Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 90
Hin ótrúlegu
Leikfélag Akureyrar frumsýndi
Svartan kött eftir Martin McDon-
agh um síðustu helgi. Um var að
ræða sérstaka hátíðarfrumsýn-
ingu í tilefni af 100 ára afmæli
samkomuhússins. Húsfyllir var
og gestirnir skemmtu sér vel í
þessari einni helstu bæjarprýði
Akureyrar. Húsið hefur verið
aðsetur Leikfélags Akureyrar frá
upphafi en Svartur köttur er 286.
uppsetning Leikfélagsins.
Svartur köttur á fjölunum
Óvæntan gest gæti borið
að garði í úrslitaþætti
X-Factor en fyrsta beina
útsendingin verður frá
Smáralindinni í kvöld.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er nú róið að því öllum árum að
fá sjálfan Simon Cowell til að krýna
fyrsta sigurvegara X-Factor á
Íslandi. Cowell er þessa stundina
önnum kafinn í American Idol en
þættirnir eru teknir upp í Los Ang-
eles og því gæti allt eins farið svo
að Cowell legði leið sína hingað á
klakann. Þór Freysson, framleiðslu-
stjóri þáttanna, vildi ekki staðfesta
þetta í samtali við Fréttablaðið en
viðurkenndi hins vegar að unnið
væri að því að fá stórt nafn hing-
að í lokaþáttinn.
Undirbúningur fyrir
beinu útsendinguna var í
fullum gangi í gær. Hátt
í áttatíu manns koma að
útsendingunni með
einum eða öðrum hætti í
kvöld og mikil eftirvænt-
ing ríkti meðal aðstandenda
þáttarins. „Hér er mikil spenna
og það iða allir í skinninu,“ segir
Þór. „Smiðir hafa verið á fullu
síðan á þriðja í jólum við að henda
sviðinu upp,“ bætir hann við og
telur að öll sviðsmynd og
umhverfi verði eins og best
verði á kosið.
Dómararnir þrír, þau Einar
Bárðarson, Páll Óskar og
Ellý í Q4U, hafa valið fjög-
ur atriði hvert um sig og
fá áhorfendur tækifæri
til að kveða upp sinn dóm með
símakosningu. Þór segir að þætt-
irnir hafi mælst ágætlega fyrir.
„En fólk hefur kannski átt í smá
erfiðleikum með að átta sig á fyrir-
komulaginu,“ útskýrir framleiðslu-
stjórinn. Þau atriði sem hafa vafist
fyrir áhorfendum ættu því að skýr-
ast í kvöld.
Þór segir að dómararnir þrír
séu fullir sjálfstrausts. „Þau eru
sannfærð um sigur í keppninni, eru
mikið keppnisfólk og ætla að leggja
allt í sölurnar,“ útskýrir Þór.