Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 80
„Það bætir heilsuna talsvert
að hafa gaman af því að vera
til og taka ekki lífið of
hátíðlega. Það er of stutt til
þess.“
Rauði herinn kemur til Auschwitz
Japönsk hátíð verður haldin í þriðja
sinn í hátíðarsal Háskóla Íslands á
laugardag á vegum sendiráðs Japans
og japanskrar kennsludeildar innan
Háskólans.
Gestum verður boðið að upplifa
Japan í gegnum margvíslegar uppák-
omur og kynningar. „Á þessu ári verð-
um við í fyrsta sinn með spurninga-
keppni fyrir áhorfendur þar sem við
könnum vitneskju þeirra um Japan.
Við reynum að vera með eitthvað nýtt
á hverju ári. Það hefur gengið mjög
vel undanfarin tvö ár og um 400 manns
hafa mætt,“ segir Kaoru Umezawa,
japönskukennari við Háskóla Íslands.
Á sviði háskólans verður Budo sýnt
(Judo, Karate og Aikido bardagalistir)
sem og kynningar á vegum nemenda
svo sem anime og manga. Japanskar
bókmenntir verða einnig kynntar
ásamt japanskri matargerð. Hægt
verður að smakka maccha te og
nammi í tebásnum. Í japanska skraut-
skriftarbásnum geta gestir fengið
nöfn sín skrifuð í kanji- og katakana-
letri eða farið og séð origami-bréfbrot
í samnefndum bás.
Að auki verður á hátíðinni m.a.
ljósmyndasýning og úrval af mismun-
andi gerðum japanskrar nútíma-
tónlistar. Fólk mun einnig fá tækifæri
til að læra að leika igo, sem er japönsk
gerð skákar, auk þess sem karaoke-
bar með óáfengum veitingum verður
opinn. Allir básar lúta reglunni
„fyrstir koma, fyrstir fá“. Hátíðin
stendur yfir frá klukkan 13 til 18 og er
frítt inn.
Að sögn Kaoru er japanska kennd
til þrjátíu og sextíu eininga við
Háskóla Íslands. Fyrstu þrjátíu ein-
ingarnar geta nemendur tekið hér á
landi en hinar þrjátíu þarf að taka í
Japan. Verið er að vinna í því að nem-
endur geti tekið sextíu einingar hér á
landi, enda er mikill áhugi fyrir því á
meðal nemenda.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Arnþrúður Björnsdóttir
frá Grjótnesi, Safamýri 38, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum 17. janúar síðastliðinn
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30.
janúar kl. 13:00.
Sunna Karlsdóttir
Andri Valur Hrólfsson
Harpa Karlsdóttir
Vésteinn Rúni Eiríksson
Lilja Karlsdóttir
Snorri Páll Snorrason
Breki Karlsson
Fanný Kristín Heimisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku litla dóttir okkar, systir og
barnabarn
Lísa Guðný Jónsdóttir
Tröllateigi 49, Mosfellsbæ,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans að kvöldi 23. janúar.
Kristín Einarsdóttir Jón Karlsson
Einar Karl
Unnar Karl
Emma Sól
Guðný Kristín Árnadóttir Einar Markússon
Unnur Óskarsdóttir Karl Jóhannsson
Elsku mamma okkar, fósturmamma,
tengdamamma, amma, langamma,
langaló og systir,
Kristín Eiríksdóttir
Jöklaseli 25, 109 Rvk,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 23. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jónína Þóra Sigurjónsdóttir Sveinn F. Sveinsson
Ingibjörg T. Sigurjónsdóttir Salmann Tamimi
Katrín Sigurjónsdóttir Sölvi Guðbjartsson
Ásdís Þórðardóttir Hallgrímur J. Jónasson
Barnabörn, langömmubörn og systkini.
Í minningu ástkærrar eiginkonu og besta
vinar,
Ólafar Hermannsdóttur
(Lóu)
sérkennara, Barmahlíð 28.
Ólöf lést hinn 16. janúar á LSH Fossvogi.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Ragnar Jóhann Guðjónsson
Guðbjörg Ragnarsdóttir (Gugga) Holgeir Jónsson
Ragnar Jóhann Holgeirsson og Berglind Anna
Holgeirsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
vinur,
Björn Sigurðsson
bóndi, Sauðhaga 2, Völlum,
andaðist 20. janúar. Útför hans fer fram frá Egilsstaða-
kirkju hinn 27. janúar kl. 14. Þeim sem vilja minn-
ast hans er bent á Sjúkrahúsið á Egilsstöðum eða
Krabbameinsfélagið.
Jóhanna Freyja Björnsdóttir Magnús S. Magnússon
Magnea Herborg Björnsdóttir Sigmar Björnsson
Amalía Björnsdóttir Sigurður Ragnar
Ásbjörg, Hrafnhildur, Magnús, Freyja, Björn Geir, Baldvin,
Ólöf Sölvadóttir .
Ástkær eiginmaður minn
Pétur Kristjánsson
áður til heimilis á Fáskrúðsfirði, lést hinn 23. janúar á
hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Jarðarför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bergþóra Eide Eyjólfsdóttir.