Fréttablaðið - 22.05.2006, Side 88

Fréttablaðið - 22.05.2006, Side 88
 22. maí 2006 MÁNUDAGUR40 EINAR LOGI VIGNISSON GERIR UPP TÍMABILIÐ Á SPÁNI OG ÍTALÍU Spánn í sigurvímu en Ítalía í sjokki Það er heldur ólík stemningin þessa dagana í höfuðlöndum suðrænnar knattspyrnu, Spáni og Ítalíu. Spánverjar fagna því ákaft að spænsk lið hafi sigrað í báðum Evrópukeppnunum á meðan Ítalir naga neglurnar af angist vegna hneykslismála sem gætu haft hrikaleg áhrif á fjöl- mörg lið. Nær allir knattspyrnu- áhugamenn í löndunum fylgja þessum skapsveiflum, ekki ein- ungis aðdáendur þeirra liða sem í hlut eiga. Þannig fer vellíðunar- straumur um alla spænska, jafn- vel aðdáendur Real Madrid, því þessi góði árangur staðfestir stöðu Primera Liga sem allra sterkustu deildar í Evrópu enn eitt árið. Spænska deildin hefur á þessum fyrsta áratug nýrrar aldar tekið þá stöðu sem ítalska deildin naut á síðasta áratug. Ógæfu Ítalíu verð- ur hins vegar allt að vopni, deildin hefur ekki verið svipur hjá sjón undanfarin ár og hneykslismálin eru dropinn sem fyllir mælinn. Botninum er náð og Ítalir verða að horfa í augu við þá staðreynd að eitthvað róttækt verður að gera. Moggiopoli Ítalir kalla skandalinn Moggi- opoli, sett saman úr nafni Moggi og Napólí þar sem rannsóknin hófst. Fjölmiðlar eru fullir af fréttum um málið á hverj- um degi og birta langar skýrslur úr dómsölum, frá yfirheyrslum og orðrétt símtöl sem voru hleruð. Það er afskap- lega erfitt að ná utan um málið, það teygir anga sína víða og margt er heldur smá- smyglislegt. Harka færðist í leikinn í vikunni, rannsóknar- nefnd á vegum þingsins hefur verið skipuð og fjármálalögreglan réðst inn á heimili Moggi, Ibrahim- ovic og Cannavaro. Það hversu málið er víðfeðmt skapar yfirvöld- um mikinn vanda. Hættan er sú að svo margir séu flæktir í eitthvað misjafnt að mönnum fallist hendur og einhvers konar „þjóðarsátt“ verði um að dæma ekki liðin niður um deild. Þannig er ljóst að Juventus, Milan, Lazio og Fiorent- ina verða ekki send niður öll á einu bretti. Annað vandamál er for- dæmið sem harðneskjuleg með- ferðin á Genóa skapar. Genóa var dæmt alla leið niður í Serie C og auðvitað ætti Juventus að fá sömu meðferð. Enginn talar þó um nema Serie B því vitað er að lengra verð- ur ekki gengið. Nóg um hneyksli og að boltan- um í vetur. Juventus hafði örugga forystu allan veturinn eins og í fyrra. Liðið hefur verið í fyrsta sæti í heil tvö tímabil, eða 76 leiki, og hefur Fabio Capello verið dug- legur að benda á þessa staðreynd og spyrja hvort menn trúi því virkilega að liðið hafi þurft á aðstoð dómara að halda við að ná þessum frábæra árangri. Juve lék stórvel í haust en átti hrapallegan lokakafla og AC Milan var farið að narta í hælana á því. Enginn leik- maður þessara liða skar- aði fram úr, liðsheild Juve var sterk og leik- menn AC Milan voru allir brokkgengir eins og liðið í heild. Fior- entina og Roma voru skemmtilegustu liðin og skörtuðu bestu leik- mönnum ársins. Franc- esco Totti reif sína menn áfram í ellefu leikja sig- urlotu áður en hann meiddist og Luca Toni skoraði fleiri mörk en nokkur hefur afrek- að í meira en hálfa öld. Toni er af flestum talinn leikmaður ársins og er ég sammála því vali en ég hef tekið saman lið ársins í suðrænu deildunum og hafði til hliðsjónar einkunnagjafir helstu dagblaða og val þeirra sparkspekinga sem ég hef mestar mætur á. Leikmaður ársins: Luca Toni Lið ársins: Peruzzi (Lazio), Canna- varo (Juventus), Grosso (Paler- mo), Zaccardo (Palermo), Kaladze (Milan), De Rossi (Roma), Totti (Roma), Emerson (Juventus), Del Piero (Juve), Suazo (Cagliari), Toni (Fiorentina). Börsungar bestir Ronaldinho var kóngurinn á Spáni í vetur og er óumdeildur leikmaður ársins. David Villa hjá Valencia kom mest á óvart og var markahæstur ásamt Samuel Eto‘o. Osasuna var spútniklið vetrarins og nældi sér í sæti í Meistaradeild- inni á markamun á kostnað Sevilla sem galt fyrir lélega byrjun leik- tíðar. Sevilla huggaði sig við sigur í Evrópukeppni félagsliða og hrak- farir sveitunga sinna í Real Betis sem brugðust liða mest. Börsung- ar eru fyrirferðarmiklir í liði árs- ins, enda með langbesta liðið. Taka verður það bessaleyfi að bæta við tólfta manninum, ofurvaramann- inum Henke Larsson. Leikmaður ársins: Ronaldinho. Lið ársins: Pinto (Celta Vigo), Alves (Sevilla), Puyol (Barca), Marquez (Barca), Pernía (Getafe), Riquelme (Villarreal), Senna (Villarreal), Deco (Barca), Ronald- inho (Barca), Villa (Valencia) og Eto‘o (Barca). Margrét K. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri og varaborgarfulltrúi 2 sæti BORGARBÚAR ÞÖKKUM VAXANDI STUÐNING Margréti í borgarstjórn! Forgangsröðun til fólksins Flugvöllinn áfram Lifi Laugavegurinn Betri strætó Meira íbúalýðræði Verndum náttúrna Efl um þekkingariðnað FÓTBOLTI Watford bættist í gær í hóp Reading og Sheffield United sem liðin sem unnu sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Watford sigraði Leeds með sannfærandi hætti á Þúsaldarvell- inum í Cardiff í gær, 3-0, en flestir eru á því að sjaldan hafi úrslitin verið eins óvænt. Mörk frá Jay DeMerit og Darius Henderson og slysalegt sjálfsmark frá mark- verðinum Neil Sullivan skildu á milli liðanna í gær en Watford mætti mun ákveðnarra til leiks og átti sigurinn skilinn. Watford var alls ekki spáð góðu gengi í 1. deildinni í ár og gengu sumir svo langt að spá liðinu falli niður í 2. deild. Liðið missti tvo af sínum bestu mönnum, Íslending- ana Heiðar Helguson og Brynjar Björn Gunnarsson, og fékk litla spámenn í staðinn en þjálfarinn Adrian Boothroyd vann krafta- verk með þann hóp sem hann hafði í höndunum og uppsker nú laun erfiðsins. „Við vorum mjög sigurvissir enda sjálfstraustið í herbúðum liðsins engu líkt. Boothroyd er snillingur í að búa okkur undir mikilvæga leiki og það skildi á milli í dag,“ sagði Gavin Mahon, leikmaður Watford, eftir leikinn. Hinn árlegi úrslitaleikur um laust sæti í úrvalsdeildinni er oft nefndur stærsti og mikilvægasti leikurinn í fótboltaheiminum sökum þess gríðarlega fjárhags- lega ávinnings sem felst í því að spila í efstu deild í stað þeirrar næstefstu í Englandi. Talið er að Leeds hafi orðið af fjörutíu millj- ónum punda með tapinu í gær, eða um sex milljörðum króna. „Þetta er ótrúlegt. Ég vissi allt- af að þetta yrði okkar dagur. Ég trúi varla að við höfum afrekað að komast upp,“ sagði Boothroyd í leikslok. - vig Úrslitaleikurinn um sæti í ensku úrvalsdeildinni: Öruggt hjá Watford ÓTRÚLEGUR ÁRANGUR Watford var spáð falli úr 1. deildinni síðasta haust en liðið blés svo sannarlega á allar hrakspár. Liðið spilar í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.