Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FÖSTUDAGUR
26. janúar 2007 — 25. tölublað — 7. árgangur
Bjarni Haukur Þórsson frumsýndi ein-leikinn Pabbinn í Iðnó í gær. Þar fjallar hann um allt mögulegt sem fylgir því að sinna börnum og axla ábyrgð á uppeld-inu. Því var freistandi að spyrja hann hvað hann eldaði í alvörunni þegar þriggja ára sonur hans væri svangur. „Þegar við sonur minn ætlum að hafa það
virkilega náðugt á lau dh
hamborgarann skeri hann það niður, gulræt-
ur, agúrkur og kál, og hafi á sérstökum diski.
„Við jöplum á þessu feðgarnir og verður gott
af,“ segir hann og svo kemur snilldin. „Ég ber
fram heimagerðar franskar með borgurun-
um. Þá kaupi ég venjulegar kartöflur, sker
þær í báta og dreifi þeim á smjörpappírs-
klædda plötu. Síðan skelli ég yfir þær smá
olíu, salti og kryddi áður en ég set þær í ofn
inn. Það er gott að fo jóð
Hamborgari vinsæl-astur hjá syninum
VEÐRIÐ Í DAG
Vinstri stjórn?
„Fyrsta verk Ingibjargar Sólrúnar
í Stjórnarráðinu verður vitanlega
að taka niður málverkin í húsinu
af Jóni Þorlákssyni, Ólafi Thors
og Bjarna Benediktssyni,“ segir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Í DAG 28
Misery í kvöld
Jóhann Sigurðarson
leikstýrir hryllings-
stykki Stephen King
á Nasa.
LEIKLIST 36
BJARNI HAUKUR ÞÓRSSON
Hamborgari vinsæl-
astur hjá syninum
Matur Tilboð
Í MIÐJU BLAÐSINS
Vetrarlíf
EFNISYFIRLIT
NÆR NÁTTÚRUNNIJarðböðin í Mývatnssveit
BLS. 2
ÍSKLIFUR ALLAR HELGARGuðmundur Freyr Jónsson
BLS. 4
EKKI BARA FYRIR UNGA FÓLKIÐ
Snjóbretti
BLS. 6
STÖÐUGLEIKI Á SVELLINUMannbroddar BLS. 10
ELSTA SKÍÐASVÆÐIHEIMS
Aspen, Colorado BLS. 10
STÖKK ÚR FLUGVÉL MEÐBLINDA KONU Í FA
ÖLL FJÖLSKYLDAN Á SKÍÐUM
Arna Ívarsdóttir SJÁ BLS. 2
FLOGIÐ UM Á VÉLSLEÐUMKeppni í snjókrossi SJÁ BLS. 12[ SÉRBLAÐ UM VETRARÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST – FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2007 ]
TRÚLOFUNARHRINGURINNFRÁ BUBBA ER
Magni og Eyrún
Náin saman á Hlustendaverðlaunum FM 957 í Borgarleikhúsinu á þriðju-daginn. Eyrún neitar þó að þau séu byrjuð saman á nýjan leik. BLS. 2
sirkus
26
.J
an
úa
r
20
07
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir
VETRARLÍF
Stökk úr fallhlíf með
blinda konu í fanginu
Sérblað um vetraríþróttir og útivist
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Síðust
u daga
r
risaúts
ölunna
r
um he
lgina!
Íslenska
á vinnustað
- já takk
Aðildarfyrirtæki SI eru hvött til að bjóða
erlendu starfsfólki kennslu í íslensku.
Hægt er að sækja um styrk til þess
hjá menntamálaráðuneytinu.
Umsóknarfrestur rennur
út 2. febrúar nk.
Sjá nánar
á www.mrn.is
HÆGLÆTISVEÐUR Í dag verður
yfirleitt hægur vindur af vestri. Súld
eða rigning sunnan og vestan til,
snjómugga norðvestan til síðar í
dag en bjart með köflum framan af
degi eystra. Snjókoma eða slydda
þar í kvöld. Hlýnandi veður.
VEÐUR 4
FÓLK Tveir pólskir athafnamenn
ferðast nú um landið og sanka að
sér gömlum dráttarvélum af gerð-
unum Zetor og Ursus. Þeir voru
einnig á landinu í fyrra og fluttu
þá með sér „skipsfarm af gömlum
dráttarvélum“, eins og viðmæl-
andi Fréttablaðsins komst að orði.
Það mun ekki ofsagt því Pólverj-
arnir munu vera langt komnir með
að hreinsa sveitir Borgarfjarðar
af dráttarvélum og ferðast nú um
Norðurland í sömu erindagerðum.
Ingólfur Helgason, bóndi í
Borgarfirði, er einn þeirra sem
Pólverjarnir heimsóttu í gær. „Jú,
þeir komu hérna við og ég losnaði
við fjórar gamlar dráttarvélar
sem ég átti. Þeir voru frá ýmsum
tímabilum og í misjöfnu ástandi.“
Ingólfur segir þá félaga hafa
komið vel fyrir og hann hafi feng-
ið dagatal í kaupbæti, ef vera
skyldi að hann hefði áhuga á að
kaupa nýjar Klas-dráttarvélar
sem þeir hafa umboð fyrir.
Fréttavefurinn Skessuhorn
greinir frá forsögu málsins. Reyk-
víkingur fékk símtal frá þeim
félögum þar sem þeir föluðust eftir
gömlum Zetor sem stóð fyrir utan
hús hans. Að hans sögn gera þeir
félagar vélarnar upp og selja til
pólskra bænda. Gamli reykvíski
Zetorinn hans er nú kominn í vinnu
á pólskum akri. - shá
Tveir pólskir athafnamenn ferðast um landsbyggðina og kaupa dráttarvélar:
Vilja gamla Zetora og Ursusa
PÓLLANDSFARI Þessi gamli Zetor hefur
þjónað vel í gegnum árin. Hann fær nú
endurnýjun lífdaga á pólskum akri.
DÓMSMÁL Hæstiréttur sýknaði í
gær alla fjóra sakborningana af
öllum sex ákæruliðunum sem
eftir stóðu í upprunalegu Baugs-
máli. Verjandi og sækjandi eru
ekki sammála um áhrif dómsins á
annan anga málsins.
Eftir að hafa kynnt sér hæsta-
réttardóminn í gærkvöldi sagði
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, að dómur-
inn ætti að leiða til þess að sak-
sóknari felldi niður átta ákæruliði í
endurákæru sem gefin hefur verið
út í öðrum hluta Baugsmálsins.
Hann segir þó að verjendur muni
ekki leggja að sækjanda að vísa
málinu frá vegna þessa, heldur
vilji þeir fá endanlegan dóm.
„Mér sýnist að forsendur þessa
dóms séu með þeim hætti að það
sé afar fjarlægt að það sé hægt að
sakfella fyrir ákæruliði 2 til 9 [í
endurákærunni],“ sagði Gestur.
„Hann [saksóknari] hlýtur að
þurfa að fara yfir það hvort það
þurfi ekki að fella niður þessa
ákæruliði eftir þennan dóm.“
Hann sagði Hæstarétt að ein-
hverju leyti hafa breytt forsend-
um héraðsdóms. Miklu skipti hins
vegar að Hæstiréttur skilgreini
hugtakið lán þröngt, en fjórir
ákæruliðir sneru að því að stöður
á viðskiptareikningum voru ekki
skilgreindar sem lán og ekki getið
í ársreikningum.
Sigurður Tómas Magnússon,
settur ríkissaksóknari í Baugs-
málinu, sagði í gærkvöldi að í
dómi Hæstaréttar væri skýring-
um héraðsdóms á lánveitingum
algerlega hafnað og dómurinn
hefði því ekki bein áhrif á endur-
ákærurnar.
„Þær forsendur sem héraðs-
dómur var grundvallaður á voru að
mati ákæruvaldsins algerlega
óásættanlegar. Þær hefðu í sjálfu
sér, hefðu þær verið staðfestar,
haft þau áhrif að það hefði verið
nærtækast að falla frá ákæruliðum
númer 2 til 9 í [endur]ákærunni. En
forsendur Hæstaréttar gera það að
verkum að þessar forsendur standa
alveg,“ sagði Sigurður.
brjann@frettabladid.is / sjá síðu 6
Sýknað í Baugsmáli
Sýknudómur Hæstaréttar í Baugsmálinu á að leiða til þess að sækjandi dragi
ákærur í átta ákæruliðum í endurákæru til baka segir verjandi. Saksóknari segir
aðrar forsendur í sýknudómi Hæstaréttar en í héraði og endurákærur standi.
SÝKNUDÓMUR Spennan í þéttsetnum dómsal Hæstaréttar var mögnuð þegar Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari
í Baugsmálinu, gekk í salinn áður en dómur var kveðinn upp, framhjá verjendum sakborninga; þeim Gesti Jónssyni, Kristínu
Edwald og Þórunni Guðmundsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HRAFNHILDUR HAFSTEINSDÓTTIR
Trúlofunarhringur-
inn frá Bubba er
dýrasta djásnið
SIRKUS Í MIÐJU BLAÐSINS
ÞJÓÐLENDUMÁL Ragnar Aðalstein-
son hæstaréttarlögmaður telur að
kröfugerð ríkisins um þjóðlendur
á austanverðu Norðurlandi kunni
að varða við almenn hegningar-
lög.
Ragnar og Ólafur Björnsson
hæstaréttarlög-
maður hafa sent
óbyggðanefnd
bréf þar sem þeir
krefjast frávísun-
ar þjóðlendu-
krafna óbyggða-
nefndar í jarðir
skjólstæðinga
þeirra á svæðinu.
Þeir telja að í
kröfugerð ríkisins sé ekki farið
að íslenskum lögum.
Óbyggðanefnd mun svara
kröfu þeirra um frávísun í næstu
viku. - ifv / sjá síðu 8
Kröfur um þjóðlendur:
Kunna að vera
brot á lögum
RAGNAR
AÐALSTEINSON
Grátlegt tap
Íslenska landsliðið tapaði gegn
Póllandi á HM í handbolta í
gær í leik sem liðið
átti að vinna að
mati þjálfara og
leikmanna eftir
leik.
ÍÞRÓTTIR 48
RÚSSLAND, AP Rússneska þingið
hefur samþykkt einróma ályktun
þar sem Eistar eru varaðir við því
að gera alvöru úr áformum um að
flytja eða taka niður minnismerki
um sigur Rauða hersins, sem sett
voru upp í Eistlandi eftir síðari
heimsstyrjöld.
Tilefni ályktunarinnar er að
Eistlandsþing samþykkti nýlega
lög sem heimila að minnismerki í
eistnesku höfuðborginni Tallinn
verði fært af þeim áberandi stað
sem það var reist á inn í kirkju-
garð, ásamt jarðneskum leifum
hermanna sem grafnir voru við
minnismerkið á sínum tíma. - aa
Rússland-Eistland:
Vara við færslu
minnismerkis
MÓTMÆLT Í MOSKVU Ungliðar Pútín-holla
stjórnarflokksins í skipulögðum mótmæl-
um gegn áformum Eista. MYND/AP
Bubbi með brjósklos
Bubbi Morthens þurfti
að fresta tónleikum
vegna þess að hann
er greindur með
brjósklos í hálsi.
FÓLK 54