Fréttablaðið - 22.05.2006, Side 8

Fréttablaðið - 22.05.2006, Side 8
8 22. maí 2006 MÁNUDAGUR ��������������������������������������������������������������������������������������� ��������������������� ���������� ������������ �������� ��������� �������� �������� �������� �������� ����������������� �������� ����������� �������� ������������������������������ ������������������������������� ��������������������������������������������������� ������������� ���������������������������������������� �������������������������������������� �������� ���������������������������������������������� �������������������������������������������������� ������������������������������ �������������������� ������������������������� ������������������������������ �������������������� LYFJAMÁL Stofnun ríkisrekins sjálfseignarfyrirtækis um inn- flutning á samheitalyfjum er nú í skoðun hjá heilbrigðisráðuneytinu vegna þeirrar fákeppni sem ríkir á samheitalyfjamarkaði á Íslandi. Samheitalyf eru lyf sem ekki lúta vernd einkaleyfa og allir geta framleitt. Þau eru yfirleitt ódýrari en frumlyfin sem lúta slíkri vernd. Hlutur samheitalyfja er mjög lágur á Íslandi miðað við nágranna- löndin; um fimmtán prósent á móti 85 prósentum frumlyfja. Fyrir tíu árum voru sett lyfja- lög þar sem lyfjaverslun var gefin frjáls og einokunarstaða lyfja- fræðinga afnumin. Hugmyndin var að markaðsöflin myndu taka við sér, að sögn Einars Magnús- sonar, skrifstofustjóra í heilbrigð- isráðuneytinu, sem segir breyt- inguna hafa skilað ágætis árangri í fyrstu. „En markaðurinn hefur ekki verið að virka sein- ustu ár og sennilega er íslenski mark- aðurinn of lítill til að þessi sam- keppni skili sér með einhverjum hætti,“ segir Einar. Páll Pétursson, formaður lyfja- greiðslunefndar, segir vel hugsan- legt að ríkið fari í samkeppni á samheitalyfjamarkaði. „Ég get vel séð það fyrir mér að það verði þróunin ef aðrir fara ekki að flytja inn þessi ódýru lyf. Þá hlýtur almannaheill að krefjast þess að ríkið fari að skipta sér að því.“ Páll tekur fram að samkeppni á frumlyfjamarkaði sé að ganga upp og umboðsmenn frumlyfja- framleiðenda hafi staðið við sína samninga. Þar vísar Páll til sam- komulags sem var gert árið 2004 við framleiðendur frumlyfja um lækkun lyfjaverðs. „En þeir sem flytja inn frumlyf hafa engan áhuga á að flytja inn samheitalyf,“ segir Páll. Stefnumörkunarvinna með lyfjamálin í heild sinni er í gangi hjá heilbrigðisráðuneytinu í nefnd sem hefur verið að störfum í tvö ár. Áætlað er að nefndarvinnunni ljúki núna í haust. Nefndin var sett á laggirnar eftir að ríkisendurskoðun gaf út skýrslu í mars 2004 um lyfja- mál á Íslandi og ákveðið var í kjölfarið að fara í stefnumörkunar- vinnu og nýta þessa skýrslu. Í nefndinni situr átján manna hópur úr öllum stjórnmálaflokkum og helstu hagsmunasamtökum. Einar Magnússon, skrifstofustjóri heil- brigðisráðuneytisins stýrir nefnd- inni. „Það er verið að fara yfir allan málaflokkinn og reynt að ná sam- stöðu um málin,“ segir Einar. sdg@frettabladid.is LYF Í HILLU Samanburður á lyfjaverði milli Íslands og Danmerkur sýnir gífurlegan mun á verði samheitalyfja. Stofnun ríkisrekins lyfja- fyrirtækis er í skoðun Vegna þeirrar fákeppni sem er á íslenskum samheitalyfjamarkaði eru hugmyndir um aðkomu ríkisins að innflutningi á samheitalyfjum í skoðun hjá heilbrigðisráðuneytinu. EINAR MAGNÚSSON KÚVÆT, AP Emírinn af Kúvæt rauf þjóðþingið í gær og boðaði til kosn- inga í lok júní, ári áður en þær áttu að fara fram. Ákvörðun Al Sabah er nýjasta útspilið í valdataflinu milli hans og þingsins. Frá árinu 1963 hafa emírar landsins rofið þing fjórum sinnum. Stundum hefur löggjafarsamkundan ekki komið saman í nokkur ár í kjölfarið. Árið 1999 var þó þeirri reglu komið á að boða yrði til kosn- inga innan tveggja mánaða eftir þingrof. Undanfarnar vikur hefur staðið styr milli þingsins og stjórnarráðsins vegna fyrirhugaðra breytinga á kosningakerfi landsins. - bs Emírinn í Kúvæt: Rauf þing og flýtir kosningu KÍNA Byggingu risastórrar stíflu sem hefur verið í byggingu í þrettán ár í Kína er lokið. Stíflan er hluti af stærstu vatnsaflsvirkjun sögunnar en hún mun framleiða um 84,7 tera- wattstundir af orku þegar hún verður að fullu komin í gagnið árið 2009. Stíflan verður 2,3 kílómetrar að lengd en bygging hennar var gríðar- lega umdeild í Kína því flytja þurfti 1,3 milljónir manna frá heimilum sínum. Yangtze-fljót er mikil samgönguæð en kínverskir ráða- menn telja að virkjunin muni efla atvinnulíf svæðisins. Kostnaður við verkið nemur um 1.535 milljörðum íslenskra króna. Þó að framkvæmdum sé lokið verður stíflan ekki tekin í notkun fyrr en eftir tvö ár. - sgi Stífla í Kína: Stærsta vatns- aflsvirkjunin RISAVAXIÐ MANNVIRKI Stíflan er 2,3 kílómetrar að lengd og kostar um 1.535 milljarða íslenskra króna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Námuslys í Kentucky Fimm námu- menn létust í sprengingu í kolanámu í Kentucky í Bandaríkjunum aðfaranótt laugardags. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni. Öryggi námumanna hefur vakið nokkra umræðu í Banda- ríkjunum enda hafa námuslys verið tíð. Fjórtán námumenn létust í tveimur námuslysum í janúar. BANDARÍKIN WASHINGTON, AP Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar ekki að gefa stjórn Írans neina tryggingu fyrir því að Bandaríkin muni ekki ráð- ast með hervaldi inn í landið, jafn- vel þó að stjórnin í Teheran gefi eftir varðandi kjarnorkuáætlun sína. Þetta sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, í sjónvarpsviðtali um helgina. „Íran er vandræða- gemlingur í hinu alþjóðlega sam- félagi, aðalbanki hryðjuverka.“ Ríkisstjórn Írans hefur reyndar margoft gefið það út að hún ætli sér einungis að auðga úran til framleiðslu á rafmagni en ekki til vopnaframleiðslu. Rice sagði að Íranir ættu tvo valkosti, að þeir afléttu áhyggj- um varðandi kjarnorkuáætlun þeirra eða að alþjóðasamfélag beitti refsiaðgerðum. „Íranir vita að slíkar aðgerðir alþjóðlegs samfélags geta verið mjög skað- legar landinu.“ Rice mun í vikunni hitta Mohammed ElBaradei, forseta alþjóða kjarnorkumálastofnunar- innar, í Washington. Auk þess munu fulltrúar Evrópusambands- ins, Þýskalands og þeirra ríkja sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hittast í London til þess að ræða stöðu mála í Íran. - sha Utanríkisráðherra Bandaríkjanna ræðir málefni Írans: Fá ekki öryggistryggingu CONDOLEEZZA RICE Segir að Bandaríkja- stjórn muni ekki gefa Írönum öryggis- tryggingu enda hafi ekki verið beðið um neitt slíkt. VEISTU SVARIÐ 1 Hvað nefnist finnska hljómsveitin sem sigraði í Eurovision? 2 Hvað heitir bæjarstjórinn á Siglu-firði? 3 Íbúar hvaða ríkis kusu um sjálfstæði í gær? SVÖRIN ERU Á BLS. 46

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.