Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 10
10 15. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
�������������������������������������������
���������������������������������� ����������
�������������������� ������������ ����������
�������������
���������
�����������
�����������
�����
BDF
Beiersdorf
SKIPULAGSMÁL Fimmtán hæða
turn mun rísa við Smáralind sam-
kvæmt nýju skipulagi sem sam-
þykkt hefur verið í bæjarstjórn
Kópavogs.
Bygging turnsins var sam-
þykkt í bæjarstjórn í gær en með
tilkomu hans mun skrifstofu- og
verslunarrými í Smáralind aukast
um 16 þúsund fermetra en turninn
verður 15 hæðir.
Verður hann viðbót við turn
þann er til stendur að hefja bygg-
ingu á innan tíðar á Smáratorgi í
nokkur hundruð metra fjarlægð.
Sá turn verður svipaður að hæð
og verða turnarnir þá töluvert
hærri en Hús verslunarinnar í
Reykjavík til samanburðar en sú
bygging er tólf hæðir.
Sigrún Jónsdóttir, bæjarfull-
trúi Samfylkingarinnar, hefur
áhyggjur af þeim hugsanlegu
áhrifum sem þetta getur haft á
Lindahverfið og hverfin í kring.
„Ég tel sjálfsagt að kynna slík-
ar stórframkvæmdir mun betur
fyrir íbúum en gert hefur verið
því ég tel víst að bygging þessa
turns til viðbótar við þann sem
einnig á eftir að byggja á Smára-
torgi eigi eftir að hafa gríðar-
leg áhrif. Þetta þýðir stóraukna
umferð og hún er þung oft á tíðum
nú þegar.“ - aöe
FIMMTÁN HÆÐA SKRIFSTOFURÝMI Við
þennan enda Smáralindar mun rísa fimmt-
án hæða turn gangi allt eftir. Verða því tveir
slíkir á svæðinu innan fárra ára.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þúsundir fermetra undir skrifstofu- og atvinnuhúsnæði í Kópavogi:
Tveir turnar við Smáralind
ÍRAK, AP Yfirvöld í Basra klipptu
í gær á alla samvinnu við breska
herinn, degi eftir að breskar
og arabískar sjónvarpsstöðvar
sýndu myndband sem yfirmaður
í breska hernum er sagður hafa
tekið upp í Írak árið 2004 og sýnir
breska hermenn beita unga Íraka
ofbeldi. Talið er að atvikið hafi
átt sér stað í borginni Amarah,
skammt frá Basra.
Jafnframt hafa borgaryfirvöld
farið fram á að danskir hermenn
yfirgefi svæðið en bætt við Dön-
unum verði hleypt aftur inn biðj-
ist ríkisstjórn þeirra afsökunar á
Múhameðsteikningunum. Søren
Gade, varnarmálaráðherra Dan-
merkur, sagði utanríkisstefnu
Dana ekki byggjast á yfirvöld-
um í Basra og að hermennirnir
myndu sitja sem fastast.
Nokkrir Írakar gáfu sig fram
í gær og sögðust hafa verið í hópi
þeirra sem beittir voru ofbeldi á
myndbandinu, en þeir hefðu verið
í hópi atvinnulausra ungmenna
sem mótmælt hefðu bágum
kjörum sínum. Þeir réðust að
hermönnum með grjótkasti. Að
minnsta kosti tveir þeirra hafa
hótað að kæra breska herinn.
Breska herlögreglan rannsakar
nú málið og að sögn talsmanns
hennar hefur einn maður verið
handtekinn. - smk
Ofbeldi breskra hermanna í Írak vekur mikla reiði í Basra:
Samvinnu hætt við Breta
VETTVANGSRANNSÓKN Írösk yfirvöld rannsaka svæðið þar sem breskir hermenn eru sagðir
hafa beitt Íraka ofbeldi í Amarah. FRÉTTABLAÐIÐ/AP