Fréttablaðið - 16.12.2006, Page 112

Fréttablaðið - 16.12.2006, Page 112
Þegar leikarar í Hollywood velja sér hlutverk í kvik- myndum, þurfa þeir að vera afar passasamir. Röng hlut- verk gætu komið harkalega niður á vinsældum þeirra og auðvelt er að veðja á rangan hest. Eins þurfa framleiðendur að vera mjög varkárir þegar þeir velja leikara í hlutverk, en hinn almenni áhorfandi er mjög kröfuharður. Taka þarf með í reikninginn að stjarnan gæti verið á gráu svæði gagnvart áhorfendum, eins og til dæmis þeir Tom Cruise, Mel Gib- son og Michael Richards eru í dag eða ef áhorfandinn hefur skýra og ákveðna hugmynd um hvernig einhver persóna á að líta út. Eitt frægasta dæmi Hollywood um leikara sem hafnaði hlutverki er þegar mottukonungurinn Tom Selleck hafnaði hlutverki Indiana Jones. Tom vildi heldur leika í sjónvarpsþáttunum Magnum P.I og sem betur fer var það Íslandsvinurinn sjálfur Harrison Ford sem fékk hlutverkið. Fleiri leikarar hafa hafnað eða verið útilokaðir frá stórum rullum og kemur listinn manni mjög á óvart. Leikarinn Mel Gibs- on hefur hafnað fleiri stórum hlut- verkum en nokkr- um öðrum leikara hefur verið boðið. Segir sagan að honum hafi verið boðið hlutverk rómverska hershöfðingjans Max- imusar í kvikmyndinni The Gladi- ator en að hann hafi hafnað því. Eins og frægt er þá fékk Russell Crow hlutverkið og vann Óskars- verðlaun fyrir. Russell Crowe hefur í tvígang þurft að sætta sig við afganga Gibsons, en Mel var einnig boðið aðalhlutverk í kvik- myndinni Proof of Life. Þá hefur Kevin Costner einnig þurft að sætta sig við dreggjarnar en Gibs- on var efst á blaði leikstjórans Oli- vers Stone fyrir aðalhlutverk í kvikmyndinni JFK. Gibson þurfti svo að hafna hlutverki ofurhetj- unnar Batman þó hann væri allur af vilja gerður, en hann hafði þá þegar skuldbundið sig til þess að leika í kvikmyndinni Lethal Weap- on 2 á sama tíma. Leikarinn Tom Cruise hefur feng- ið mörg tilboð sem hann hefur þurft að hafna. Verst þótti honum að þurfa að afþakka aðalhlutverk kvikmyndarinnar Footloose, Tom var víst búinn að dusta rykið af dansskónum, en sökum skuldbind- inga sinna við framleiðendur myndarinnar All the right moves þurfti hann að rétta Kevin Bacon skóna. Af sömu ástæðum varð Cruise að hafna hlutverki Donnie Brasco í samnefndri mynd, en þá var hann upptekinn við upptökur á kvikmyndinni Eyes Wide Shut eftir Stanley Kubrick. Sagan segir að eftir að George Lucas gerði American Graffiti hafi hann komist að því að Harri- son Ford væri lunkinn smiður, en Ford lék aukahlutverk í myndinni. Hann hafi því ráðið hann til þess að smíða skápa á heimili sínu og í leiðinni notað hann til þess að leik- lesa með leikurum sem komu í prufur fyrir Star Wars. Steven Spielberg fannst Harrison svo kjörinn í eitt hlutverkanna og þannig á Harrison að hafa hreppt hlutverk Han Solo, sem skaut honum upp á stjörnuhimininn. Samkvæmt George Lucas voru það margir leikarar sem voru íhugaðir í hlutverk Solo meðal annars Silvester Stallone, Burt Reynolds, Nick Nolte, Kurt Rus- sell, Christopher Walken og síðast en ekki síst Al Pacino. Sá síðast- nefndi er sá eini sem var boðið hlutverkið, sem hann augljóslega hafnaði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.