Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 24
[ ]
“Ekki eingöngu les ég hraðar.
Ég les með ...margfalt meiri skilning.“
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
“...held ég sé á góðri leið með að ná
inntökuprófinu í læknadeild í vor. Takk fyrir mig”
Bergþóra Þorgeirsdóttir, 18 ára næstum því stúdent.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð,
nytsamlegt, áhugavert, krefjandi, skemmtilegt,
mjög gott, þægilegt, lipurt, skipulagning,
einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari,
spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
...næsta námskeið 28. febrúar
–––––––––––––––––––––––––––––––––––––––––––-
“...á námskeiðinu fékk ég svörin og
ábendingarnar sem mig vantaði.“
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur
... næsta námstækninámskeið hefst 18. febrúar
Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400
Stúdentadansflokkurinn er
nýstofnaður listdansflokkur
stúdenta Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík. For-
maður Stúdentadansflokksins
er Margrét Anna Einarsdóttir.
Margrét Anna er laganemi á öðru
ári í Háskólanum í Reykjavík og
klassískt menntuð ballerína úr
Listdansskóla Íslands. Hún byrj-
aði að læra dans þegar hún var
tíu ára og hefur tekið þátt í fjölda
sýninga og meðal annars nokkrum
nemendamótssýningum Verslun-
arskóla Íslands þaðan sem hún
er stúdent. „Eftir að ég byrjaði í
háskólanum fann ég að það var
ekkert dansnám hér á Íslandi
sem mætti mínum þörfum og ég
vissi að það væru fleiri dansar-
ar að kljást við það sama,“ segir
Margrét Anna. Hún fór því á fund
rektora háskólanna tveggja og
sótti um styrk til þess að stofna
listdansflokk, sem hún fékk. „Ég
hugsaði með mér að þar sem
við hefðum alla aðstöðu hérna á
Íslandi, kennara og sal, þá þyrfti
bara að gera þetta. Ég var ekki til-
búin að leggja dansskóna á hilluna
og ákvað bara að slá til.“
Helena Jónsdóttir var fengin
til að vera listrænn dansstjórn-
andi flokksins og næsta skref
var síðan að halda inntökupróf og
velja dansara í hann. „Það voru
um fimmtíu dansarar sem sóttu
um og ellefu sem komust inn. Við
vorum með ákveðnar hugmyndir
um það hvernig við vildum hafa
dansflokkinn, hvernig uppbygg-
ingin ætti að vera og hvernig kar-
akterum við værum að leita að.
Það var ákveðinn standard sem
við vorum með og þessi ellefu sem
komust inn voru þau sem stóðu
upp úr.“
Dansararnir sem skipa flokk-
inn koma úr bæði úr Háskóla
Íslands og Háskólanum í Reykja-
vík. „Það eru aðeins fleiri úr
Háskóla Íslands en Háskólanum í
Reykjavík í dansflokknum. Flest-
ir eru í kringum tvítugt og þetta
eru krakkar sem eru að læra lög-
fræði, læknisfræði, verkfræði,
lyfjafræði og ýmislegt annað svo
þetta er mjög akademískt fólk.
Það eru tveir strákar í flokknum
og níu stelpur en það er bara eðli-
legt þar sem það eru venjulega
frekar fáir strákar í dansi,“ segir
Margrét Anna.
Listdansflokkurinn hóf æfing-
ar 1. febrúar í Listdansskóla
Íslands þar sem hann er með
æfingaraðstöðu. „Næstu vikur
verðum við bara að æfa stíft og
samrýma okkur og finna styrk
hópsins,“ segir Margrét Anna,
sem er bjartsýn á framtíð Stúd-
entadansflokksins. „Stúdenta-
dansflokkurinn á að halda áfram
um ókomin ár,“ segir hún.
emilia@frettabladid.is
Nýstofnaður stúdenta-
dansflokkur HÍ og HR
Margrét Anna Einarsdóttir og Hannes Þórður Þorvaldsson, meðstjórnandi Stúdentadansflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Námstækninámskeið geta verið góð fyrir þá sem eiga
erfitt með að skipuleggja sig í námi. Námið gengur yfirleitt betur ef
námstæknin er rétt.
Gítar
námskeið
10 vikur – hefst 20. feb
-Einkatímar-
Uppl. í síma 581 1281
gitarskoli@gitarskoli.is
www.gitarskoli.is
• 5 vikna talnámskeið
hefjast 22. febrúar
• 5 vikna ævintýranámskeið
fyrir börn hefjast 25. febrúar.
• 5 vikna námskeið fyrir 10. bekk
• Málaskólar erlendis
Þeir sem hafa hug á að þreyta
inntökupróf í listaháskóla geta
sótt námskeið á vegum Mið-
stöðvar símenntunar í Hafnar-
firði og búið sig undir prófið.
Miðstöð símenntunar í Hafnar-
firði hefur ákveðið að halda nám-
skeið sem undirbýr fólk fyrir
inntökupróf í leiklistarháskóla.
Námskeiðið hentar öllum þeim
sem hafa hug á að þreyta inngöng-
upróf í listaháskóla hvort sem þeir
eru hérlendis eða erlendis.
Á námskeiðinu verður meðal
annars lögð áhersla á að nemend-
ur læri dans- og söngrútínu til að
sýna í inntökuprófi. Einnig verður
farið í spuna, leikræna tjáningu
og texta ásamt því að nemendur fá
leiðsögn í vali á texta og einræð-
um til flutnings í inntökuprófum.
„Fyrsta námskeiðið gekk mjög
vel og greinilegt að þetta skilaði
miklum árangri. Þeim sem höfðu
sótt námskeiðið farnaðist mun
betur þegar kom að því að taka
inntökupróf,“ segir Margrét Áka-
dóttir leikari og leiklistarmeð-
ferðarfræðingur og einn kennari
námskeiðisins. „Það sem við vinn-
um mest með á námskeiðinu eru
æfingar í færni svo hæfileikar
nemendanna og skapandi hugsun
þeirra fái notið sín undir miklu
álagi. Enda eru umsækjendur
undir gríðarlegu álagi í inntöku-
prófum.“
Námskeiðið er 50 stundir og
hefst það 20. febrúar og lýkur 8.
mars. Kennt verður þriðjudaga og
fimmtudaga auk helgarnámskeið-
is 4. og 5. mars. Í lok námskeiðsins
verður haldin sýning á því sem
nemendurnir lærðu og verða próf-
dómarar á svæðinu, sem er liður
í að nemendur æfi hæfileika sína
og færni undir því mikla álagi
sem inntökupróf er.
Kennarar námskeiðisins eru, frá hægri talið, Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur, Agnar
Egill Jónsson, leikari og leikstjóri, Margrét Ákadóttir leikari og leiklistarmeðferðarfræðingur.
Ainu Freyja Järväla kenndi á námskeiðinu í fyrra en kemur ekki til með að kenna að þessu
sinni. Við hlið hennar er Matthildur Matthíasdóttir, söngkona og söngkennari og Ingibjörg
Björnsdóttir danshöfundur.
Leikarar framtíðarinnar undirbúnir