Fréttablaðið - 22.05.2006, Page 22

Fréttablaðið - 22.05.2006, Page 22
 22. maí 2006 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Pétur Gunnarsson og Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000 Seltjarnarnesi KT verslun Akureyri Njarðarnesi S. 466 2111 Bestu dekkin í USA 8 ár í röð Tire Review Magazine Low profile fyrir lúxusjeppa og sportbíla. Frábært veggrip. Mikil mýkt. Hágæða hönnun. Veldu TOYO PROXES og skildu hina eftir. Mikið úrval frábært verð. Borgaryfirvöld hafa stóraukið stuðning við menningar- og listvið- burði. Besta dæmið er Menningar- nótt. Menningarnótt er orðin að ómissandi þætti í tilverunni. Aðrar nýjungar eru Ljósahátíðin sem svo sannarlega lýsir upp skammdegið og Hinsegin dagar sem árlega draga að tugþúsundir borgarbúa og erlenda gesti. Ekki má gleyma Iceland Air- waves og kvikmyndahátíðum. Þetta eru miklar breytingar frá þeim tíma er Sjálfstæðisflokkurinn stjórnaði borginni. Aukinn stuðningur við list- viðburði sem höfða til almennings hefur ekki komið niður á framlögum til hefðbundinan listviðburða, held- ur verið hrein viðbót. Mun fleiri borgarbúa njóta því nú menningar- viðburða en áður var. Borgaryfirvöld undir stjórn Sam- fylkingarkvennanna Ingibjargar Sólrúnar og Steinunnar Valdísar hafa lagt metnað sinn í að styðja við bakið á listamönnum. Samtökum myndlistarmanna var afhent til umráða fallegt hús við Hafnarstræti. Nýlega var undirritaður samningur á milli borgarinnar og Sambands íslenskra myndlistarmanna, Form Ísland og Iðntæknistofnunar um 4.300 fm myndlista- og hönnunar- miðstöð að Korpúlfsstöðum. Sjón- listamiðstöðin á að styðja við nýsköp- un, tilraunir og vöruþróun. Á Korpúlfsstöðum verður vinnustof- um myndlistamanna fjölgað og hönnuðir fá þar líka inni. Rekin verða mynd- og frumgerðaverk- stæði þar sem listamenn og hönnuð- ir fá tímabundna aðstöðu. Markmiðið með Sjónlistamið- stöðinni er að gefa listamönnum tækifæri til sköpunar og að almenn- ingur fá notið menningar. Á Korp- úlfsstöðum verður rekinn myndlista- skóli fyrir börn og fullorðna og munu eldri borgarar fá aðstöðu fyrir sína félagsstarfsemi. Sjónlistamið- stöðin verður og með sýningarrými og ekki er að efa að starfsemi mið- stöðvarinnar á Korpúlfsstöðum verður mikil lyftistöng fyrir borgar- menninguna. Að kjósa Samfylkinguna er að kjósa menningu fyrir alla, en ekki bara einhverja útvalda. Höfundur skipar 10. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. List og menning - allir með Á kjördag fyrir fjórum árum var ég staddur í Berlín. Ég lagði á mig hálftíma í lest og annan á fæti í 30 stiga hita til að kjósa í nýja sam- norræna sendiráðinu. Heilsaði daufeygðum sendiherra og setti X fyrir framan D í fyrsta (og nokkuð líklega síðasta) sinn. Ég var ekki ánægður með R- lista-árin 98-02 og vildi koma því á framfæri. Það var til einskis gert. Björn Bjarnason átti víst aldrei séns. Hinsvegar átti R-listinn séns, jafnvel án Sollu: Síðustu fjögur árin virðist mun meira hafa gerst í Reykjavík en kjörtímabilið þar á undan. Sumt til ógæfu eins og færsla Hringbrautar, og annað vafasamt eins og Orkuveituhöllin, en fyrst og fremst margt til gæfu, eins og skólamáltíðir, frístunda- heimili, þjónustuver, launabætur ófaglærðra, lækkun leikskóla- gjalda, leiðrétting launamisréttis, Airwaves, Loftbrú, NASA, Food & Fun, Vetrarhátíð, Jafnréttisverð- laun, Hótel Centrum, Landnáms- skáli, Alþjóðahús, Kvosarumbætur, Hlemmsumbætur, Skuggahverfi 101, Vatnsmýrarsamkeppni og leit hafin að nýju flugvallarstæði auk þess sem Mýrargötuhverfi, Sunda- braut og Tónlistarhús eru innan seilingar. Meira að segja gamla Ziemsen-húsið var horfið þegar ég mætti í vinnu í morgun. Það er eins og þrír borgarstjórar hafi komið meiru í verk en einn og ekki hægt að segja annað en að Reykjavík blómstri þessa dagana. Eins gott að maður var ekki í meirihluta vorið 2002. Hvað var maður eiginlega að hugsa? Strax um haustið opinberaði stóri flokk- urinn eðli sitt með aðstoð Mogga- sonar og þremur árum síðar var staðfest að Sjálfstæðisflokkurinn var og er að nokkru leyti enn í hönd- um óþverragengis. Þökk sé Jónínu Ben. En mig verkjar enn í atkvæðið mitt. Slíkt verður ekki aftur tekið. Síðast í liðinni viku frétti ég að „mínir menn“ hefðu setið hjá við lækkun leikskólagjalda fyrr í vetur. Og eftir því sem nær líður komandi kosningum ágerist eftirsjáin. Í gær- morgun vaknaði ég meira að segja upp við þá martröð að D-listinn hefði í raun og veru unnið síðustu borgarstjórnarkosningar. Við mér blasti borgarstjóratíð Björns Bjarnasonar. Já. Hvernig væri borgin okkar í dag ef D-listinn hefði unnið síðustu kosningar? Ef Björn Bjarnason hefði orðið borgarstjóri árið 2002 væru nú engar Bónusbúðir í Reykjavík. Útsendingar NFS og Stöðvar tvö næðust ekki innan borgarmarkanna og aka þyrfti á bensínstöðvar í Hafnarfirði eftir Fréttablaðinu. Jón Steinar Gunnlaugsson væri for- stöðumaður Höfuðborgarstofu sem færi með verslana- og fjölmiðla- leyfi fyrir Reykjavíkurborg og Sveinn Andri Sveinsson yfirmaður hins nýja og glæsilega Flokks- hundagarðs á Geirsnefi. Báðir hefðu þeir haft heppnina með sér í Stóra lóðalottóinu og byggju nú í glæsilegum sérbýlum í Hallar- hverfi í Geldinganesi, að Valhöll 3 og Vilhöll 7. Hinsvegar hefði Bau- haus ekki verið jafn heppið og væri á leið í Fjörðinn. Gæsluvellirnir hefðu verið færðir undir Gæsluna. Food & Fun hátíðin héti God & Gun: Alþjóðleg samkoma þar sem heit- trúaðir byssumenn sýna skotfimi og ræða nýjar tegundir svöðusára. Heiðursgestir á síðustu hátíð: Don- ald Rumsfeld og Paul Wolfowitz. Orkuveitan væri í eigu Bakkavarar- bræðra, sem hefðu fullnýtt sam- legðaráhrif hennar og Símans; aðeins þeir sem væru með Breið- bandið ættu kost á heitu vatni og Enska boltanum. Vilhjálmur Þ væri að sönnu yfirmaður borgarskipu- lagsins og meira að segja búinn að byggja Sturlubraut upp á Kjalar- nes, sem alfarið var kostuð af Ríkis- sjóði, en hún væri of innarlega og menn væru strax farnir að ræða þörf á nýrri Sundabraut. Hinsvegar væri engin umræða um flugvöllinn í Vatnsmýri önnur en eilífðardeilan um það hvers vegna Höfuðborgar- stofa afturkallaði lendingarleyfið fyrir einkaþotu Jóns Ásgeirs á Reykjavíkurflugvelli. Skemmtileg- asta afleiðingin af borgarstjóratíð Björns Bjarnasonar, fyrir utan nýjan einkennisbúning borgar- starfsmanna, væri þó líklega salan á SVR. Eftir að Strætó komst í eigu Björgólfs Guðmundssonar er fólki greitt fyrir að ferðast með honum. Hinsvegar þiggja fáir farið þar sem allar leiðir enda nú í Kaplaskjóli, í vögnum máluðum í KR-litunum. Líklega skiptir það svolitlu máli hverjir sitja í Ráðhúsinu. Líklega skiptir máli hvern maður kýs. Síð- ast reyndi Sjálfstæðiflokkurinn að sýnast venjulegur stjórnmálaflokk- ur en kom skömmu síðar út úr skápnum sem hvítflibbaður bófa- flokkur með lögguna í vasanum. Nú er hann aftur kominn á biðilsbux- urnar, bleikar að lit, og skreytir sig með mjúkum málum, stolnum af R- listanum. Sjálfstæðisflokkurinn er nánast orðinn samkynhneigður í málflutningi sínum. En sem gamall kjósandi D-listans veit maður betur. Maður veit að Sjálfstæðisflokkur- inn er enginn yndishommi heldur harður nagli með gemsann fullan af verktökum og veskið troðið af lóðum; með annað augað á hæsta- rétti, hitt á Bessastöðum og styttu af Davíð í smíðum. Kosningar eru alvörumál. Það skiptir máli hvað við kjósum. Dag eða gærdag. Borgarstjóratíð Björns Bjarna Í DAG KOSNINGAR HALLGRÍMUR HELGASON UMRÆÐAN KOSNINGAR GUÐRÚN ERLA GEIRSDÓTTIR - GERLA FRAMBJÓÐANDI Alþekkt er að landsmál geta haft áhrif á sveitarstjórnarkosn-ingar. Að þessu sinni hefur landsmálapólitíkin ekki verið dregin inn í kosningabaráttuna með beinum hætti en í almennum fréttum hafa ýmis viðfangsefni efnahagsstjórnunar og ríkisfjármála eigi að síður verið fyrirferðarmeiri en pólitísk átök í Reykjavík, bæjarfélögum og sveitum. Fyrsti og eini frambjóðandinn sem dregur landsmálin með bein- um hætti inn í kosningabaráttuna er aðstoðarmaður forsætisráð- herra, efsti maður á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hann hefur látið að því liggja að slök niðurstaða í sveitarstjórnarkosn- ingum kunni að leiða til breytinga á afstöðu flokksins á landsvísu. Skilaboðin eru einföld: Gjaldi Framsóknarflokkurinn fyrir ríkis- stjórnina í þessum kosningum en Sjálfstæðisflokkurinn ekki mun það hafa mikil áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Rétt er og eðlilegt að líta á þessi ummæli fremur sem áminningu en hótun. En stóra spurningin er: Hvaða ávinning geta þau haft í för með sér? Það er vandséð. Áminningin er ekki líkleg til þess að draga jaðaratkvæði af vinstri vængnum yfir til Framsóknarflokksins. Þeir kjósendur ættu fremur að kætast yfir hugsanlegum óróa innan ríkisstjórnar- innar. Eins og skoðanakannanir hafa staðið hafa jaðarkjósendur Sjálfstæðisflokksins varla ástæðu til að óttast þó að alþingiskosn- ingum yrði flýtt. Ólíklegt er því að yfirlýsingin dragi þá sérstak- lega að Framsóknarflokknum. Svo sem eðlilegt má telja hefur ríkisstjórnin átt í vök að verjast í einstökum málum, ekki síst fyrir þá sök að gengi krónunnar komst í óraunhæfa stöðu í of langan tíma. En í þeim efnum er ábyrgð Sjálfstæðisflokksins sú sama og Framsóknarflokksins. Kjarni málsins er hins vegar sá að ríkisstjórnin stendur almennt vel að vígi enda undirstöður þjóðarbúskaparins traustar. Það er ugglaust helsta ástæðan fyrir því að landsmálin hafa ekki dregist að marki inn í kosningabráttuna nú. Með réttu hefur enginn séð hag í því. Í raun réttri er það röng greining á vanda Framsóknarflokksins að verið sé að refsa honum fyrir það sem úrskeiðis hefur gengið en verðlauna Sjálfstæðisflokkinn fyrir hitt sem vel hefur tekist. Vandi Framsóknarflokksins er af öðrum toga. Styrkur Framsóknarflokksins nú er sá að Halldóri Ásgrímssyni hefur tekist að breyta honum úr hentistefnuflokki eða eins konar meðaltalsmiðjuflokki í staðfastan frjálslyndan miðjuflokk með nútíma yfirbragði. Vandi flokksins sýnist á hinn bóginn helst vera sá að hafa á umbreytingarferli gleymt að gefa jaðarflórunni nægj- anlega næringu og þannig veikt ákveðna og nauðsynlega ímynd sem ekki mátti með öllu missa sín. Ákvörðunarhátturinn varðandi stuðning við Íraksstríðið, gömlu fjölmiðlalögin og nýja Ríkisútvarpsfrumvarpið eru dæmi um mál þar sem Framsóknarflokkurinn hefði getað nært jaðarflóru flokks- ins án þess að stefna stjórnarsamstarfinu í hættu. Í ríkisstjórnarsamstarfi þurfa flokkar jafnan að ákveðnu marki að taka tillit til sérstöðu samstarfsaðilanna. Mestu skiptir þó að hver flokkur velji ímyndarmál sín af kostgæfni. Þeir sem kjörnir voru til forystu í Framsóknarflokknum til þess að gefa gamla jaðrinum næringu hafa ekki haft styrk eða pólitískt skynbragð til að standa á þeim verði þegar mestu máli skipti. Feli áminning unga forystumannsins í Reykjavík í sér skilning á þessu eðli vandans gæti hún hugsanlega orðið flokknum ávinningur. Ekki er þó ljóst að svo sé. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Landsmál og sveitarstjórnarmál: Hver er ávinning- ur áminningar? Skýringa er þörf Breskir kjósendur refsuðu Tony Blair og Verkamannaflokknum grimmilega í sveitarstjórnarkosningum í Englandi á dögunum. Landsmálin hafa einnig áhrif á sveitarstjórnarkosningarnar hér á landi um næstu helgi. En hvernig eru þau áhrif vaxin? - Tvær kannanir í röð benda til þess að Fram- sóknarflokkurinn nái ekki inn manni í höfuðborginni. Sjálfstæðisflokkurinn ber jafn mikla ábyrgð á þeim málum sem mest dynja á ríkisstjórnarflokkunum. En Sjálfstæðisflokkurinn ber höfuð hátt og bætir víða við sig meðan kjósendur gefa framsóknarmönnum langt nef og segja þeim nánast að súpa hel í skoðana- könnunum. Hér er skýringa þörf. Handaflið eitt eftir Björn Ingi Hrafnsson, efsti maður Framsóknarflokksins í Reykjavík, sagði í ljósvakamiðlunum í gær að flokkurinn hefði séð það svart áður, og ætlaði sér að ná í eitt prósentustig á dag fram að næstu helgi. Hann bar sig kannski ekki eins vel og Ómar Stefánsson flokks- bróðir hans í efsta sæti Framsóknar í Kópavogi. Ómar kvaðst í Fréttablaðinu í gær finna meðbyr þegar honum var leitt fyrir sjónir að flokkurinn væri að þurrkast út í Kópavogi. Viku fyrir þingkosningarnar 1999 birti RÚV könnun sem sýndi að Jón Kristjánsson kæmist ekki að í Austurlandskjör- dæmi. Flokksmaskínan var ræst og Framsókn bætti við sig einu prósentustigi á dag fram að þingkosningun- um. Jón flaug inn á þing. Þægindi fyrir kjósendur Guðmundur Ólafsson hagfræðingur var meðal gesta í Silfri Egils í gær og ræddi hagstjórn og sveitarstjórnarkosningar við aðra mæta menn. Guðmundur sagði eitt- hvað á þá leið að svo vel útilátin væru vel- ferðarmálin á stefnuskrám allra flokkanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar að eig- inlega væri ekkert annað eftir en að lofa kjósendum að borgarstarfsmenn tækju að sér að tyggja matinn ofan í þá. Sjálfur var Guðmundur ekkert of viss um hvað hann ætlaði að kjósa, en vinátta við ýmsa frambjóðendur gæti ráðið úrslitum. - Kannski eiga framsóknarmenn fáa vini í röðum kjósenda en sjálfstæðismenn marga. Þá skipta stefnuskrárnar minna máli. johannh@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.