Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 68
MIÐVIKUDAGUR 15. febrúar 2006 31
�������� ���
������������� �������
��� �����������
��������������������
��� ����������������� ���� ����� ��
����� ��������� �� ���� ��������� ��������� ������ ���� ����
��������� �������������������� ���������� ���������������� ���
Enska úrvalsdeildin:
LIVERPOOL-ARSENAL 1-0
1-0 Luis Garcia (88.).
Enska 1. deildin:
LEEDS-WATFORD 2-1
Gylfi Einarsson var á varamannabekk Leeds.
LEICESTER-DERBY COUNTY 2-2
Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Leic-
ester .
SHEFF. UTD-READING 1-1
Ívar Ingimarsson var í byrjunarliði Reading en
Brynjar Björn Gunnarsson var ekki í leikmanna-
hópi félagsins.
STOKE CITY-PLYMOUTH 0-0
Hannes Sigurðsson var á varamannabekk Stoke
City
Þýska bikarkeppnin, 8-liða
úrslit:
KRONAU-GUMMERSBACH 36-34
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5/2 mörk fyrir
Gummersbach og Róbert Gunnarsson 3.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
SKÍÐI Sindri Már Pálsson, skíða-
kappi úr Breiðabliki, hafnaði í
53. sæti í bruni í alpatvíkeppni á
Vetrarólympíuleikunum í Tórínó
en datt hins vegar í brautinni í
svigkeppninni og lauk því keppni.
Sindri fór brunbrautina á 1.46,04
mínútum, en bestum tíma þar
náði Bandaríkjamaðurinn Bode
Miller, 1.38,36 en 57 keppendur
skiluðu sér í mark.
Á morgun keppir Dagný Linda
Kristjánsdóttir í bruni en auk
þess keppir Dagný í tvíkeppni,
risasvigi og stórsvigi. Björgvin
Björgvinsson og Kristján Uni Ósk-
arsson keppa í stórsvigi á mánu-
daginn en Kristinn Ingi Valsson
keppir ekki fyrr en á lokadegi
leikanna, 25. febrúar. Þá keppir
hann í svigi eins og allir íslensku
piltarnir. - hþh
Ólympíuleikarnir í Tórínó:
Sindri úr leik
Á FULLRI FERÐ Sindri á æfingu í Tórínó
MYND/GUÐMUNDUR JAKOBSSON
HANDBOLTI Svo virðist sem Veselin
Vujovic, þjálfari serbneska hand-
boltalandsliðsins, hafi skipað leik-
mönnum sínum að tapa gegn Kró-
ötum í lokaleik liðanna i milliriðli
EM í Sviss. Sigur fleytti Króötum í
undanúrslit, en hefðu Serbar farið
með sigur af hólmi hefði Íslending-
um nægt sigur gegn Norðmönnum
til að komast í undanúrslit.
Serbnesk blöð greina frá þessu
í gær og hafa heimildir sínar
frá nokkrum leikmönnum liðs-
ins. Spænska blaðið Marca segir
að markvörður liðsins, Arpad
Sterbik, hafi staðfest fréttirnar
við liðsfélaga sína í Ciudad Real
en Ólafur Stefánsson leikur einnig
með þvi liði.
Serbar voru mun betri í fyrri
hálfleik gegn Króötum en mjög
slakur kafli í upphafi síðari hálf-
leiks lagði grunninn að sigri
Króata og þar með undanúrslita-
sætinu.- hbg
Skandall hjá Serbum:
Leikmönnum
skipað að tapa
HANDBOLTI Hægri hornamaður-
inn Gylfi Gylfason hefur skrifað
undir nýjan tveggja ára samning
við þýska úrvalsdeildarfélagið
Wilhelmshavener.
Gylfi, sem er uppalinn KR-
ingur, gekk í raðir félagsins frá
Dusseldorf og hefur þótt standa
sig vel.
Gylfi Gylfason:
Framlengir við
Wilhelmshavener
FÓTBOLTI Varamaðurinn Luis Gar-
cia skoraði eina markið þegar
Liverpool vann Arsenal í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gærkvöld.
Réttlætinu var fullnægt þegar
Jens Lehmann varði vítaspyrnu
frá Steven Gerrard, fyrirliða
Liverpool, um miðbik fyrri hálf-
leiks en Emmanuel Eboue hafði
stuggað lítillega við Fernando
Morientes og vítaspyrna var
dæmd en fyrir litlar sakir.
Heimamenn báru höfuð og herðar
yfir gestina í fyrri hálfleiknum og
besta færið fyrir utan vítaspyrn-
una var þegar Philippe Senderos
skallaði fyrirgjöf frá Gerrard að
eigin marki en Lehmann varði
stórkostlega frá Svisslendingn-
um.
Í síðari hálfleik var svipað uppi
á teningnum, Liverpool sótti en án
árangurs. Robbie Fowler og Fern-
ando Morientes fengu bestu færi
Liverpool en Lehmann varði hvað
eftir annað á meistaralegan hátt
og allt leit út fyrir að hann myndi
bjarga stigi fyrir Arsenal.
Þá tók Luis Garcia til sinna
ráða og skoraði eina mark leiksins
á síðustu mínútunni þegar hann
tók frákast eftir skot frá Dietmar
Hamann sem Lehmann hafði varið
og sanngjarn sigur Liverpool var
staðreynd. - hþh
Sanngjarn sigur Liverpool á Arsenal:
Luis Garcia hetjan í
sigri Liverpool
ÓTRÚLEG MARKVARSLA Jens Lehmann ver hér víti frá Steven Gerrard í leiknum í gær. Þessi
glæsilega markvarsla dugði þó skammt því Liverpool vann leikinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES