Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 16
Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn
Barack Obama, sem gerir sér vonir um að verða for-
setaframbjóðandi Demókrataflokksins, ber nú til
baka ásakanir um að hann hafi á barnsaldri sótt kór-
anskóla róttækra múslíma á Indónesíu.
Tímaritið Insight fullyrti á vef-
síðu sinni að sögur um þetta séu
komnar frá stuðningsmönnum
Hillary Clinton, sem keppir við
Obama í forsetaslagnum, en tals-
menn hennar neita því.
Sjálfur segir Obama þessar
ásakanir „furðulegar“. Hann við-
urkennir að hann hafi sótt skóla
hjá múslímum, en það hafi ekki
verið kóranskóli. Einn af talsmönn-
um hans taldi sig þurfa að taka fram að Obama hafi
„aldrei verið múslími“.
Obama var fæddur á Havaí. Móðir hans var hvít
bandarísk kona frá Kansas en faðir hans svartur
maður frá Kenía. Eftir að faðir hans sneri aftur til
Kenía fluttist Obama til Indónesíu sex ára gamall
með móður sinni og indónesískum stjúpföður sínum,
Lolo Soetoro. Þar bjó hann í fjögur ár og sótti þar
skóla eins og önnur börn, en flutti tíu ára gamall aftur
til móðurforeldra sinna á Havaí.
Bæði bandaríska sjónvarpsstöðin CNN og frétta-
stofan AP hafa gert menn út af örkinni til að heim-
sækja grunnskólann í Jakarta, sem Obama gekk í á
sínum tíma í Indónesíu.
„Það er ekkert hæft í þessum ásökunum,“ sagði
Almad Solichin, aðstoðarskólastjóri í skólanum SDN
Menteng 1. „Jú, flestir nemendurnir okkar eru mús-
límar, en hér eru kristnir líka. Allir eru velkomnir
hingað … þetta er almenningsskóli.“ Sumir kennarar
við skólann muna enn eftir Obama, óvenju háum
strák með hrokkið hár sem var fljótur að tileinka sér
tungumálið og þótti góður í stærðfræði.
Fréttirnar af forsetaframboði þessa fyrrverandi
nemanda vöktu mikla ánægju í skólanum.
Gekk aldrei í kóranskóla
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA
Nielsen-veiðihjól
fyrir sjóstöng
2.992 kr.
Loop-stangasett
19.900 kr.
Nielsen-sjóstöng
4.487 kr.
3.495 kr.
990 kr.
4.143 kr.
Barnakuldaskór
1.970 kr. 1.970 kr.
Devold Active
buxur og bolur
dömu og herra
Barnakuldaskór
Toread-dömuúlpur Toread-herraúlpur Toread-útivistarbuxur
Birt með fyrirvara um texta- og myndabrengl.
2 stk. 1.250 kr.
Pathfinder-bakpoki
8.950 kr.
Mad Dog-vöðlur
3,5 mm Neoprene
2.950 kr.
Mad Dog Max4 veiðibuxur
5.950 kr.
Mad Dog Max4 veiðijakki
13.425 kr.
Ameristep-rúllubaggi
12.390 kr. 3.355 kr.12.875 kr.
Devold-húfurVinnuskyrtur
6.900 kr.
Campingaz-ferðasalerni
Loop-veiðivörur
Kuldaskór með
mannbroddum
3.995 kr. 3.499 kr.
GönguskórGönguskór
4.995 kr.
Kvenkuldastígvél
4.494 kr.
Nielsen-veiðihjól
fyrir sjóstöng
Nielsen-veiðistangir
Frá 3.158 kr.
2.872 kr.
Cass Creek-æfinga-
kalltæki
25–40%
afsláttur
35%
afsláttur
40%
afsláttur
Didriksons-úlpur
Risa
Frumvarp menntamála-
ráðherra um sameiningu Háskóla
Íslands og Kennaraháskóla
Íslands var tekið til umræðu á
Alþingi í gær. Stefnt er að því að
sameina skólana frá 1. júlí 2008.
Tilgangurinn með frumvarpinu er
meðal annars sá að stuðla að
frekari uppbyggingu háskóla í
landinu, sagði Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra þegar hún mælti fyrir
frumvarpinu í gær.
„Þetta er mál sem að mínu
mati hefur mikla þýðingu fyrir
háskólasamfélagið, og er brýnt og
mikilvægt skref í því að byggja
upp Háskóla Íslands sem öflugan
háskóla í fremstu röð,“ sagði
Þorgerður Katrín.
HÍ og KHÍ í
eina sæng 2008