Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 10
Stjórnvöldum í Líbanon
var heitið sem svarar yfir 550
milljörðum króna í styrki og lán á
alþjóðlegri fjáröflunarráðstefnu
í París í gær. Yfir fjörutíu þjóðir
og stofnanir hétu aðstoð í formi
lágra lánsvaxta, skuldaívilnana
eða beinna styrkja. Skilyrði er að
aðstoðin fari í áætlun um efna-
hagslegar umbætur sem kynnt
var fyrr í mánuðinum.
Forsætisráðherra Líbanons,
Fuad Saniora, lýsti því yfir á ráð-
stefnunni að landið væri „á barmi
djúprar efnahagskreppu“. Skuld-
ir Líbanons jafngilda 2.750 millj-
örðum króna, um 185 prósentum
af árlegri þjóðarframleiðslu, sem
gerir Líbanon að einu skuldsett-
asta ríki heims. Yfirmaður
Alþjóðabankans, Paul Wolfowitz,
sagði stríðið milli Hizbollah og
Ísraels í fyrrasumar hafa valdið
Líbanon beinu tjóni að andvirði
165 milljarða króna og óbeinu
tjóni upp á 48 til 55 milljarða.
Aðstoðin gefur stjórnvöldum í
Líbanon byr í seglin í valdabar-
áttunni við Hizbollah-samtökin
og bandamenn þeirra. Hizbollah,
sem Íranar og Sýrlendingar
styðja, hóf herferð gegn stjórn-
völdum, sem hafa stuðning
Bandaríkjanna og annarra
Vesturlanda, fyrir tveimur mán-
uðum með það að markmiði að
koma ríkisstjórn Saniora frá.
Á miðvikudaginn brutust út
átök víða í Líbanon á milli
stjórnarsinna og stjórnar-
andstæðinga í kjölfar verkfalls
sem Hizbollah boðaði sem mót-
mælaaðgerð. Að minnsta kosti
þrír létu lífið og fleiri en 170
særðust. Óeirðaástand skapaðist
í gær þegar sló í brýnu á milli
andstæðra fylkinga námsmanna.
Einn lést og að minnsta kosti
sautján særðust.
Átökin á miðvikudaginn þykja
minna á daga borgarastyrjaldar-
innar sem geisaði í Líbanon árin
1975 til 1990, og vera ákveðið var-
úðarmerki um hve fljótt ástand
geti farið úr böndunum verði ekki
fundin lausn á deilum stjórnvalda
og Hizbollah.
Stórfé safnast til upp-
byggingar í Líbanon
Yfir fjörutíu ríki og stofnanir heita Líbanon sem svarar yfir 550 milljarða króna
aðstoð til enduruppbyggingar. Landið er eitt það skuldsettasta í heiminum. Að-
stoðin er byr í segl stjórnvalda í valdabaráttu við Hizbollah-samtök sjíamúslima.
Kynning félagsmálaráðherra á stefnu um
aðlögun innflytjenda er gott dæmi um hvernig ráðu-
neytin eru notuð í kosningabaráttu stjórnarflokk-
anna, sagði Ögmundur Jónasson, þingflokksformað-
ur Vinstri grænna, í umræðum um störf þingsins á
Alþingi í gær. Hann sagði ráðamenn nú gerast gjöfula
vegna komandi kosninga, en þeir reyndu helst að lofa
fram í tímann.
Aðrir þingmenn kölluðu eftir því að stefnumótun-
in yrði rædd í þinginu. Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði Alþingi verða að fá
málið til efnislegrar meðferðar svo þingmenn fengju
tækifæri til að hafa áhrif á gang þess. Annað væri
lítilsvirðing við þingið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra sagði að félagsmálaráðherra hefði lagt fram
mjög góða stefnumótun í þessu máli, en mikilvægt
væri að þingið ræddi málefni útlendinga.
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra tók undir
með Þorgerði Katrínu og sagði tillögu um að hann
sem ráðherra flytti skýrslu um málið á Alþingi góða.
Hann svaraði hins vegar ekki ummælum um að ráðu-
neyti hans væri notað í kosningabaráttu, öðruvísi en
svo að ummælin hefðu verið á lágu plani.
Ákveðið hefur verið að efna til allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðar-
ráðs VR fyrir árið 2007.
Framboðslistum skal skila á skrifstofu félagsins,
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 1. hæð, eigi
síðar en kl. 12:00 föstudaginn 9. febrúar.
Kjörstjórnin
Framboðsfrestur
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Pétur Óskarsson,
talsmaður Sólar í Straumi, segir
deiliskipulagstillöguna engu
breyta í sambandi við afstöðu
Hafnfirðinga til fyrirhugaðra
framkvæmda í Straumi. Hug-
myndir um mengunarvarnir og
minni útblástur brennisteins eigi
ekki heima í deiliskipulagstillögu.
„Ef álverið ætlar að minnka
útblásturinn þarf það að fara fram
á endurnýjað starfsleyfi hjá
Umhverfisstofnun. Svo er bara
verið að taka á brennisteinsmeng-
un, ekki annarri mengun. Þarna er
bara eitt lítið brot í málinu lagað
til og markaðssett sem stórkost-
legur sigur umhverfisins í
Hafnarfirði,“ segir hann.
Jón Ólafsson, fulltrúi Vinstri
grænna í starfshópi Alcan og
bygginga- og skipulagsnefndar
Hafnarfjarðar, segir það rangt að
þverpólitískt samkomulag sé um
deiliskipulag vegna mögulegrar
stækkunar álversins.
Markmið starfshópsins hafi
verið að þrengja kosti mengunar
og hópurinn hafi bara unnið til-
lögu að deiliskipulagi ef svo illa
færi að tillagan yrði samþykkt.
Villandi sé að segja að mengun
verði svipuð og í dag. Magn brenni-
steinstvíoxíðs sem fari út í and-
rúmsloftið aukist um þrjátíu pró-
sent eftir stækkunina.
Ekki þverpólitískt
samkomulag Málsmeðferðar-reglur vegna fyrirhugaðra
íbúakosninga 31. mars voru til
umræðu í bæjarráði Hafnar-
fjarðar í gær og var þeim vísað
til bæjarstjórnar. Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi
Vinstri grænna, lagði til að þær
yrðu ræddar í
tveimur umferð-
um í bæjarstjórn
og var það
samþykkt.
Í tillögunni sem
liggur fyrir er gert
ráð fyrir að
mögulegt verði að
framkvæma
íbúakosningar
með tvennum hætti, þegar
bæjarstjórn ákveði eða þegar
fjórðungur kosningabærra íbúa
krefjist þess. Bæjarstjórn geti
ákveðið að kosningarnar verði
bindandi áður en þær fari fram.
Engin mörk séu á þátttöku og
einfaldur meirihluti dugi.
Tillögu vísað í
bæjarstjórn