Fréttablaðið - 16.12.2006, Síða 82
Þ
að er ekki ósvipað
með andlát Díönu
prinsessu og morðið á
Kennedy Bandaríkja-
forseta, að margir
sem upplifðu þessa
atburði muna gjörla hvar þeir voru
staddir þegar þeim bárust fréttirn-
ar.
Díana prinsessa var enda ein
þekktasta kona heims á þessum
tíma ekki síst vegna allra þeirra
erfiðleika og umfjöllunar sem
hjónaband hennar og síðan skilnað-
ur við Karl ríkisarfa í Bretlandi,
hafði fengið. Óhætt er að segja að í
öllu því máli hafi almenningsálitið
verið á bandi Díönu og hún var elsk-
uð og virt af fólki um allan heim,
nokkuð sem breska konungsfjöl-
skyldan getur ekki státað sig af.
Samt var Díana enginn engill eins-
og síðar hefur komið í ljós en það
sýnir fyrst og fremst að hún var
mannleg og gerði sín mistök einsog
við öll og var óhrædd við að viður-
kenna þau, ólíkt tengdafólkinu
fyrrverandi.
Og kannski voru það mistök sem
urðu henni að aldurtila, þessa
örlagaríku nótt í París undir lok
ágúst 1997. Í öllu falli urðu henni á
þau mistök eða aðgæsluleysi að
spenna ekki á sig bílbeltið í bílnum
hjá Henry Paul; læknar segja að
hún hefði mjög líklega lifað slysið
af hefði hún verið í bílbelti.
En hvað er það sem gerir það að
verkum að orðrómur um að slysið
hafi ekki verið slys, heldur morð,
er svo sterkur að enn tæpum tíu
árum eftir atburðinn eru menn að
skoða hann ofan í kjölinn?
Fyrst kemur það að faðir Dodis
Al Fayed, elskhuga Díönu, hefur
verið ötull við að halda samsæris-
kenningum á lofti. Mohamed Al
Fayed er einn ríkasti maður Bret-
lands og þótt víðar væri leitað og
fyrir utan þá þungbæru raun að
missa son sinn í þessu hörmulega
slysi, hefur hann átt í útistöðum
við bresk stjórnvöld út af ýmsu svo
sem ríkisborgarararétti og við-
skiptaumsvifum sínum. Hann telur
sig því hafa fyllstu ástæðu til að
gruna bresk stjórnvöld um
græsku.
Honum hefur hins vegar orðið lítt
ágengt, annað en að draga þessa
hörmungarsögu á langinn. Allar
tilraunir hans til að tortryggja
rannsókn franskra stjórnvalda sem
og breskra á slysinu hafa að engu
orðið.
Og sama er að segja um ýmsar
kenningar og yfirlýsingar hans um
slysið og aðdraganda þess, svo sem
að Díana hafi verið ólétt eftir Dodi
er hún lést og að hún og Dodi hafi
ætlað að tilkynna opinberlega um
trúlofun sína kvöldið sem slysið
varð.
Ekkert af þessu hefur fengist
staðfest, þvert á móti hafa bæði
franskar og breskar læknaskýrslur
borið að prinsessan var ekki ófrísk
er hún lést og enginn af kunningjum
eða vinum Díönu trúir því að hún
myndi taka svo stóra ákvörðun og
trúlofa sig án þess að ráðfæra sig
við nokkurn af nánastu vinum
sínum.
Allt frá upphafi hefur Al Fayed
reynt að kenna öllum öðrum en bíl-
stjóranum Henry Paul um slysið,
þrátt fyrir að ítrekuð sýnataka úr
líki bílstjórans hafi leitt í ljós að
hann var bæði undir áhrifum
áfengis og lyfja er slysið varð.
Nú síðast í þessum mánuði var
staðfest með DNA-greiningu að þau
sýni sem áður höfðu verið tekin úr
líki Henrys Paul, og niðurstöður
rannsókna byggðust á, væru sannar-
Dauði Díönu prinsessu
Á næsta ári eru tíu ár liðin frá því Díana prinsessa beið bana í því sem marg-
ir segja þekktasta bílslys sögunnar. Enn þann dag í dag eru menn ekki á eitt
sáttir um orsakir slyssins, var þetta slys eða var þetta glæsilega unga fólk myrt
með köldu blóði. Sigurður Þór Salvarsson kynnti sér sögu ráðgátunnar um
dauða Díönu prinsessu.