu
sviði líka,“ segir hann en er ófáanlegur til
að gera upp á milli HP og Dell. „Ég held
að bæði fyrirtæki bjóði afskaplega góðar
tölvur og annan vélbúnað og séu ábyggi-
legir birgjar.“
Umsamið kaupverð hefur ekki verið
gefið upp og segir Hreinn það vera trún-
aðarmál. „Ég held að verðið sé sanngjarnt
bæði fyrir kaupanda og seljanda, þannig
komast viðskiptin á,“ segir hann og árétt-
ar að ekki hafi verið tekin ákvörðun um
frekari kaup. Vitað er að smærri fjárfest-
ar fylgjast sumir hverjir nokkuð spenntir
með þróun mála, þar á meðal fyrrum
starfsmenn sem fengu að kaupa bréf í
fyrirtækinu á árum áður en býðst nú ekki
nema eins og fimmtungur af því verði
sem þeir gáfu upphaflega. „En við höfum
auðvitað áhuga á að heyra í öðrum hluthöf-
um, bæði um hvort þeir vilji selja okkur
bréfin eða vinna með okkur í framtíðinni,“
segir Hreinn en telur um leið að verðmæti
þeirra hluta eigi eftir að aukast með því að
EJS eflist enn frekar. „Okkur þykja þetta
mjög spennandi tímar í upplýsingatækn-
inni og árið fer vel af stað. Bæði fyrir-
tæki og stofnanir fjárfesta í auknum mæli
í upplýsingatækni og ákveðin bjartsýni
ríkir. Við sjáum því bullandi tækifæri. Það
höfum við reyndar gert áður en sjaldan
eins og núna.“
Skýrr úr HP í Dell
Samið hefur verið um kaup Skýrr á meirihluta hlutafjár í EJS.
Forstjóri Skýrr sér sóknarfæri í stöðunni en kaupverðið er
ekki gefið upp. Framhaldið ræðst eftir mánaðamót.
HREINN JAKOBSSON Hreinn, sem er forstjóri Skýrr, segir mikil og góð tækifæri fólgin í kaupum Skýrr á EJS, enda
geti fyrirtækin saman nú boðið alhliða þjónustu á sviði upplýsingatækni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI