Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 96
Klaufar að fá ekkert út úr leiknum
Kristján hafnaði samningstilboði Brann
Karlalið Grindavíkur í
körfunni leitar nú að bandarísk-
um leikmanni til þess að fylla
skarð Steven Thomas sem
meiddist á dögunum. Grindavík
spilar við ÍR í undanúrslitaleik
bikarkeppni KKÍ og Lýsingar á
sunnudagskvöldið og má því ekki
við því að leika án bandarísks
leikmanns í jafn stórum leik.
Að sögn Friðriks Ragnarsson-
ar, þjálfara Grindavíkur, er ekki
öruggt að nýr leikmaður verði
kominn fyrir leikinn.
„Það eru svona helmingslíkur
á að við náum inn nýjum manni.
Ég er að bíða eftir svörum að
utan,“ sagði Friðrik í gær en
málin ættu að skýrast betur í dag.
Grindavík lék án bandarísks
leikmanns á sunnudag og vann þá
Þór úr Þorlákshöfn 98-97.
Gætu spilað án
Kana á móti ÍR
Eftir tvo frábæra leiki
á HM kom íslenska liðið niður á
jörðina gegn Pólverjum. Það hafði
öll ráð í hendi sér nánast allan
leikinn en klaufaskapur í bland
við ömurlega dómgæslu kom Pól-
verjum inn í leikinn og þeir þökk-
uðu fyrir með því að taka öll stigin
í tveggja marka sigri, 33-35.
Alfreð þjálfari byrjaði leikinn á
því að láta Guðjón Val og Alexand-
er stíga vel út í hinar öflugu skytt-
ur Pólverja. Íslenska liðið reyndi
að keyra upp hraðann í leiknum og
átti greinilega að ganga frá leikn-
um hið fyrsta.
Pólverjar hafa þá tilhneigingu
að leggja niður vopnin þegar þeir
missa andstæðinginn of langt
fram úr sér og á það átti greini-
lega að reyna í þessum leik. Allir
leikmenn komu vel stemmdir,
sóknin gekk vel, vörnin var öflug
og Birkir Ívar í fínu formi þar
fyrir aftan. Strákarnir voru alltaf
skrefi á undan en í hvert skipti
sem þeir fengu tækifæri til að ná
vænni forystu gerðu þeir sig seka
um klaufaleg mistök sem skiluðu
mörkum hjá Pólverjum. Staðan í
hálfleik hefði klárlega getað verið
vænleg en klaufaskapurinn gerði
það að verkum að munurinn var
aðeins tvö mörk í leikhléi, 14-12.
Strákarnir byrjuðu síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og unnu
kafla manni færri 2-0. Þá fóru
dómararnir að henda strákunum
af velli fyrir litlar sakir og fyrir
vikið komust Pólverjar inn í leik-
inn á ný.
Ísland komst í 18-14 en í stöð-
unni 20-17 hrundi leikur liðsins og
Pólverjar komust yfir, 20-21,
þegar tæpar 20 mínútur voru eftir
af leiknum. Á þessum kafla var
varnarleikurinn slakur, mark-
varslan engin og takturinn í sókn-
inni hvarf einnig aldrei þessu vant
og munaði nokkuð um að Logi
Geirsson fór meiddur af velli.
Lokamínútur leiksins voru æsi-
spennandi en það datt allt með
Pólverjum síðustu mínúturnar
sem kristallaðist vel í marki Biel-
eckis er hann kom Póllandi í 32-34.
Boltinn hafði viðkomu af varnar-
manni og inn. Þar tapaðist leikur-
inn endanlega. Óþarfa tveggja
mínútna brottvísun fyrir ólöglega
innáskiptingu undir lokin hjálpaði
heldur ekki til.
Þetta var í einu orði sagt grát-
legt. Liðið lék ágætlega lengstum
og var alltaf við það að ganga frá
leiknum. Það vantaði hins vegar
drápseðlið í strákana okkar í dag
og það hlýtur að vera þeim mikið
áfall að tapa þessum leik sem þeir
höfðu í hendi sér nánast frá upp-
hafi. Þeir geta betur, áttu að gera
betur og vita það manna best sjálf-
ir. Vonandi verða þeir með blóð á
tönnunum er þeir mæta Slóvenum
á morgun.
Það voru margir góðir í dag en
það er á engan hallað þegar Róbert
Gunnarsson er tekinn út en hann
átti stórbrotinn leik, skoraði úr
öllum sex skotum sínum og fiskaði
Pólverjana út af hvað eftir annað.
Alexander var einnig frábær og
það er búið að vera hrein unun að
fylgjast með honum á þessu móti.
Þvílíkur leikmaður. Ólafur og Guð-
jón áttu fína spretti og Birkir varði
vel í fyrri hálfleik.
Íslenska landsliðinu fataðist flugið á HM í gær. Strákarnir voru sjálfum sér verstir gegn Pólverjum en arfa-
slök dómgæsla spænskra dómara leiksins hjálpaði heldur ekki til.
Leikur Íslands og Póllands
bauð upp á flest allt sem góður
handboltaleikur hefur upp á að
bjóða. Leikurinn var hraður og
snarpur og það voru spilaðar
góðar varnir. Munurinn á liðun-
um var aldrei mikill og þetta gat
farið hvernig sem er. Því miður
fyrir okkur þá féll sigurinn ekki
okkar megin. Jafntefli hefðu
verið sanngjörnustu úrslitin.
Íslenska liðið byrjaði leikinn
vel og var greinilega ákveðið að
selja sig dýrt. Varnarleikur liðs-
ins var mun betri en gegn Túnis.
Birkir Ívar stóð þéttur fyrir
aftan vörnina, varði meðal ann-
ars tvö vítaskot í byrjun leiks og
samtals 9 bolta í fyrri hálfleik.
Íslenska liðið náði að standa
vörnina nokkuð vel í fyrri hálf-
leik en helst lenti það í vandræð-
um með hröð upphlaup Pólverja
en helmingur marka þeirra kom
með þeim hætti í fyrri hálfleik.
Í seinni hálfleik spiluðum við
6:0 vörn sem var því miður ekki
eins sterk og 5+1 vörnin í fyrri
hálfleik. Það vantaði helst að
miðjan væri að vinna nægilega
góða vinnu.
Seinni hálfleikur hófst með
svipuðum hætti og sá fyrri og
tókst okkur að halda frumkvæð-
inu framan af. Pólverjar voru
aldrei langt undan en okkur tókst
aldrei að ná 3-4 marka forustu.
Það hefði getað munað miklu.
Þegar síga fór á seinni hlutann
komu Pólverjar sterkir inn og
síðustu mínúturnar voru gríðar-
lega spennandi.
Það var mjög svekkjandi að
uppskera ekkert út úr þessum
leik því vissulega áttum við
annað stigið skilið.
Ef það er við einhvern að sak-
ast þá er það við okkur sjálfa því
í raun var það fyrir okkar eigin
klaufaskap að uppskeran var
engin. Frammistaða leikmanna
var mjög misjöfn.
Allir leikmenn lögðu sig fram
en uppskáru ekki alveg í takt við
það. Alex, sem vart sást í fyrri
hálfleik, átti frábæran seinni
hálfleik og skoraði þá sex mörk.
Ólafur sem var frábær í fyrri
hálfleik átti erfitt uppdráttar í
þeim síðari.
Guðjón Valur stóð sig vel en
meiðslin sem hann varð fyrir
háðu honum á lokasprettinum.
Snorra voru nokkuð mislagðar
hendur því þótt að hann hefði
skorað fimm mörk var sóknar-
nýting hans ekki nægilega góð.
Birkir Ívar var nokkuð fínn í
fyrri hálfleik en því miður var
markvarslan slök í seinni hálf-
leik. Roland kom inn á fljótlega í
seinni hálfleik en fann sig ekki
og spurning var um hvort sú
skipting hafi átt rétt á sér. Það er
samt auðvelt að vera vitur eftir
á.
Logi spilaði nokkuð vel, var
skynsamur og nýtti færin sín vel.
Ég hefði viljað fá að sjá Markús
koma inn en ekki Arnór þegar
Logi var hvíldur. Okkur gekk erf-
iðlega að finna línuna í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari kom Róbert
mjög sterkur inn.
Niðurstaðan er því sú að við
spiluðum mjög fínan leik en
vorum klaufar að kasta sigrinum
frá okkur í lokin. Þetta er þó eng-
inn heimsendir og nú er bara að
leggja Slóvena af velli í næsta
leik en til þess höfum við alla
burði.
„Við vorum ekki að
spila nógu vel í dag og það verður
að játast. Við gerðum mikið af
mistökum bæði í vörn og sókn,
fengum mörk á okkur einum
fleiri og skjótum illa og fyrir
okkar eigin klaufaskap töpum við
þessum leik,“ sagði leikstjórnand-
inn Snorri Steinn Guðjónsson
eftir leik.
„Við fengum tækifæri en það
er skandall að hafa ekki slátrað
leiknum þegar við komumst
fjórum mörkum yfir. Þess i stað
slökum við á og þeir ganga á lagið
sem endar með tapi.“
Áttum að slátra
leiknum