Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 6
Enginn viðbættur sykur
Engin viðbætt vítamín
Engin rotvarnarefni
Engin litarefni
Engin bragðefni
Knorr Vie
100% náttúrulegur ávaxta- og grænmetisdrykkur
Úr hverri flösku af Knorr Vie fást 200 g af því besta og
hollasta úr ávöxtum og grænmeti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
8
9
7
Ferskt úr kæli
víkingar&
gyðingar
3 dansleikhúsverk og stuttmynd
í Hafnarfjarðarleikhúsinu
26. og 27. janúar kl.20.00.
Miðapantanir í síma 555 2222
og Good Company kynna:
Hæstiréttur sýknaði í
gær alla fjóra sakborningana í því
sem eftir stóð af upphaflegu
Baugsmáli og staðfesti þar með
sýknudóm Héraðsdóms Reykja-
víkur í málinu.
Í þessum hluta málsins var Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs Group, ákærður fyrir að hafa
sett fram rangar eða villandi sér-
greiningar í ársreikningum Baugs
fyrir árin 1998 til 2001 með því að
geta ekki lána til sín og tengdra
aðila á viðskiptareikningum.
Endurskoðendurnir Stefán
Hilmar Hilmarsson og Anna Þórðar-
dóttir voru ákærð fyrir að árita án
fyrirvara ársreikningana, Stefán
vegna áranna 1998 til 2001 en Anna
vegna ársins 2001. Auk þess voru Jón Ásgeir og
Kristín Jóhannesdóttir systir hans
ákærð vegna innflutnings á tveim-
ur bifreiðum.
Hæstiréttur kemst að þeirri
niðurstöðu að hugtakið lán verði
að skilgreina þröngt, þannig að
félag teljist hafa veitt lán þegar
það hafi látið peningaupphæð eða
ígildi hennar af hendi gegn því að
upphæðin verði síðar endur-
greidd.
Sækjandi byggði mál sitt á því
að neikvæð staða á viðskiptareikn-
ingum við áramót jafngilti láni.
Hæstiréttur telur að fjölmargar
hreyfingar á viðskiptareikningum
beri það ekki með sér að um lán
hafi verið að ræða og þar sem
ákæruvaldið hafi ekki sundur-
greint til hvers sé vísað beri að
sýkna Jón Ásgeir af ákærum
vegna ársreikninganna.
Hæstiréttur telur þó mestu
skipta að sakborningar hafi ekki
verið spurðir nánar út í einstakar
færslur á viðskiptareikningunum
og málið ekki flutt með einstakar
færslur í huga í héraðsdómi. Þar
með hafi ákærðu ekki gefist kost-
ur á að verjast ákærunum fyrir
dómi og koma að eigin skýringum.
Því sé óhjákvæmilegt að sýkna í
þeim ákæruliðum sem snúi að árs-
reikningum.
Jón Ásgeir var einnig ákærður
fyrir að koma sér undan því að
greiða rúmlega 480 þúsund krón-
ur í aðflutningsgjöld vegna inn-
flutnings á Grand Cherokee-bif-
reið árið 1999. Hæstiréttur taldi
að ekki væri hægt að útiloka að
mistök starfsmanna hefðu orsak-
að að ranglega hefði verið staðið
að innflutningnum og því bæri að
sýkna Jón Ásgeir.
Kristín Jóhannesdóttir, systir
Jóns Ásgeirs, var ákærð fyrir að
hafa komið sér undan því að greiða
tæplega 612 þúsund krónur vegna
innflutnings á bifreið.
Hæstiréttur kemst að þeirri
niðurstöðu að ósamræmi hafi
verið í frásögn vitnanna Jóns Ger-
alds Sullenberger og bandaríska
bílasalans Ivan G. Motta um inn-
flutninginn, auk þess sem ekki sé
ljóst hvaða verð hafi að endingu
verið greitt fyrir bílinn. Því verði
að fallast á þá niðurstöðu héraðs-
dóms að sýkna Kristínu af kröfum
ákæruvaldsins.
Ákærðu í Baugsmáli sýknuð
Hæstiréttur kvað í gær upp sýknudóm vegna sex ákæruliða í upphaflegu Baugsmáli. Meðal annars þótti
ekki hafið yfir vafa að starfsmenn hefðu staðið ranglega að innflutningi á jeppa Jóns Ásgeirs.
Sýknudómur Hæstarétt-
ar í sex ákæruliðum í Baugsmál-
inu kom Jóni Ásgeiri Jóhannes-
syni, forstjóra Baugs Group, ekki
á óvart.
Í yfirlýsingu sem hann sendi
fjölmiðlum í gær segir hann að í
ljós hafi komið að það sé ekki hann
sem sé fjósamaður, heldur Sigurð-
ur Tómas Magnússon, sérstakur
ríkissaksóknari í málinu. Þar vísar
hann til ummæla Sigurðar Tómas-
ar við meðferð málsins fyrir
Hæstarétti, þar sem hann líkti
Jóni Ásgeiri við fjósamann sem
stæli mjólk.
„Þetta er mjög ánægjuleg
niðurstaða og í samræmi við það
sem ég vissi í hjarta mínu að
myndi gerast,“ segir í yfirlýsingu
Jóns Ásgeirs. Hann segir að Sig-
urður Tómas hafi ekki metið málið
sjálfstætt, heldur haldið „þessari
vitleysu“ áfram.
„Við flutning málsins í Hæsta-
rétti í síðustu viku viðhafði hann
mjög ósmekkleg og ómakleg
ummæli um mig og líkti mér við
fjósamann sem stæli mjólkinni úr
kúnum sem honum væri treyst
fyrir. Sýknudómur Hæstaréttar í
dag leiðir á hinn bóginn í ljós að
það er hann sjálfur, Sigurður
Tómas, sem er hinn eiginlegi fjósa-
maður í málinu. Hann situr í for-
inni sem þeir Haraldur Johann-
essen og Jón H.B. Snorrason
skildu eftir sig þegar þeir hrökkl-
uðust frá málinu,“ segir Jón
Ásgeir.
Niðurstaðan ekki óvænt
Hefur þú verslað á útsölunum?
Fylgist þú með leikjum íslenska
landsliðsins á HM í handbolta?
Líðan mannsins sem lenti í
snjóflóði í Hrappstaðaskál í
Hlíðarfjalli á sunnudaginn er
óbreytt. Hann er þungt haldinn og
er haldið sofandi í öndunarvél á
Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri. Þorvaldur Ingvarsson
lækningarforstjóri segir manninn
hafa liðið súrefnisskort eftir að
flóðið féll á hann og ekki sé ljóst
hvaða áhrif það hafi.
Maðurinn var í vélsleðaferð
með félögum sínum þegar
snjóflóðið féll. Félagar hans
grófu hann upp úr snjónum og
gerðu á honum lífgunartilraunir.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti
hann á sjúkrahús.
Haldið sofandi
í öndunarvél