Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 32
Veitingastaðurinn Fish and
Chips í Tryggvagötu var opnað-
ur rétt fyrir jólin. Erna Kaaber,
eigandi staðarins, segir viðtök-
urnar hafa verið mjög góðar.
Á veitingastaðnum Fish and Chips
er boðið upp á fisk og kartöflur,
súpur og alls konar brauð og
kökur. „Fiskur og franskar byrjaði
í bakaríum í Bretlandi á átjándu
öld, en við höfum snúið þessu við
og byrjum í fiskinum og erum
smám saman að færa okkur yfir í
bakaríið,“ segir Erna og hlær.
Á veitingastaðnum er allt sem
boðið er upp á eins hollt og hugs-
ast getur. Fiskurinn er djúpsteikt-
ur í speltdeigi og kartöflurnar ofn-
bakaðar. „Ég nota kartöflur frá
Eymundi í Vallarnesi sem er með
Móður jörð og ég er á því að þær
séu með bestu kartöflum á Íslandi.
Við ofnbökum þær í olíu, Maldon-
salti og steinselju því ólíkt fiskn-
um eru kartöflur þess eðlis að þær
soga í sig fituna. Því er eiginlega
ómögulegt að vera að nota lífrænt
ræktaðar kartöflur og eyðileggja
þær með djúpsteikingu. Ef fólk
vill heldur kartöflusalat bjóðum
við upp á það, en ekki majonessal-
at heldur tómat- og kartöflusalat.
Við erum heldur ekki með neinar
majonessósur heldur sósur sem
við búum til úr skyrgrunni, fersk-
um kryddjurtum og hunangi og
sinnepi.“
Erna segir að hún fái ferskan
fisk á hverjum morgni en svolítið
misjafnt sé eftir dögum hvaða fisk
hún bjóði upp á. „Við erum venju-
lega með þorsk og oft með ýsu og
gellur. Gellurnar hafa verið vin-
sælastar hjá okkur, eins furðulega
og það hljómar. Ég átti ekki von á
því fyrir fram að nútíma Íslend-
ingurinn myndi háma í sig gellur
en þær eru náttúrlega ótrúlega
ljúffengar. Síðan erum við mjög
oft með rauðsprettu sem hefur
verið mjög vinsæl því hún er svo-
lítið ólík hinum fisknum. Vinur
minn kom svo með háf handa mér
um daginn sem ég djúpsteikti og
hann var svona hrikalega mikið
lostæti. Nú ætla ég því að setja
alla öngla út og athuga hvort ég
nái ekki í meiri háf,“ segir Erna og
hlær.
Súpurnar hafa einnig verið vin-
sælar hjá gestum staðarins. „Við
erum af og til með fiskisúpu og
mikið með graskerssúpu, gulrótar-
súpu, ekta franska lauksúpu og
bara alls kyns grænmetissúpur.“
Rúsínan í pylsuendanum er svo
kökurnar hjá Ernu. „Við erum
núna með eplamúffur, banana og
hnetusmjörsmúffur og ótrúlega
súkkulaðiköku sem ég bý til syk-
urlaust marsípan í sjálf. Í henni er
ekkert hveiti, bara möndlur, syk-
urlaust súkkulaði og kókosolía svo
það er eiginlega bara hollara að
borða hana heldur en að sleppa
því,“ segir Erna og hlær.
Mjög vel hefur gengið síðan
staðurinn var opnaður og er Erna
mjög ánægð með viðbrögð matar-
gesta. „Vænst þykir mér um við-
brögð Bretanna, því það hefur
verið svolítið af þeim hérna að
undanförnu og annar hver Breti
sem kemur inn heldur því fram að
þetta sé besti fiskur og franskar
sem hann hefur smakkað.
Það er náttúrlega besta hrós
sem maður getur fengið því við
erum svolítið að bregða út af því
sem þeir þekkja en ég held að það
skipti líka miklu máli að við erum
alltaf með ferskan fisk.“
Bretarnir mjög hrifnir
Við Fjöruborðið
Eyrarbraut 3 • 825 Stokkseyri • S. 483 1550
www.fjorubordid.is • ifno@fjorubordid.is
Jói
Fel
F
A
B
R
IK
A
N
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Stæsta
bloggsamfélagið!
Yfir 150.000
notendur!