Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.12.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 16.12.2006, Qupperneq 4
 Nú starfa rúmlega 1.050 íslenskir læknar hér á landi og tæplega 500 erlendis. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni skýrslu um spá um þörf fyrir vinnuafl í heilbrigðis- kerfinu. Læknaskortur á Íslandi er óverulegur en hægt væri að fjölga læknum hér á landi um tæplega 50 prósent ef þeir sem eru erlendis sneru heim aftur. Þó nokkrir læknar sem starfa erlendis hafa áhuga á að snúa aftur til Íslands en hafa ekki tækifæri til þess sökum þess að sumar sérfræðigreinar eru fullmannaðar. 500 læknar starfa erlendis „Ég teldi mig pólitískan náttúruleysingja ef ég hlustaði ekki á rödd fólksins,“ segir Hjálm- ar Árnason, sem hefur boðið sig fram í 1. sæti í prófkjöri Fram- sóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Hjálmar, sem hafði tilkynnt á kjördæmaþingi fyrir aðeins einum mánuði að hann stefndi á 2. sæti, segir stöðuna hafa breyst eftir „hraklega útreið“ Suðurnesja- manna í prófkjörum annarra flokka í kjördæminu. Hátt í tvö þúsund manns hafi skorað á hann að bjóða sig fram í 1. sætið. Ótækt þyki að Suðurnesjamenn eigi ekki mann á lista sem öruggur sé með þingsæti. „Spurningin er hvort menn vilji sjá nýjan kaftein í brúnni og prófa Guðna sem fyrsta stýrimann eða halda áfram óbreyttu,“ segir Hjálmar. „Ég hef aldrei hræðst sam- keppni og hún er mikilvæg,“ segir Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins og núver- andi 1. þingmaður Framsóknar- flokksins í Suðurkjördæmi. Guðni segir framboð Hjálmars koma sér á óvart í ljósi yfirlýsingarinnar á kjördæmaþinginu. „Hann metur þetta fyrir sína parta og tekur sínar ákvarðanir en ég mæti þessari baráttu og kvíði því ekki. Ég á stuðning framsókn- armanna í kjördæminu. Ég þekki kjördæmið og ég þekki fólkið vel og er því bæði ókvíðinn og óhrædd- ur,“ segir Guðni. Guðni óhræddur við Hjálmar Leiðtogar Evrópusam- bandsins lýstu því yfir í gær að „dyrnar væru opnar“ fyrir Tyrkj- um og öðrum þjóðum sem sæktust eftir aðild að sambandinu, en þeir áréttuðu jafnframt að enginn fengi inngöngu í sambandið nema að uppfylltum ströngum skilyrð- um sem ekki yrði veittur afsláttur af. Tveggja daga misserisloka- fundi leiðtoganna lauk í Brussel í gær, en hann var að þessu sinni fyrst og fremst helgaður stefnu sambandsins gagnvart frekari fjölgun aðildarríkja. Leiðtogarnir reyndu jafnframt að koma sér saman um leið út úr „stjórnar- skrárkreppunni“ sem staðið hefur frá því meirihluti kjósenda í Frakklandi og Hollandi höfnuðu fullgildingu svonefnds stjórnar- skrársáttmála sambandsins snemmsumars í fyrra. Í lokaálykt- un fundarins segir að ekki verði unnt að taka inn fleiri aðildarríki eftir að þeim fjölgar úr 25 í 27 með inngöngu Rúmeníu og Búlgaríu nú um áramótin, nema fyrst verði búið að koma í gildi þeirri upp- færslu á ákvarðanatöku- og stofn- anakerfi sambandsins sem kveðið var á um í hinum strandaða stjórn- arskrársáttmála. Strax eftir fundinn kom þó í ljós ágreiningur um leiðir að þessu marki. Spánverjar vilja að sú málamiðlun um þessi mál sem í stjórnarskrársáttmálanum felst verði sá grunnur sem byggt verði á, og þeir sýndu frumkvæði að því að kalla saman á næsta ári ráð- stefnu þeirra átján af aðildarþjóð- unum 25 sem þegar hafa fullgilt sáttmálann. Hollenski forsætis- ráðherrann Jan Peter Balkenende sagði þessa ráðstefnuboðun „blauta tusku í andlit“ þjóðanna tveggja sem höfnuðu sáttmálan- um. Finna verði aðra leið. Þótt meirihluti aðildarríkjanna hafi fullgilt sáttmálann fyrir sitt leyti getur hann ekki tekið gildi nema þau hafi öll gert það. Leiðtogarnir staðfestu þá ákvörðun að frysta aðildarviðræð- ur við Tyrki að hluta vegna þess að þeir hafa ekki staðið við samn- ingsskuldbindingar gagnvart ESB- aðildarríkinu Kýpur. Þeir gáfu jafnframt skýr skilaboð um að til- vonandi aðildarríki – Tyrkland, Albanía, Bosnía-Herzegovína, Króatía, Makedonía, Svartfjalla- land og Serbía – yrðu að hrinda í framkvæmd víðtækum umbótum á stjórnsýslu sinni og dómskerfi, auk þess að herða sig í baráttunni gegn spillingu, vilji þau eiga möguleika á að fá aðild að sam- bandinu í framtíðinni. Hert á aðildarkröfum Evrópusambandsins Leiðtogar ESB luku misserislokafundi sínum í gær með því að árétta að dyr sambandsins verði áfram opnar fyrir þjóðum sem uppfylla aðildarskilyrðin. Ekki verði þó af frekari stækkun fyrr en stjórnkerfi sambandsins hefur verið uppfært. Á síðustu fjórum árum hefur fimm sinnum verið reynt að kveikja í kaffistofu Lifrasamlagsins í Vestmannaeyj- um. Í öllum tilfellum hafa íkveikjutilraunirnar átt sér stað yfir vetrartímann í skjóli nætur. Síðast var reynt að kveikja í kaffistofunni í byrjun mánaðar- ins en þá fannst terpentína á staðnum. Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur engar vísbendingar um hver gæti hafa verið þarna að verki. Hún vinnur nú að rannsókn málsins og óskar eftir upplýsing- um frá almenningi sem gætu leitt til þess að hún upplýsi málið. Íkveikja reynd fimm sinnum Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, hélt í gær til Tyrk- lands og ætlar að halda þaðan áfram til Mið- Austurlanda. Blair hyggst nota þessa ferð til þess að efla trú Tyrkja á að þeir eigi enn góða möguleika á inngöngu í Evrópu- sambandið, og síðan ætlar hann að reyna hvað hann getur til þess að koma friðarferli milli Palest- ínumanna og Ísraela í gang á ný. „Það getur verið að mér takist það ekki,“ sagði Blair, „en ég ætla að reyna vegna þess að friður í Mið-Austurlöndum er ósigur hryðjuverkamanna.“ Reynir að blása lífi í friðarferlið Einn maður er enn í einangrun á Landspítala – háskólasjúkrahúsi eftir að fjölónæma bakterían MÓSA greindist í honum á fimmtudag- inn í síðustu viku. Samtals þrjátíu sjúklingar voru settir í einangrun á spítalanum eftir að bakterían greindist. Hún greindist ekki hjá 29 þeirra. Að sögn Ólafs Guðlaugssonar, yfirlæknis sýkingavarna Land- spítalans, er þessi eini maður sem enn er í einangrun meðhöndlaður eftir þörfum, en ekki er unnt að gefa nánari upplýsingar um líðan hans að svo stöddu. Einn er enn í einangrun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.