Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 86
Rafn Hafnfjörð sýnir nokkrar ljós-
mynda sinna í matsölunni og kaffi-
húsinu Cafe Milanó í Skeifunni í
Reykjavík um þessar mundir. Sýn-
inguna kallar hann Flæðarmálið en
myndefnið er allt sótt í ögurstund
flóðs og fjöru.
Rafn er einn ármanna íslenskr-
ar ljósmyndunar, kominn hátt á átt-
ræðisaldurinn, nýbúinn að selja
Litbrá sem hann rak um áratuga-
skeið, en enn við að festa form í
filmu og í minnið. Ferill hans er um
margt einstakur: Rafn er menntað-
ur í ljósprentun eins og hún var
kölluð í upphafi en var svo nefnd
offsetprentun. Hann er einn af
mörgum í því fagi sem höfðu inni-
legan áhuga á listum og iðn hans
veitti honum innsýn í tæknilega
framvindu myndarinnar og eftir-
gerðar hennar af filmu. Rafn byrj-
aði barnungur að taka ljósmyndir í
Hafnarfirði þar sem hann ólst upp
hjá frændfólki sínu. Áhugi hans á
ljósmyndum var sprottinn af þörf á
tjáningu í mynd. Hann varð síðan
ungur maður félagi í Litla ljós-
myndaklúbbnum. Hann fékk verð-
laun á ljósmyndasýningu Ferðafé-
lagsins 1952 og tók þátt í samsýningu
áhugaljósmyndara tveimur árum
síðar og hinni frægu sýningu þeirra
1961. Á þessum tíma nutu áhuga-
ljósmyndarar leiðbeiningar manna
eins og Kaldals og afstrakt-málar-
anna, voru í alþjóðlegu samstarfi
og sendu myndir sínar víða, fylgd-
ust með verkum manna á borð við
Capa, Amsel og Cunningham í
gegnum amerísk tímarit um list-
ræna ljósmyndun. Rafn hafði áhuga
á listrænni ljósmyndun en í gegn-
um vinnu sína komst hann í kynni
við Dieter Roth, en Litbrá prentaði
fyrir Dieter bækur hans á tímabili.
Það leiddi hann inn á enn frekari
tilraunir með vinnslu myndefnis úr
náttúrunni og til þátttöku hans í
sýningarhaldi í Kúlunni, mynda
fyrir verslunina Icelandic Arts and
Crafts í New York og loks mynda í
Íslandsdeildinni á Heimssýning-
unni í New York 1967.
Rafn hefur haldið fjölda sýninga
á ljósmyndum sínum. Hann heldur
sig enn við að mynda mótíf úr nátt-
úru en margir hafa þrætt slóð hans
á þá leið. Rafn hefur haldið úti vef
með myndum af Íslandi til sölu.
Fáar myndir þar inni eru í ætt við
listrænar myndir hans, þær eru af
öðrum toga. Ferill hans er orðinn
æði fjölbreyttur og myndasafn hans
stórt og merkilegt, bæði sem sögu-
leg heimild og listrænt framlag til
myndlistar á Íslandi. Erfitt verður
að taka saman ítarlega yfirlitssýn-
ingu um ljósmyndir hans en vert.
Sýningin í Cafe Mílanó stendur til
10. febrúar. Greinargott viðtal er
við Rafn í útgáfuröð Þjóðminja-
safns Íslands: Ljósmyndun á Íslandi
1950-1970 sem Guðrún Harðardótt-
ir tók saman. Þar rekur hann sinn
einstaka feril á mótunarárunum.
Flæðarmál í fáum myndum
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR
Unaðslegar
stundir
Rauða Húsið · Sími: 483-3330
Búðarstíg 4 · 820 Eyrarbakkka
www.raudahusid.is
með spennandi fjögurra
rétta kvöldverði á aðeins
3.900.- allar helgar
í janúar, febrúar og mars
Sýningarnar eru opnar virka daga frá kl. 11 -17 og um helgar frá kl. 13 - 16
Gerðuberg • sími 575 7700
Hugarheimar - Guðrún Bergsdóttir
sýnir útsaum og tússteikningar
Sýningin er framlengd til 4. febrúar
vegna mikillar aðsóknar!
Um næstu helgi...
Rúrí: Tími - Afstæði - Gildi
Sjónþing og sýning frá glæstum ferli
Laugardaginn 3. febrúar kl. 13:30 - 16:00
Vissir þú...
...að í Gerðubergi er góð aðstaða fyrir
ráðstefnur, námskeið, fundi og móttökur
Sjá nánari upplýsingar á www.gerduberg.is
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Snemma sumars verða fimm ár
liðin frá því sambýlingar í Borgar-
leikhúsi, Leikfélag Reykjavíkur og
Íslenski dansflokkurinn, stofnuðu
til dansleikhúskeppni. Hefur hún
jafnan átt sér stað í júní þar sem
hefur komið saman margt nýtilegra
hugmynda sem valdir höfundar
hafa þróað með leikurum og döns-
urum. Nú er undirbúningur hafinn
að fimmtu keppninni og vilja sam-
starfsaðilar koma fastara formi á
fyrirbærið, þar á meðal að gefa því
nafn.
Dansleikhús er nýtt og vaxandi
listform en tilgangur keppni af
þessu tagi er að styðja þetta form,
kanna möguleika þess og veita
listamönnum tækifæri til að kynn-
ast greininni betur. Mikill áhugi er
á dansleikhúsi meðal listamanna
þvert á listgreinarnar en umsækj-
endur hafa verið úr myndlist, tón-
list, dansi og leiklist. Þetta er í
fyrsta sinn í nær fjóra áratugi sem
Leikfélag Reykjavíkur stofnar
formlega undirdeild, en félagið
hefur átt gott samstarf við Dans-
flokkinn sem hófst með flutningi
hans í húsið í tíð Þórhildar Þorleifs-
dóttur. Dansleikhúsið er eðlilegt
framhald af samkeppninni, en
framúrskarandi þátttakendum
keppninnar gefst nú kostur á að
vinna áfram að sínum hugmyndum
með hópi listafólks úr röðum Leik-
félagsins og Dansflokksins. Dans-
leikhúsið hóf göngu sína í desem-
ber og völdust tveir höfundar til að
leiða fyrsta verkefni dansleikhúss-
ins, Marta Nordal leikkona og Peter
Anderson, dansari og danshöfund-
ur. Marta er sigurvegari dansleik-
hús/samkeppninnar 2006 en Peter
hefur átt verk í keppninni frá upp-
hafi og hefur unnið til verðlauna,
þá hefur hann samið verk fyrir
Íslenska dansflokkinn, Reykjavík
dansfestival o.fl. Fjórir dansarar
og leikarar taka þátt í verkefninu
sem verður frumsýnt 7. júní sama
kvöld og danleikhús/samkeppnin
2007 fer fram, en almennar sýning-
ar á verkinu verða í haust.
Leikfélagið og Íslenski dans-
flokkurinn efna til samkeppni um
nafn á þetta nýstofnaða dansleik-
hús en þeir sem hafa áhuga á að
senda inn tillögur geta nálgast allar
upplýsingar á heimasíðu Borgar-
leikhússins, www.borgarleikhus.is.
Nefnum dansleikhús