Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 56
15. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
TILBOÐ
Á LEGSTEINUM,
FYLGIHLUTUM
OG UPPSETNINGU
10-50% AFSLÁTTUR
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Yndislegi sonur okkar og bróðir,
Huldar Örn Andrésson
sem lést á Barnaspítala Hringsins miðvikudaginn
8. febrúar, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 16. febrúar kl 15.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins, sími 543 3724.
Andrés Ragnarsson Inga B. Árnadóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir Birta Dögg Andrésdóttir
Margrét Andrésdóttir
MIKHAIL IVANOVICH GLINKA
(1804-1857) LÉST ÞENNAN
DAG.
„Þjóðin semur tón-
listina, tónskáldið sér
aðeins um að útsetja
hana.“
Mikhail Glinka var rússneskt
tónskáld.
Á þessum degi árið 1952 var
Georg VI konungur Englands
borinn til grafar í St. George
kapellu við Windsor-kastala.
Konungurinn lést 56 ára að aldri
þann 6. febrúar eftir sextán ár á
valdastóli. Hann komst til valda
árið 1936 þegar bróðir hans Ját-
varður VIII afsalaði sér konung-
stigninni til að giftast bandarískri
ástkonu sinni.
Mikill fjöldi fólks safnaðist
saman í Lundúnum til að votta
konunginum látna virðingu sína.
Þetta var einnig í fyrsta sinn sem
almenningur gat fylgst með lík-
fylgdinni í sjónvarpinu. Klukk-
an hálf tíu lagði mikil hersing
embættismanna og erlendra leið-
toga af stað í gegnum Lundúnir
meðan klukkan Big Ben klingdi
klukkum sínum 56 sinnum. Kista
konungs var vafin í rauð, blá og
gyllt klæði eftir hefðbundnum
reglum. Krúnudjásn konungsfjöl-
skyldunnar voru lögð ofan á kist-
una. Komið var að Paddington-
lestarstöðinni klukkan rúmlega
tólf þaðan sem kistan var flutt til
Windsor-kastala.
Fimmtíu árum eftir dauða
konungsins, í febrúar árið 2002,
opnaði dóttir hans, Elísabet
II Englandsdrottning, krabba-
meinsdeild í minningu föður síns
en banamein hans var einmitt
krabbamein. Sama ár var haldin
mikil hátíð til að minningar um
hálfrar aldar setu Elísabetar á
valdastóli.
ÞETTA GERÐIST > 15. FEBRÚAR 1952
Konungur borinn til grafar
GEORG VI
MERKISATBURÐIR
1917 Kristín Ólafsdóttir lýkur
læknaprófi fyrst íslenskra
kvenna.
1923 Ingibjörg H. Bjarnason,
fyrsta konan sem kosin var
á löggjafarþing Íslendinga,
tekur sæti á Alþingi.
1942 Japanar ná völdum yfir ný-
lendu Breta, Singapore sem
var talin nánast ósigrandi.
1956 Teikning af Denna dæma-
lausa birtist í fyrsta sinn í
Tímanum.
1965 Fáni Kanada, eins og hann
þekkist í dag, er dreginn að
húni í fyrsta sinn.
1965 Söngvarinn Nat King Cole
andast 45 ára að aldri.
1992 Ádís, fyrsta Fokker 50 flugvél
Flugleiða hf. kemur til lands-
ins.
ANDLÁT
Sigrún Þorsteinsdóttir, síðast til
heimilis á öldrunardeild Sjúkra-
húss Skagfirðinga, lést miðviku-
daginn 8. febrúar.
Stefán Karl Þorsteinsson, Ein-
holti 8a, Akureyri, lést á Landspít-
alanum við Hringbraut miðviku-
daginn 8. febrúar.
Ingi Berg Guðmundsson
loftskeytamaður, Völvufelli 42,
Reykjavík, lést á líknardeild Land-
spítalans föstudaginn 10. febrúar.
Steinunn Árnadóttir, Miklu-
braut 62, andaðist á Landspítala
Fossvogi aðfaranótt laugardagsins
11. febrúar.
Þorsteinn S. Sigvaldason,
Hraunbrún 34, Hafnarfirði, lést á
Landspítala Fossvogi sunnudaginn
12. febrúar.
JARÐARFARIR
13.00 Grétar Jónsson verður
jarðsunginn frá Áskirkju.
13.00 Katrín S. Jónsdóttir verður
jarðsungin frá Grafarvogs-
kirkju.
15.00 Anna Björk Daníelsdóttir,
Fjóluhvammi 13, Hafnar-
firði, verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju.
15.00 Gylfi Gíslason teiknari og
myndlistarmaður, Skóla-
stræti 3b, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Neskirkju.
„Dóttir mín gaf mér það í afmælis-
gjöf að bjóða mér norður á Akureyri,“
segir Örnólfur Árnason rithöfundur
og þýðandi sem á 65 ára afmæli í dag
en fer á morgun á frumsýningu verks-
ins Maríubjöllunnar eftir Vassily Sig-
arev hjá Leikfélagi Akureyrar þar
sem dóttir hans Álfrún fer með eitt af
aðalhlutverkunum.
Örnólfur hefur í marga áratugi
starfað sjálfstætt og hefur feng-
ist við margt á þeim tíma. Hann er
líbrettóhöfundur, kvikmyndahöfund-
ur og framleiðandi, þáttagerðarmaður
fyrir útvarp og sjónvarp og starfaði
um tíma sem blaðamaður svo fátt eitt
sé nefnt. Þó má segja að meginstarfi
hans tengist skrifum og þýðingum.
„Ég er nú eins og aðrir kóngsins
lausamenn, alltaf með mörg járn í
eldinum,“ segir Örnólfur glaðlega en
hann er í þann mund að ljúka við bók
sem hann hefur haft í smíðum í nokkur
ár. Nokkur leynd hvílir yfir efni bók-
arinnar en Örnólfur gat þó ljóstrað því
upp að hún verði ekki í ósvipuðum dúr
og metsölubókin Á slóð kolkrabbans,
sem Örnólfur skrifaði og gaf út fyrir
fimmtán árum.
„Hún fjallar um atburði í nálægri
sögu sem hafa orðið miklir örlagavald-
ar í þróun mála á Íslandi, bæði í pólitík
og viðskiptalífi og hafa valdið breyt-
ingum á högum þjóðarinnar,“ segir
Örnólfur. „Kannski má segja að eins
og í Kolkrabbanum og Bankabókinni
verði bæði fengist við að halda öllum
staðreyndum til haga og eins skyggnst
undir yfirborðið og pælt í því sem er
ekki alltaf fyrir allra sjónum og sem
ekki allir vita,“ bætir hann leyndar-
dómsfullur við en vill ekki segja meira
um efni bókarinnar að svo stöddu.
Örnólfur hefur mikinn áhuga á
Spáni og spænskri menningu enda
stundaði hann á sínum tíma nám í
spænsku og spænskum bókmenntum
í Barcelona og starfaði lengi sem far-
arstjóri á Spáni. Hann er nú við það
að ljúka röð útvarpsþátta sem bera
heitið Andi Andalúsíu og fjalla að sögn
Örnólfs um þjóðarsál Andalúsíu sem
getið hefur af sér svo fjölbreytilegar
afurðir sem nautaat, flamencotónlist
og jafn ólíka einstaklinga og Seneca,
Andrés Segovia og Garcia Lorca.
Segja má að flest áhugamál Örn-
ólfs tengist störfum hans á einn eða
annan hátt en fjölskyldan er honum
einnig hugleikin. „Ég er mjög ríkur
af börnum og barnabörnum og þar er
alltaf mikið að gerast enda frjótt og
skemmtilegt fólk,“ segir Örnólfur sem
hefur spilað golf í nokkra áratugi og
gerir það bæði hér heima og á Spáni.
„Það gefur manni erindi til að vera
úti í náttúrunni og efla sjálfan sig. Þá
hefur það þann gífurlega kost að þar
eiga margar kynslóðir samleið og geta
skemmt sér saman burtséð frá aldri
og uppruna eða stétt,“ segir Örnólfur
hressilega.
ÖRNÓLFUR ÁRNASON RITHÖFUNDUR OG ÞÝÐANDI: ER 65 ÁRA
Semur nýjan Kolkrabba
FÆR FRUMSÝNINGU Í AFMÆLISGJÖF Örnólfur fer norður á Akureyri í dag til að vera viðstaddur frumsýningu dóttur sinnar hjá Leikfélagi Akureyrar á morgun.
Málþing um Rússland og Kaliningrad
verður haldið laugardaginn 18. febrú-
ar í húsnæði Verzlunarskóla Íslands.
Hópur nemenda úr skólanum fór til
Kaliningrad á haustönn 2005 og tók
fjölmargar myndir sem verða til sýnis
á ljósmyndasýningu sem opnuð verð-
ur við sama tækifæri á laugardag.
Kaliningrad-hérað hefur lítið verið í
umræðunni á Íslandi og því þótti kjör-
ið tækifæri að vera með kynningu og
fyrirlestra um svæðið.
Kaliningradhérað er oft nefnt raf-
héraðið enda mikið um raf á svæðinu.
Þetta er vestasti hluti Rússlands en
héraðið er nokkurs konar rússnesk
eyja í hafi Evrópusambandsins eftir
að Litháen og Pólland gengu í ESB árið
2004 en löndin umlykja Kaliningrad-
hérað. Kaliningradborg er hafnarborg
og héraðshöfuðborg. Borgin fór illa í
seinna stríði og var endurbyggð í sov-
éskum stíl.
Á laugardaginn mun sendiherra Rúss-
lands opna ljósmyndasýninguna. Að
því loknu verða fyrirlestrar um rúss-
neskt samfélag í dag og fjallað um
utanríkisstefnu Rússlands. Jón Ingvar
Kjaran, kennari við Verzlunarskólann,
mun fjalla um Kaliningrad og Þorleif-
ur Friðriksson, kennari við MK, held-
ur fyrirlestur um Kasjúba og Prússa.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir en málþingið hefst klukkan
15.00 á fyrstu hæð Verzlunarskólans.
Kaliningrad í máli og myndum
FÖGUR KIRKJA Kaliningradhérað er vestasti hluti
Rússlands en er umlukið af Póllandi og Litháen.
Það myndar því nokkurs konar rússneska eyju í
hafi Evrópusambandsins.
AFMÆLI
Margeir Péturs-
son, skákmaður og
stjórnarformaður MP
Fjárfestingabanka er
46 ára.
Bergþóra Árnadóttir
vísnasöngkona er
58 ára.
Alfreð Þorsteinsson,
stjórnarformaður
Orkuveitu Reykjavík-
ur er 62 ára.
Á HARÐA SPRETTI Traustir fákar á
harðastökki draga skíðamenn á eftir
sér í kappreiðum sem haldnar eru á
frosnu St. Moritz vatninu í Sviss.
AP/REUTERS