Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 64
BLS. 12 | sirkus | 26. JANÚAR 2007
Hollywood
Hanna
Jude Law hefur verið duglegur á
djamminu undanfarið og náðust þessar
myndir af kappanum í London með
óþekktri blondínu. Ætli kappinn sé
kominn með nýja kærustu? Hún er að
minnsta kosti ekkert lík Siennu Miller.
Ný dama í lífi
Jude Law?
NÝ DAMA? Jude Law að koma af
djamminu með óþekktri dömu.
Eva Longoria er allt of heit, allt of heit til
að vera aðþrengd húsmóðir, en við
höfum gaman af frekjuköstunum hennar.
Eva prýðir forsíðu nýjasta Arena-
tímaritsins og myndirnar eru rosalegar.
Aðdáendur hennar ættu að hlaupa út í
bókabúð í þessum töluðu orðum. Hérna
er ein rosalega mynd af skvísunni naktri
og umvafinni keðjum. Vá!
SVONA HEITAR GELLUR
ÆTTI AÐ BANNA
Hvað er Mandy Moore að hugsa? Hún er
ótrúlega sæt og saklaus stelpa. Hún er
að gera góða hluti í Hollywood og á
framtíðina fyrir sér og svo velur hún lúða
eins og DJ AM til þess að vera með. DJ
AM var lengi vel með Nicole Richie, en
þau hafa verið sundur og saman
síðastliðið ár. Þessi lúða plötusnúður lét
það út úr sér í fyrir ekki svo löngu síðan
að hann þyrfti að ná sér í fræga gellu til
að halda miðlungsferli sínum gangandi.
Ah, Mandy hlauptu í burtu núna. Hann er
algjör sauður þessi gaur og ekki einu
sinni það sætur.
DJ AM NÁÐI SÉR Í AÐRA FRÆGA GELLU
GLATAÐUR GÆI Hvernig getur Mandy
verið með honum eftir að hann sagði
það í einhverjum viðtölum að hann þyrfti
að ná sér í aðra fræga kærustu? Jukk!
SAMAN Á SUNDANCE Frá Nicole Richie til Mandy Moore. Hér eru þau saman á
Sundance-hátíðinni í Utah.
Margir þekkja þennan myndarlega leikara
úr þáttaröðinni Las Vegas. Kappinn nýtur
mikilla vinsælda meðal kvenþjóðarinnar –
skiljanlega. Hann er megakroppur.
Kappinn er þó ekki á lausu, því miður, en
Black Eyed Peas-söngkonan Fergie nældi
sér í þennan kropp fyrir alllöngu síðan og
hamingja blómstrar.
Josh skellti sér í þessar dásamlega ljótu
skýlu fyrir tökur á þættinum Las Vegas
og eins fallegur og hann er svona semi-
nakinn þá er þessi sundskýla alveg
ferleg, sérstaklega þegar hann togar
hana svona langt upp. Við fáum að sjá
hluti sem okkur langar ekkert sérstak-
lega að horfa á.
Heitur líkami, ljót skýla
SMART Josh Duhamel togar skýluna
aðeins of langt upp. Ekki mjög girnilegt.
O key, við vitum öll núna að það var Justin Timberlake sem
dömpaði Cameron Diaz. Algjör
bömmer þar sem Cameron er eitt
mesta krúttið í Hollywood. En svona
er lífið óréttlátt stundum. Nú er
Justin á fullu að leitar sér að nýrri
dömu. Það ætti ekki að reynast
honum erfitt.
En Cameron hefur leitað til vinar
síns, Kellys Slater, til að hjálpa sér í
gegnum erfiðu tímana. Kelly Slater
er fáránlega heitur brimbrettameist-
ari sem deitaði núna síðast
ofurfyrirsætuna Gisele Bündchen.
Kelly og Cameron hafa verið að
tjilla á Hawaii og leikið sér í
öldunum, en eins og flestir vita
elskar frú Cameron að sörfa.
Eru þau par eða ekki? Enginn vill
svara þessari spurningu en þau líta
vel út saman og vonandi byrja þau
saman. Fullkomið par.
Bara vinir, eh?
GÓÐUR FÉLAGSSKAPUR Cameron þurfti
heldur betur á félaga sínum að halda
eftir rifrildi við Justin á Golden Globe-
hátíðinni. Móðir Kellys hefur verið spurð
út í sambandið en hún segir einungis um
góða vináttu að ræða.
GÓÐ SAMAN Kelly og Cameron ættu að
byrja saman. Þau lúkka ekkert smá vel
saman.
LEITAÐI TIL VINAR SÍNS Cameron Diaz er í ástarsorg og leitaði til góðvinar síns Kellys Slater, sem er mega hönk.
HEITUR Josh Duhamel leikur í þáttaröð-
inni Las Vegas og þykir algjört „hottie“.
Á FÖSTU Mörgum finnst mjög
furðulegt að Josh skuli vera
með Fergie, söngkonu Black
Eyed Peas. En hún er ekki
kölluð sú fríðasta í Hollywood.
LÆKKIÐ
HITANN Eva er
sjóðandi heit á
þessari mynd.
CAMERON DIAZ LEITAR TIL VINARS SÍNS KELLY SLATER