Fréttablaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 36
Elskuleg móðir mín og fósturmóðir okkar,
Ingileif Ágústa Jóhannesdóttir
Dvalarheimilinu Hlíð, áður til heimilis að
Víðilundi 20, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 8. desember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn
18. desember kl.13.30. Blóm og kransar afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Samband
íslenskra kristniboðsfélaga.
Guðrún Hjaltadóttir Friðrik Vestmann
Hjalti Hjaltason Vilhelmína Norðfjörð Sigurðardóttir
Rósa Hjaltadóttir Hugi Kristinsson
Anna Friðriksdóttir Guðlaug Pétursdóttir
Sverrir Valdimarsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Guðmunda Sjöfn Sölvadóttir
Einigrund 4, Akranesi,
lést 13. desember á Sjúkrahúsi Akraness. Útförin fer
fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 20. desember
kl. 14.
Jakob Sigtryggsson
Sölvi F. Jóhannsson Sólveig Hólm
Anna S. Ólafsdóttir Úlfur Úlfarsson
Trausti Ægir Ólafsson
Silja Sjöfn Sölvadóttir
Sara Mist Sölvadóttir
Telma Sif Sölvadóttir
Kristján Jakobsson
Guðbjörg Jakobsdóttir
Steindór Jakobsson
Guðlaug M. Jónsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Sigríður
Jóhannsdóttir
Sólvangsveg 2, áður Öldugötu 10,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi 12. des. sl. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 20. des. kl. 13.00.
Jóhanna Kristjánsdóttir Þórarinn Óskarsson
Sigurrós Kristjánsdóttir Stefán Árnason
Salómon Kristjánsson Ingibjörg Kjartansdóttir
Fjóla Kristjánsdóttir Stefán Vilhjálmsson
Ragnheiður Kristjánsdóttir Ingvi Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hamingja í hjóna-
bandi er fullkomlega
háð tilviljun.
Pakistanar hörfa frá Bangladess
Framsóknarflokkurinn fagnar 90 ára
afmæli sínu í dag með hátíðarhöldum
víðs vegar um landið. Í Reykjavík
halda framsóknarmenn samverustund
í flokksskrifstofunnni við Hverfis-
götu, en á heimasíðu flokksins, www.
xb.is, má finna lista yfir hvar samkom-
urnar fara fram annars staðar á land-
inu.
Framsóknarflokkurinn var stofnað-
ur árið 1916 með samruna Bænda-
flokksins og Óháðra bænda. Síðan þá
hefur flokkurinn átt aðild að fjölda
ríkisstjórna og hefur verið samfleytt
við stjórnartaumana frá 1995 til dags-
ins í dag. Einnig hefur flokkurinn
mikið látið að sér kveða í sveitarstjórn-
armálum og situr hann í meirihluta í
borgarstjórn ásamt Sjálfstæðisflokki.
Margar litríkar persónur hafa prýtt
flokkinn frá stofnun hans og má þar
meðal annars nefna Jónas frá Hriflu,
fyrrverandi menntamálaráðherra,
Halldór Ásgrímsson og Hermann Jón-
asson forsætisráðherra í mörg ár.
Sonur hans, Steingrímur Hermanns-
son, var einnig forsætisráðherra fyrir
hönd flokksins og formaður hans um
fimmtán ára skeið.
„Ég mæti að sjálfsögðu í gleðskap-
inn við Hverfisgötu, en ég fer ekki að
halda neinar ræður,“ segir Steingrím-
ur. „Það hefur verið mikið um skemmt-
anahöld gegnum tíðina hjá flokknum
og héraðsmótin voru afar mörg og fjöl-
menn hér áður fyrr. Mikið var af litl-
um kjördæmum úti um allt land, maður
þekkti mann. Í Reykjavík voru fjöl-
mennir fundir þar sem var mikið fjör
og menn tókust á.“
Steingrímur hefur átt langan feril í
forystusveit Framsóknarflokksins.
„Það sem ég minnist helst af mikilli
ánægju er að hafa starfað með fólkinu
í flokknum. Ég ætlaði aldrei í stjórn-
mál, ég var verkfræðingur, en kom svo
inn í þetta vegna föður míns. Ég ferð-
aðist um landið og fannst gaman að
hitta landsmenn og ræða málin,“ segir
Steingrímur.
AFMÆLI