Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.05.2006, Blaðsíða 6
6 22. maí 2006 MÁNUDAGUR VELFERÐ UMHVERFI NÝSKÖPUN Ólafur F. Magnússon, læknir og borgarfulltrúi 1 sæti „ Flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni.“ ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ��������������� ����������������������������������������������������������������� ���� ����� ���� ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� SKOÐANAKÖNNUN Það stefnir í stór- sigur Samfylkingarinnar í Hafn- arfirði samkvæmt nýrri skoðana- könnun Fréttablaðsins. Fylgi flokksins mælist nú 56,9 prósent og myndu því sjö fulltrúar Sam- fylkingar vera kjörnir í bæjar- stjórn. Flokkurinn bætir við sig manni og rúmum sex prósentu- stigum frá síðustu kosningum, þegar Samfylking fékk 50,2 pró- sent atkvæða. Í könnun Frétta- blaðsins nú er stuðningur kvenna við Samfylkingu heldur meiri en stuðningur karla. 59,6 prósent kvenna í Hafnarfirði segjast nú myndu kjósa Samfylkinguna en 54,5 prósent karla. Sjálfstæðisflokkur fengi fjóra fulltrúa kjörna og hefur nú 34,3 prósenta fylgi. Í kosningunum 2002 hlaut flokkurinn 40,6 prósent atkvæða og fimm fulltrúa kjörna og myndi flokkurinn því missa einn bæjarfulltrúa. Í könnuninni nú er stuðningur karla við flokk- inn meiri en stuðningur kvenna. 37,4 prósent karla segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn en 30,7 prósent kvenna. Vinstri græn myndu ekki koma manni að í bæjarstjórn Hafnar- fjarðar, samkvæmt könnun Frétta- blaðsins, en flokkurinn bætir nokkuð við sig fylgi frá síðustu kosningum. 6,6 prósent segjast nú myndu kjósa listann, en flokkur- inn hlaut 2,9 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Framsóknar- flokkurinn myndi heldur ekki ná manni inn, en hann tapar fylgi frá síðustu kosningum. 2,2 prósent segjast nú myndu kjósa Fram- sóknarflokkinn, en hann hlaut 6,3 prósent atkvæða í síðustu kosn- ingum. Niðurstaða könnunar Frétta- blaðsins nú er mjög áþekk niður- stöðu könnunar Félagsvísinda- stofnunar fyrir NFS, sem birt var 16. maí. Þá sögðust 56,6 prósent myndu kjósa Samfylkingu. 33,1 prósent sagðist myndu kjósa Sjálf- stæðisflokk, 7,7 prósent sögðust myndu kjósa Vinstri græn og 2,6 prósent studdu Framsóknarflokk- inn. Fréttablaðið hringdi í sex hundruð Hafnfirðinga og skiptust svarendur jafnt milli karla og kvenna. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef boðað yrði til kosninga nú? 60,7 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar. Einnig var spurt hvort svar- endur væru fylgjandi eða andvíg- ir stækkun álversins í Straums- vík, en um það verður kosið í Hafnarfirði samhliða sveitar- stjórnarkosningunum. Samkvæmt niðurstöðum könnunar Frétta- blaðsins verður tæpt á mununum í kosningunum. 52,2 prósent sögð- ust vera stækkuninni fylgjandi, en 47,8 prósent sögðust vera stækk- uninni andvíg. Mikill kynjamunur er á stuðningi við stækkun. 65,8 prósent karla sögðust vera fylgj- andi stækkun, en 37,2 prósent kvenna. Hins vegar sögðust 62,8 prósent kvenna vera andvíg stækkun, en 34,2 prósent karla. 75,3 prósent aðspurðra tóku afstöðu til spurningarinnar. svanborg@frettabladid.is Samfylking bætir við sig bæjarfulltrúa Samfylking fengi sjö bæjarfulltrúa í Hafnarfirði samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Sjálfstæðisflokkur fjóra. Framsókn fengi engan og tapar fylgi frá síðustu kosningum. Vinstri græn fá heldur ekki fulltrúa en bæta við sig fylgi. Hafnarfjörður 2006 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR ■ Kosningar 2002 B 2,2% D 40,6% S 50,2% V 9,2% Hvaða lista myndir þú kjósa ef boðað yrði til kosninga nú? Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) stækkun álversins í Straumsvík? Skoðanakönnun Fréttablaðsins 20. maí 2006 Andvíg 47,8 Fylgjandi 52,2 KOSNINGAR Meðalaldur frambjóð- enda í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara hinn 27. maí næstkom- andi er sá sami og hann var í síðustu kosningum árið 2002, 43 ár. Engu að síður er aldur fulltrúa misjafn og eru þannig 74 ár á milli þess elsta, Vilhjálms Hjálmarssonar, 92 ára, á lista Framsóknarmanna í Fjarðabyggð og þess yngsta, Valgeirs Pálssonar, átján ára, á lista Samfylk- ingarinnar í Eyjafjarðarsveit. - aöe Sveitarstjórnarkosningar: Meðalaldurinn sami og síðast ELSTI FRAMBJÓÐANDINN Vilhjálmur Hjálm- arsson, fyrrverandi alþingismaður, er elsti frambjóðandi sveitarstjórnarkosninganna sem fram undan eru. KOSNINGAR Una María Óskarsdótt- ir, þriðji maður á lista Framsókn- arflokksins í Kópavogi, segir að sjálfstæðismenn þar í bæ segi ósatt í kynningarstarfi sínu. Hún kveðst hafa fengið símtal frá skrifstofu Sjálfstæðisflokks- ins um helgina. „Ég var spurð hvort mér litist ekki vel á upp- bygginguna í Kópavogi, sem ég játaði. Þá segir sá sem hringir að þetta megi þakka Sjálfstæðis- flokknum og af orðum hans mátti skilja að þeir hefðu leitt meiri- hluta í bænum undanfarin fimmt- án ár.“ Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur hafa verið í meiri- hlutasamstarfi í Kópavogi undan- farin sextán ár, en embætti bæjarstjóra var í höndum Fram- sóknar allar götur þar til í fyrra. Una María segir að þegar hún hafi bent þeim sem hringdi á þetta hafi hann sagt að ekki væri við hann að sakast, því hann hefði fengið leið- beiningar um hvernig ætti að hringja. „Mér þykja þetta heldur óvönduð vinnubrögð af samstarfs- flokknum,“ segir Una María. Björn Hermannsson, kosninga- stjóri Sjálfstæðisflokksins, þekkti ekki til málsins en taldi að um mis- skilning hlyti að vera að ræða. „Við höfum hringt í fjölmarga bæjarbúa og þetta er fyrsta kvört- unin sem ég heyri, enda nýtur Framsókn fyllsta sannmælis í okkar samstarfi. Til okkar streyma sjálfboðaliðar sem vilja taka til hendinni og kannski hefur ein- hverjum orðið misorða, ég skal ekki segja. Þetta gæti líka verið einhver viðkvæmni í Unu Maríu, því við höfum komið fram af heil- indum í þessari kosningabar- áttu.“ - bs Frambjóðandi Framsóknarflokksins í Kópavogi: Segir sjálfstæðismenn skrökva að bæjarbúum UNA MARÍA ÓSKARSDÓTTIR Segir sjálf- stæðismenn gefa í skyn að þeir hafi stýrt bænum í hálfan annan áratug. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÓMSMÁL Maður og kona á þrí- tugsaldri hafa verið ákærð fyrir líkamsárásir á hvort annað í sept- ember í fyrra og fyrir ræktun og vörslu kannabiss á heimili sínu. Ákæran var þingfest í Héraðs- dómi Reykjaness fyrir helgi. Manninum er gefið að sök að hafa sparkað í konuna, sem þá var sambýliskona hans, tekið um háls hennar og þrengt að með þeim afleiðingum að hún marðist á hálsi og auk þess hlaut hún áverka á læri. Hann játar sök að mestu. Konunni er gefið að sök að hafa í kjölfarið stungið manninn í bakið með þeim afleiðingum að hann hlaut loftbrjóst vinstra megin í brjóstholi. Árásin er sögð sérstak- lega hættuleg. Konan neitar að mestu sakargiftum. Báðum er þeim síðan gefið að sök að hafa í september í fyrra staðið að ræktun á 185 kannabis- plöntum og að hafa haft í vörslu sinni tæp 400 grömm af kannabis- efni, um fimm lítra af kannibis- blönduðum vökva og tæp fimm grömm af kannabisstönglum. - sh Kona stakk sambýlismann sinn í bakið eftir að hann réðst á hana: Kærð fyrir alvarleg átök HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi. VENESÚELA, AP Hugo Chavez, for- seti Venesúela, segir að ríkisstjórn landsins ætli sér að kaupa Sukhoi Su-30 orrustuþot- ur af Rússum sem hann segir að séu „hundrað sinnum betri en F-16 þotur Bandaríkja- manna.“ Landið hefur nú þegar yfir að ráða 21 F- 16 þotu og verða þær væntanlega seldar í stað þeirra rússnesku. Chavez segir að landið sé ekki háð samþykki Bandaríkjamanna varðandi sölu á F-16 þotunum og því geti ríkisstjórn Venesúela selt þær hverjum sem henni þóknist. Samkvæmt yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar er Íran „í efsta sæti“ yfir líklega kaupendur. - sha Ríkisstjórn Venesúela: Braskar með orrustuþotur HUGO CHAVES BANDARÍKIN, AP Hálf þrítugur maður gekk inn í messu og hóf skotárás, að svo virðist ástæðulausu, í borginni Baton Rouge í Bandaríkjunum í gær. Vitni segja manninn hafa gengið inn í kirkjuna undir lok messunnar, skotið fimm manns og síðan flúið af vettvangi ásamt eigin- konu sinni og þremur börnum. Fjög- ur af fórnarlömbunum fimm létust samstundis en ekki var strax vitað um ástand þess fimmta. Stuttu seinna fannst árásarmað- urinn, Anthony Bell, í íbúð í nágrenni kirkjunnar og hafði hann þá skotið eiginkonu sína til bana en börnin þrjú voru hins vegar heil á húfi. - sha Skotárás í messu: Skaut fimm manns til bana KJÖRKASSINN Telur þú að sjálfstæðismenn nái hreinum meirihluta í borgar- stjórn Reykjavíkur? Já 46% Nei 54% SPURNING DAGSINS Í DAG Ertu ánægð(ur) með úrslitin í Eurovision? Segðu þína skoðun á visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.