Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.05.2006, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 22.05.2006, Qupperneq 86
38 22. maí 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is Víkingar hafa tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í Landsbankadeildinni. Á föstudagskvöld beið liðið ósigur gegn Keflavík á útivelli en furðulegt atvik átti sér stað í leiknum. Varnar- maðurinn Grétar Sigfinnur Sigurðsson og Carl Dickinson fengu báðir að líta gula spjaldið frá Jóhannesi Valgeirssyni dómara eftir rifrildi, en það sem gerir þetta atvik sérstakt er að leikmennirnir eru samherjar hjá Víkingi. „Þetta var fáránlegt og asnalegt atvik, ég hef aldrei gert neitt þessu líkt áður,“ sagði Grétar Sigfinnur. „Hann skammaði mig og Höskuld fyrir einhvern misskiln- ing milli okkar. Þessir Bretar eru miklir í skapinu og ég sagði honum að hann ætti ekki að vera að tala svona við okkur en hann hélt alltaf áfram. Þá fór ég til hans og sagði honum að róa sig, þá ýtti hann mér og ég ýtti honum á móti. Það var ekkert meira en það.“ Carl Dickinson er enskur miðjumaður sem er nýkominn til Víkinga á lánssamn- ingi frá Stoke. Atvikið átti sér stað á 60. mínútu og fimm mínútum síðar var Dickinson tekinn af velli. „Hann var búinn að vera heitur í leiknum og var að svara mönnum, svo strax eftir að hann fékk þetta gula spjald fór hann í tæklingu og við sáum ekki fram á annað en hann væri að fara að fá rautt spjald. Þá tók Maggi hann af velli, það var ekkert verið að refsa honum fyrir atvikið milli okkar,“ sagði Grétar. Eftir leikinn töluðu Grétar og Dickinson lengi saman og er allt í góðu milli þeirra núna. „Hann er mjög fínn strákur og það er ekkert vont á milli okkar. Hann er samt óneitanlega svakalegur skaphundur og það er stundum erfitt að temja þessa Breta, þeir vilja ekki láta segja sér fyrir verkum og kunna stundum ekki að hlusta,“ sagði Grétar. GRÉTAR SIGFINNUR SIGURÐSSON: FÉKK GULT SPJALD FYRIR AÐ RÍFAST VIÐ SAMHERJA SINN Stundum er erfitt að temja Breta LA N DS BA N K AD EI LD IN KAPPAKSTUR Byrjað verður að smíða kappakstursbraut í Reykja- nesbæ í sumar en þetta var form- lega kynnt í bænum á laugardag- inn. Brautarsvæðið verður byggt í áföngum en fullbúin verður braut- in 4,2 km að lengd. Gert er ráð fyrir hóteli, veitingahúsum, kvik- myndahúsi, skemmtistað og ýmsu fleira í kringum svæðið. Erlendir aðilar fjármagna verkefnið en yfirhönnuður er Clive Bowen. Reykjanesbær mun á næstunni fara vandlega yfir framtíðarhorf- ur þessa gríðarstóra verkefnis en markmið brautarinnar er að skapa vettvang á heimsmælikvarðafyrir kappakstur, stuðla að auknum ferðamannastraum og búa til svæði fyrir öðruvísi viðskiptaum- hverfi. Akstursleiðin að Bláa lón- inu liggur framhjá brautarstæð- inu og af þeim sökum verður reist þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn við brautina. - egm Kappakstur á Reykjanesi: Alvöru braut byggð á Íslandi FORMÚLAN Brátt mun þessi sjón blasa við okkur í Reykjanesbæ. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Bjarki Guðmundsson, markvörður ÍA, fékk rautt spjald fyrir olnbogaskot í leiknum gegn KR í Landsbankadeildinni á laug- ardag. Hann verður því í banni þegar Skagamenn heimsækja FH á fimmtudaginn en þeir þurfa nauðsynlega að fara að ná sér í stig í mótinu. Varamark- vörðurinn Páll Gísli Jónsson er enn að jafna sig eftir speglun og því mun reynslu- boltinn Þórður Þórðarson að öllum líkindum standa í marki ÍA gegn FH. „Það stefnir allt í það, þetta var kannski ekki alveg það sem maður vonaði en svona er þetta bara. Ég er ekki í neinni þjálfun en ég held að það verði ekki mikið mál að hoppa inn og taka eins og einn leik,“ sagði Þórður . Í byrjun sumars í fyrra hætti Þórður sem leikmaður ÍA vegna veikinda en hann er nú aðstoðar- maður Ólafs Þórðarsonar hjá félaginu og sér um markmanns- þjálfun. Hann lýsti því yfir fyrir stuttu að hann ætlaði að vera til taks meðan Páll Gísli væri að jafna sig af meiðslum. „Mér líst vel á leikinn gegn FH, ég held að þetta verði bara þrælgaman. Ég vona samt að þetta verði eini leikurinn í sumar sem ég þarf að stökkva inn í,“ sagði Þórður en svo gæti farið að Bjarki fengi tveggja leikja bann og þá verður Þórður einnig í markinu gegn Val. - egm Rauða spjaldið hjá Bjarka: Þórður í marki ÍA gegn FH ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON > Fylkir vildi Markús Mána Fylkismenn hafa að mestu gefið upp vonina á að Markús Máni Michaelsson spili með liðinu á næstu leiktíð en félag- ið átti í viðræðum við landsliðsmanninn um tíma. Að sögn Sigmundar Lárusson- ar, formanns meistaraflokksráðs félags- ins, er afar ólíklegt að Markús Máni komi til Íslands en hann var hugsaður sem arftaki Heimis Arnar Árnasonar, sem er á leið til Danmerkur. Fylkismenn munu halda öllum öðrum leikmönn- um sínum fyrir næstu leiktíð og segir Sigmundur að félagið hafi hug á því að styrkja hópinn með 3-4 leikmönnum til viðbótar. „Við erum með nokkra í sigtinu hér heima og erum einnig byrjaðir að skoða erlenda leikmenn af mikilli alvöru,“ sagði Sig- mundur við Frétta- blaðið. Viktor Þór vann tvöfalt Íslenski ökuþórinn Viktor Þór Jensen, sem keyrir í Palmer-Audi formúlunni, sigraði á tveimur fyrstu mótum tímabils- ins sem fram fóru í London í gær. Viktor hóf keppni annar frá ráspól en náði for- ystu strax á fyrsta hring sem hann hélt síðan út allan kappaksturinn. Í síðari keppninni hóf Viktor keppni á ráspól og hafði forystu allan tímann. ÍSLENSKUR SIGUR Í DIGRANESI Íslenska kvennalandsliðið í blaki gerði sér lítið fyrir og sigraði í fyrsta riðli undankeppni Evrópumóts smáþjóða sem haldinn var í íþróttahúsinu í Digranesi um helgina. Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í keppninni og sýndi gríðar- legan karakter í úrslitaleiknum gegn Kýpur í gær. Kýpverjar náðu 2-0 forystu en með mikilli baráttu náðu íslensku stelpurnar að jafna metin og tryggja síðan 3-2 sigur með 15-8 sigri í oddalotunni. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Skotlandi á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Nokkrir stuðningsmanna Grindavíkur gengu berserksgang á Fylkisvelli á föstudag eftir að Grindavík hafði beðið lægri hlut fyrir heimamönnum í Fylki í leik liðanna í Landsbankadeildinni. Stuðningsmennirnir voru mjög ósáttir við dómara leiksins og reyndu eftir fremsta megni að komast að honum eftir að leik lauk. Gæslumenn Fylkis á leikn- um þurftu að hafa sig alla við til að hindra stuðningsmennina í að komast að dómaranum en í stað- inn létu þeir reiði sína bitna á nokkrum stólum í stúkunni auk þess sem þeir brutu tvö auglýs- ingaspjöld. Lögreglan tók skýrslu af for- ráðamönnum Fylkis eftir að leik lauk og tók myndir af skemmdar- verkunum. Að sögn Arnar Haf- steinssonar, framkvæmdastjóra Fylkis, mun félagið senda bréf til KSÍ þar sem greint verður form- lega frá uppákomunni á föstudag. „Þetta eru óverulegar skemmd- ir sem um er að ræða en það er aðallega þessi framkoma sem við erum ósattir við. Svona rugl þarf að stöðva í fæðingu. Það eru bara fótboltabullur sem haga sér svona,“ sagði Örn. Svo virðist sem stuðningsmenn liða í Landsbankadeildinni komi nokkuð heitir undan vetri því í fyrstu tveimur umferðum deildar- innar hafa þrjú atvik sem fela í sér ólæti áhorfenda komið upp. Í leik KR og FH í Frostaskjólinu fyrir viku síðan var aðskotahlut- um kastað að lukkudýri KR-inga og í viðureign ÍA og KR á laugar- dag mátti ekki miklu muna að upp úr syði á milli stuðningsmanna lið- anna eftir að nokkrir áhangendur KR höfðu kveikt á blysum. Notkun blysa er með öllu óheimil á knatt- spyrnuleikjum hvarvetna í Evr- ópu. Geir Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, hafði ekki heyrt af málinu á Árbæjarvelli þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær, en hann sagði að slík mál réðust að miklu leyti af skýrslum eftirlitsmanna á leiknum, sem berast venjulega ekki fyrr en nokkrum dögum eftir leik. Geir sagði engu að síður að KSÍ liti mál sem tengdust ólátum áhorfenda mjög alvarlegum augum. Refsi- ramminn í slíkum málum nær allt frá áminningu, sektum og jafnvel heimaleikjabanni, að sögn Geirs. „Það er áhyggjuefni ef áhorf- endur haga sér ekki vel á leikjun- um en ég held að við séum ekki farnir að kljást við bullur ennþá,“ sagði Geir. vignir@frettabladid.is Það þarf að stöðva svona fótboltabullur í fæðingu Nokkrir stuðningsmenn Grindavíkur brutu stóla og auglýsingaskilti á Fylkis- vellinum eftir leik liðsins við Fylki á föstudagskvöld. Fylkismenn hafa áhyggjur af vaxandi ólátum áhorfenda. KSÍ lítur svona mál alvarlegum augum. SKEMMDARVERK Svona lítur eitt sætið á Fylkisvellinum út eftir meðferð eins stuðnings- manna Grindavíkur á því á föstudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.