Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 36
Hendrik Berndsen er betur
þekktur sem Binni í Blóma-
verkstæði Binna. Bestu kaup
hans voru lífið sjálft.
Þegar Binni var ungur maður átti
hann erfitt með að fóta sig í lífinu.
„Árið 1975 var ég kominn á grafar-
bakkann vegna ofneyslu áfengis,“
segir Binni. „Ég átti arf eftir ömmu
mína sem ég nýtti til að borga með-
ferð á Freeport meðferðarspítal-
anum í New York í Ameríku. Það
eru mín bestu kaup.“
Arfurinn var um milljón krónur
sem voru þó nokkrir peningar á
þeim tíma. Arfinn fékk Binni hins
vegar ekki greiddan út þegjandi
og hljóðalaust því fjölskylda hans
hindraði hann í að komast yfir pen-
ingana. „Ég var búinn að gera
margar tilraunir til að fá pening-
inn greiddan út en fjölskylda mín
sat fast á honum,“ segir Binni sem
á þeim tíma var búinn að drekka
allt frá sér. „Þá kom vinur minn
heim úr meðferð í Freeport og
vildi að ég færi í þetta líka. Hann
talaði við fjölskylduna og sann-
færði þau um að leyfa mér að fá
peninginn og setja hann í þessa
meðferð.“
Binni fór út í meðferð og kom
heim breyttur maður, en hann
hefur ekki smakkað áfengi síðan
1975. „Ef ég hefði ekki fjárfest
arfinum eins og ég gerði væri ég
ekki hér í dag,“ segir Binni. „Þessi
kaup eru því búin að skila mér og
fjölskyldu minni miklum arði.“
Það má færa rök fyrir því að
fjárfestingar Íslendinga í Free-
port, þar með talið Binna, hafi ekki
bara verið góð fjárfesting fyrir þá
persónulega, heldur einnig fyrir
íslensku þjóðina. Þeir sem komu
úr meðferð í Freeport, svokallaðir
fríportarar, voru stofnendur SÁÁ
sem allar götur síðan hefur hjálp-
að alkóhólistum í baráttunni við
áfengið.
Þegar Binni er spurður um
verstu kaup sín er hann ekki lengi
til svars. „Það er allt brennivínið
sem ég keypti þar til ég fór í með-
ferð.“
Áfengismeðferð án
efa bestu kaupin
Kæru viðskiptavinir
Verið velkomnir á stofuna mína
Hef tekið við rekstri Greiðunnar
Kveðja Lilja
Háaleitisbraut 58-60 • Sími 581 3090
B Ó K A B Ú Ð S T E I N A R S
Ú T S A L A
M Ö R G H U N D R U Ð E R L E N D I R T I T L A R
O p i ð l a u g a r d a g f r á k l . 1 2 - 1 8
M I K I L L A F S L Á T T U R
B e r g s t a ð a s t r æ t i 7 S í m i 5 5 1 2 0 3 0 F a x 5 6 2 6 4 3 0 s t e i n b o o k @ h e i m s n e t . i s
O p i ð v i r k a d a g a 1 3 - 1 8
1
0
1
0
.7
Nýbýlavegi 12 • Sími 554 3533
Opið virka daga 10-18 • Laugardaga 10-16
g æ ð i o g g l æ s i l e i k i
Nýjar
vörur
Stærðir
36-48