Fréttablaðið - 16.12.2006, Síða 122
Sannkallaður topp-
slagur verður í DHL-deild karla í
dag þegar Valur tekur á móti HK í
Laugardalshöllinni kl. 16. HK er í
efsta sæti deildarinnar með fimmt-
án stig en Valsmenn koma fast á
hæla þeirra með stigi minna.
Það þýðir að ef HK-menn vinna
leikinn fara þeir í langt jólafrí með
þriggja stiga forskot á toppi
deildarinnar. „Sannkölluð drauma-
staða,“ segir Gunnar Magnússon,
aðstoðarþjálfari HK.
„En við getum líka lent einu
stigi á eftir Val ef við töpum og þá
eru einnig hin liðin í deildinni
farin að nálgast okkur mjög. Þetta
er því ef til vill mikilvægasti
leikurinn á tímabilinu til þessa,“
sagði Gunnar.
„Það er vissulega góð gulrót
fyrir okkur að geta komið liðinu í
svo góða stöðu þegar langt frí er
framundan.“ Heil umferð verður
leikin í dag og svo tekur við frí
vegna jóla og HM í Þýskalandi.
Deildarkeppnin hefst á ný þann
11. febrúar.
Liðin mættust í október síðast-
liðnum í æsispennandi leik þar
sem Valsmenn höfðu sigur með
tveimur mörkum á lokamínútunni.
Gunnar segir að liðið eigi harma
að hefna frá þeim leik.
„Við vorum virkilega svekktir
eftir þann leik og eigum nú tæki-
færi til að svara fyrir okkur. Ég
býst þó ekki við að við breytum
miklu í okkar leik á morgun án
þess að ég vilji gefa upp öll okkar
leyndarmál. Við erum búnir að
undirbúa okkur vel alla vikuna
og munum koma til með að selja
okkur dýrt.“
Gunnar segir að Valur sé eina
liðið sem HK hafi ekki unnið í
vetur auk þess sem deildin hefur
spilast þannig undanfarið að
liðinu sem er í toppsætinu helst
illa þar.
„Tölfræðin sýnir ef til vill að
Valur eigi að vinna þennan leik
og er því okkar nú að snúa
dæminu við.“
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Vals, tekur í svipaðan streng
og býst við hörkuleik enda um
toppslag af bestu gerð að ræða.
„Þetta er spurning um hvar
maður verður á textavarpinu í
tæpa tvo mánuði,“ sagði hann í
léttum dúr. Þar að auki sagði hann
að liðsins bíði erfið verkefni strax
í febrúar, gegn Fram og ÍR á úti-
velli og því mikilvægt að vinna
nú.
„Það er viðbúið í svona leik að
bæði lið mæti kolvitlaus til leiks.
Við vorum einnig ósáttir við leik-
inn í haust, þar áttum við frábær-
an fyrri hálfleik og áttum ekki að
missa leikinn niður í þeim seinni.“
Hann segir að sér komi ekki á
óvart að HK sé á toppi deildarinn-
ar. „Þetta er gott lið sem á fylli-
lega skilið að vera í toppbarátt-
unni. Ég átti frekar von á því en að
liðið yrði í fimmta sæti eins og því
var spáð fyrir mót.
Gunnar segir að allir leikmenn
séu klárir í slaginn en Óskar býst
við einhverjum afföllum.
„Það kemur betur í ljós í kvöld,“
sagði hann í gær. „Við erum þó
með það mikinn og góðan mann-
skap að ég ætla ekki að kvarta yfir
því.“
Valur tapaði illa fyrir Stjörn-
unni um síðustu helgi og segir
Óskar að það hafi verið einhver
versta frammistaða liðsins undir
sinni stjórn.
„Ef við ætlum okkur eitthvað í
þessu móti hljótum við að þurfa að
sýna hvað í okkur býr gegn HK.
Desember er alltaf erfiður, margir
leikmenn eru í prófum og þess
háttar, en vonandi er okkar slæmi
desemberleikur kominn og
farinn.“
Valur og HK eigast við í toppslag DHL-deildar karla í dag. Gunnar Magnússon, aðstoðarþjálfari HK, segir
leikinn þann mikilvægasta á tímabilinu til þessa. Vinni HK kemst liðið í þriggja stiga forystu á toppnum.
Michael Carrick,
leikmaður Manchester United,
segir að leikmenn liðsins ætli
ekki að láta hugrenningar og
orðagjálfur Chelsea-manna hafa
áhrif á eigið gengi. Liðin tvö eru
stungin af í ensku úrvalsdeildinni
og hefur United fimm stiga
forskot á Chelsea.
„Við vitum hvað við þurfum að
gera,“ sagði Carrick. „Gengi
okkar er algerlega undir okkur
komið og hefur okkur gengið vel
hingað til. Við munum engu
breyta í okkar hugarfari og
tökum bara einn leik fyrir í einu.
Ég veit að það er gömul klisja en
góð samt.“
Látum Chelsea
ekki hafa áhrif
Ryan Giggs segist vera
vongóður um að enski landsliðs-
maðurinn Owen Hargreaves gangi
til liðs við Manchester United áður
en um langt líður.
Sjálfur hefur Hargreaves
ítrekað sagt að hann vilji fara frá
Bayern München en menn þar á bæ
þvertaka fyrir að hann fari. „Hann
myndi styrkja okkar lið mikið,“
sagði Giggs. „Hann er góður
leikmaður og sýndi það á HM í
Þýskalandi síðastliðið sumar.“
Vill Hargreaves
ÁRITA Í DAG, LAUGARDAG
kl. 18:30 í Hagkaupum, Kringlunni
ÁRITA Á MORGUN, SUNNUDAG
kl.: 14:00 í Skífunni, Kringlunni
kl.: 15:00 í Skífunni, Smáralind
Eigðu GÓÐ JÓL með BROOKLYN FÆV
Inniheldur m.a. hin vinsælu lög, Sleðasöngurinn, Einmanna á jólanótt og Ó helga nótt. Sérstakur gestur: Ragnar Bjarnason