Fréttablaðið - 16.12.2006, Síða 110

Fréttablaðið - 16.12.2006, Síða 110
Jessica Simpson er ekki að gera neitt sérstaklega góða hluti þessa dagana. Á seinni árum hefur hún farið að þreifa fyrir sér á hvíta tjaldinu meðfram söngnum. Nú vinnur Simpson að tökum á mynd- inni Blonde Ambition með Luke Wilson, en henni hefur ekki tekist að heilla samstarfsfólk sitt upp úr skónum með leikhæfileikum sínum og raunar síður en svo. Söngkonunni er víst algerlega fyrirmunað að læra textann sinn, og eftir sjöundu árangurslausu tökuna brá leikstjórinn á það ráð að koma smáum hljóðnema fyrir í eyra Simpson og fá aðstoðarmann til þess að lesa hverja línu fyrir sig beint inn í eyrað á henni. Minnis- leysið fær víst ekkert á Simpson, en fregnir herma að tökuliðinu þyki þetta nokkuð pínlegt. Sjálf lætur Jessica þetta ekkert á sig fá og stefnir ótrauð að því að verða ein stærsta leikkona heims. Man ekki textann Frægu stjörnurnar í Holly- wood hafa tilhneigingu til að hópa sig saman og vera áberandi í skemmtanalíf- inu. Fréttablaðið kynnti sér nokkra af þekktustu vinum kvikmyndaborgarinnar. Þrátt fyrir að hið ljúfa líf Holly- wood sé eitthvað sem marga dreymir um er fátt jafn nöturlegt og að vera einmanna í miðjum stjörnufansinum. Margir leikarar bindast sterkum böndum í gegn- um leiklistarskóla, kvikmynda- gerð og jafnvel skemmtanalíf sem þeir síðan viðhalda og gefa jafnvel nafn. Hæfileikar þessara hópa eru þó misjafnir eins og þeir eru marg- ir en sá fyrsti „átti“ Hollywood eins og borgin lagði sig þegar hann spratt fram. The Rat Pack, eða Rottugengið, var viðurnefni sem hópur skemmtikrafta fékk. Þeir félagar voru afar áberandi í Hollywood frá miðjum sjötta áratugnum fram að miðju þess sjöunda. Hópurinn samanstóð af þeim Frank Sinatra, Dean Martin, Dammy Davis Jr., Peter Lawford og Joey Bishop. Komu þeir allir fram bæði í kvik- myndum og á sviði snemma á sjö- unda áratugnum. Meðal annars léku þeir í Ocean´s Eleven árið 1960 og Sergeants 3 tveimur árum síðar. Þrátt fyrir að hafa orð á sér fyrir að vera karlahópur voru konur á borð við Shir- ley MacLaine, Laur- en Bacall og Judy Garland einnig meðlimir í Rottu- genginu. The Rat Pack var ekki bara áberandi í skemmtanaiðnaðinum heldur líka í pólitík, enda var Law- ford mágur John F. Kennedy og barðist Rottugengið leynt og ljóst fyrir uppgangi demókrataflokks- ins auk þess sem Sinatra var lengi vel bendlaður við ítölsku mafíuna. Uppruni nafnsins Rat Pack hefur verið nokkuð á reiki. Ein sagan er sú að Lauren Bacall hafi eitt sinn sagt við eldri félaga sína í genginu að þeir hafi litið út eins og rottugengi. Önnur saga segir að leikarinn Humphrey Bogart hafi byrjað með hugtakið en hann var eiginmaður Bacall á þessum tíma. Hann átti að hafa nefnt hóp drykkjufélaga sinna The Holmby Hill Rat Pack og nafnið hafi fest við Rottugengið. Ein saga til viðbótar segir að nafnið sé tilvís- un í það hvernig hópur af rottum útilokar alla þá sem reyna að ganga til liðs við þær. The Brat Pack eða „óþekktarang- arnir“ kom fram á hinu umdeilda ´80 tímabili. Meðlimir hópsins voru ungar stjörnur á uppleið í kvikmyndaborginni en hafa ber í huga að flestar þessara stjarna hafa fallið í gleymskunnar dá. Hópurinn hélt til á skemmtistöð- um borgarinnar, lét öllum illum látum og sængaði saman með þeim afleiðingum að þegar upp úr slitn- aði fór allt í bál og brand. Hópurinn varð til í kringum kvikmyndir á borð við Breakfast Club og St. Elmos Fire sem allar nutu mikilla vinsælda meðal kvikmyndahúsa- gesta þótt flestir gagnrýnendur væru sammála um að þær væru ekki uppá marga fiska. Öldungis tveir meðlimir lifðu þennan vinskap af, þau Demi Moore og Emilio Estevez en til gamans má geta þess að þau hafa bundist aftur tryggðarböndum fyrir kvikmyndina Bobby sem vakið hefur mikla athygli þar vestra. Aðrir meðlimir hópsins til- heyra flestir fortíðinni og nægir þar að nefna Judd Nelson, Andrew McCarthy og Molly Ringwald. Frat pack eða „skrítni hópurinn“ rottaði sig saman eftir gaman- myndina Old School en félögunum var gefið þetta heiti í grein USA Today. Í fyrstu var það reyndar þegar EW kallaði ung- stirnin Leonardo DiCaprio, Ben Affleck og Matt Damon þessu nafni en þeir hafa aldrei viljað gangast við að vera sérstakir félagar og tilheyra einhverjum hópi. Frat Pack er opinber tilvísun til áðurnefndra hópa enda telja þeir sig vera mitt á milli þess að vera svalir og hallærislegir. Grínið er fyrirferðarmikið hjá þessum vinum enda eru margir af fremstu gamanleikurum Banda- ríkjanna í þessum félags- skap. Nægir þar að nefna Ben Stiller, Jack Black og bræðurnir Owen og Luke Wil- son auk forsprakka þeirra, Vince Vaughn. Nýlega bættist Steve Carrel við hópinn sem er hvað þekktastur fyrir frammistöðu sína í 40 year old Virgin og bandarísku útgáfunni af Office. The Crap Pack, eða Ruslgengið, er tilbúningur Fréttablaðsins sem samanstendur af helstu partí- dýrum Hollywood, sem eru mörg hver þekktari fyrir sukklíferni sitt en frammistöðu á öðrum svið- um. Þar eru fremst í flokki hótel- erfinginn Paris Hilton, Nicole Richie, Lindsay Lohan, Nick Lachey, Kevin Federline og tvíburasysturnar Mary-Kate og Ashley Olsen. Britney Spears kemst einnig á listann, því þrátt fyrir að hafa gert frábæra hluti á árum áður hefur hún undanfarn- ar vikur verið þekktari fyrir sukkið en tónlistarferilinn. Áfengisdrykkja, lystarstol, eiturlyfjaneysla, kaup á vændis- konum, brjóstaberanir og annars konar uppljóstranir eru á meðal þess sem Ruslgengið hefur látið spyrjast til sín að undanförnu auk kynlífsmyndbanda og svo virðist sem ekkert geti stöðvað The Crap Pack á leið sinni til glötunar. Hollywood-stjörnurnar Jennifer Lopez og Jim Carrey vísa á bug sögusögnum þess efnis að þau hafi snúist til trúar Tom Cruise og félaga í Vísindakirkj- unni vestur í Bandaríkjunum. Bæði hafa þau vingast við tommu- stokkinn Cruise nýlega en segjast ekki hafa neinn áhuga á Vísindakirkjunni og hlógu að fréttunum þegar þær voru bornar undir þau. Úr koppum innstu búra Hollywood seytla hins vegar þær fréttir að leik- konan Leah Remini, úr þáttunum King of Queens, sé að leiða hina rammkaþólsku Lopez í allan sannleik um Vísindakirkjuna og að Carrey hafi farið á nám- skeið til að fræðast um trúar- brögðin. Cruise gekk í það heilaga með Katie Holmes á dögunum og vakti það athygli að þau buðu Lopez og Marc Anthony, kærasta hennar, í brúð- kaupið sem og Carrey og Jenny McCarthy en ekki var vitað til þess að þau þekktust nokkuð að ráði. Lopez og og Cruise hafa hins vegar nokkrum sinn- um sést í slagtogi við Cruise og Holmes síð- ustu vikur. Segjast ekki vera í Vísindakirkjunni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.