Fréttablaðið - 16.12.2006, Page 118

Fréttablaðið - 16.12.2006, Page 118
 Birgir Leifur Hafþórsson lék vel í gær á Opna Suður-Afríku- mótinu í golfi sem fram fer í Port Elizabeth. Birgir Leifur lék á þremur höggum undir pari í gær og slapp með því í gegnum niður- skurð. Birgir Leifur mun því spila tvo hringi til viðbótar um helgina. Birgir Leifur lék fyrsta hring- inn í fyrradag á tveimur höggum yfir pari og þurfti því á góðu spili að halda í gær. Það gekk eftir og Birgir Leifur lék mjög vel í gær. Hann lék fyrstu níu holurnar á einu undir pari og í fínum málum Þegar Birgir Leifur hafði leikið sextán holur var hann á þremur höggum undir pari en á sautjándu og næstsíðustu holunni fékk Birg- ir Leifur skolla og var því á pari samtals fyrir síðustu holuna, en hann fékk tvöfaldan skolla á þeirri holu á fyrsta degi. Birgir Leifur hélt þó ró sinni og fékk fugl á síðustu holunni sem tryggði honum áframhaldandi keppni á mótinu. Hann var því að vonum ánægður þegar Fréttablað- ið náði tali af honum í gær. „Það var gaman að ná að stimpla sig aðeins inn og þetta var mjög mikilvægt svona áður en ég fer í frí. Ég var að slá betur í dag og hitta nær stönginni. Ég var að vísu ekki að nýta þau færi nægilega vel. Ég var að spila mun betur en skorið segir til um. Ég hefði viljað setja niður nokkur pútt t.d. á fyrstu níu holunum, ég var að spila virkilega vel þá. Það er alltaf ákveðinn léttir að komast í gegnum niðurskurð, þá fær maður eitthvað borgað og meiri reynslu. Sérstaklega svona rétt fyrir frí, þá getur maður andað aðeins léttar,“ sagði Birgir Leifur og bætti við að hann getur enn bætt sig fyrir framhaldið. „Nú verður maður bara að sækja og hafa gaman af þessu. Þetta liggur bara upp á við núna. Ef hlutirnir ganga vel á morgun þá getur maður kannski komið sér í góða stöðu.“ Spennan var mikil fyrir síðustu holuna en Birgir Leifur sagði að hann hafi ekki verið stressaður. „Ég vissi að mér dugði að fara hana á pari en fugl myndi vera bónus. Það var auðvitað svekkj- andi að fá skolla á par fimm holu sem var algjör óþarfi. Ég var að vísu svolítið óheppinn með legu á boltanum,“ sagði Birgir Leifur sem lék átjándu holuna á þremur höggum í gær en á sex höggum daginn áður. „Það var mikill léttir að klára þá holu. Mér leið ekkert vel fyrir upphafshöggið, þannig lagað. Það var líka bara gaman að sigrast á því. Maður verður bara að halda sig við það sem maður kann best og láta vaða,“ sagði Birgir Leifur. Patrik Sjoland er efstur fyrir tvo síðustu hringina á tólf höggum undir pari en einu höggi á eftir honum eru Suður-Afríkumennirn- ir Ernie Els og Trevor Immelm- an. Það vekur óneitanlega athygli þegar staðan er skoðuð að á meðal tíu efstu manna á mótinu fyrir tvo síðustu hringina eru sex Suður- Afríkumenn, tveir Svíar og tveir Englendingar. Birgir Leifur lék vel á Opna Suður-Afríkumótinu í gær og komst í gegnum nið- urskurð. Birgir lék á þremur höggum undir pari og er samtals á einu undir. Í gær var dregið í 32 liða úrslit í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Ríkjandi meistarar Sevilla eiga erfiðan leik fyrir höndum en þeir mæta rúmensku meisturunum Steaua Búkarest. AZ Alkmaar, lið þeirra Grétars Rafns Steinssonar og Jóhannesar Karls Guðjónssonar, þurfa að ferðast til Tyrklands þar sem þeir mæta Fenerbahce. Tottenham, hitt Íslendingaliðið í keppninni, mætir Feyenoord frá Hollandi en með Tottenham leikur Emil Hallfreðsson. Enska liðið Newcastle mætir belgíska liðinu Zulte-Waregem og Blackburn á erfiðan leik fyrir höndum gegn þýska liðinu Bayer Leverkusen. Þá mætast Werder Bremen og Ajax í leik sem klárlega verður að teljast einn af leikjum 32 liða úrslitanna. Tottenham til Hollands Pat Riley, þjálfari Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta, lýsti því yfir fyrr í vikunni að hann hefði áhuga á að fá Allen Iverson til liðsins. Fyrrverandi leikmaður LA Lakers og einn besti körfuboltamaður allra tíma, Erwin Magic Johnson, er efins um að þau viðskipti séu góð fyrir meistara Miami Heat. „Það yrði erfið aðstaða af því að Iverson er vanur að taka 30 skot í leik. Hjá Miami fær hann ekki að taka 30 skot. Mun hann sætta sig við það? Munu hinir leikmennirnir sætta sig við að hann einoki boltann því Iverson þarf að hafa boltann til að skila árangri,“ sagði Magic. Miami Heat er eitt af mörgum liðum sem lýst hafa áhuga á að fá Iverson til liðs við sig en Iverson fór á dögunum fram á að fara frá liðinu. „Ég væri ekki að gera skyldu mína ef ég hefði ekki áhuga á Allen Iverson. Það er það eina sem ég hef að segja,“ sagði Riley. Passar ekki inn í leik Miami Spænski ökuþórinn Fernando Alonso mætti óvænt á æfingu með McLaren-liðinu á Jerez-brautinni á Spáni í gær. Alonso hefur síðastliðin tvö ár unnið heimsmeistaratitil ökuþóra í Formúlu 1 með Renault en skiptir yfir til McLaren á næsta keppnistímabili. Fyrr í mánuðinum fóru forráðamenn McLaren fram á að Alonso yrði leystur undan samningi sínum sem bindur hann við Renault til áramóta. Þeirri beiðni var hafnað af Flavio Briatori, liðsstjóra Renault. „Ég vona að Alonso eigi góð jól og slaki vel á í vetur því við ætlum að vinna hann í vor,“ lét Briatori hafa eftir sér. Það kom því öllum í opna skjöldu er Alonso mætti á æfingu McLaren í gær og staðfesti talsmaður liðsins að hann myndi sinna tilraunaakstri fyrir liðið. Alonso var klæddur í heilgalla sem var laus við allar auglýsing- ar. Mætti á æfingu McLaren Þjálfarinn þarna úti var hálfgerður ræfill
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.