Fréttablaðið - 26.01.2007, Blaðsíða 48
Vetrarhlaup
4
Áhugi Guðmundar á ísklifri vakn-
aði þegar hann komst inn í leiðang-
ur á Mont Blanc í júní árið 2005.
„Ég fór með hópnum í æfingaferðir
áður en haldið var út og þá kynnt-
ist ég ísklifrinu,“ segir Guðmundur
sem fer nú helst alla laugardaga
og sunnudaga í ísklifur. „Þetta er
mitt helsta áhugamál og ég stunda
það eins oft og ég get þegar ég er
í fríi.“
Aðspurður hvað sé svona
skemmtilegt við ísklifur segir Guð-
mundur: „Þetta byggist á strategíu
og tækni enda er maður að leysa erf-
iðar þrautir í hvert sinn sem maður
klífur nýja leið. Það eru engar tvær
leiðir eins og alltaf gaman að fara
erfiðar leiðir.“
Guðmundur segir ísklifur mjög
erfitt og enn fari hann ekki hvaða
leið sem er. „Það tekur tíma að
komast inn í þetta. Það þarf að læra
tæknina auk þess að ná nægum
styrk í hendur og fætur til að geta
hangið utan í vegg,“ segir hann og
viðurkennir að auðvitað geti ísklif-
ur verið hættulegt. „Maður er samt
alltaf bundinn við línu og ef menn
fylgja þeim öryggisreglum sem eru
í þessu þá ættu þeir að vera nokk-
uð öruggir. Það gengur heldur ekki
að fara einn í ísklifur heldur verður
að hafa félaga. Það kemur alltaf sá
tímapunktur að félaginn heldur í
líflínuna hjá manni.“
Spurður hvort hann hafi ein-
hvern tíma lent í óhappi við ísklifur
segir Guðmundur: „Já, já. Ég hef
alveg fengið að detta. Síðasta laug-
ardag datt grýlukerti á löppina á
mér og ég er aðeins haltur eftir það
en annars er ég alveg heill ennþá.
Það þýðir ekkert að hætta þó maður
meiði sig eitthvað. Stundum fær
maður smá klakastykki í andlitið
en það er bara gaman að því. Bara
skella á það plástri og halda áfram,“
segir hann og hlær. „Um daginn
hrapaði ég hátt í tíu metra en þá
greip línan mig þannig að ég fann
ekkert fyrir því. Þetta er alveg ofsa-
lega skemmtilegt sport en er auðvit-
að ekki fyrir hvern sem er.“
sigridurh@frettabladid.is
Ísklifur allar helgar
Guðmundur Freyr Jónsson hefur stundað ísklifur af miklu kappi í um tvö ár og líkir
því við að leysa erfiðar þrautir.
Mikilvægt er að klæða sig rétt
þegar hlaupið er úti að vetri
til. Mestu máli skiptir að vera í
mörgum flíkum, hverri utan yfir
aðra, því það hjálpar til við að
halda á manni hita. Gerviefni
eins og polypropylene, Drylete,
eða Thermax, henta vel í þær
flíkur sem eru næstar líkamanum.
Ekki er ráðlagt að nota bómull
næst líkamanum því hún hleypir
ekki raka í gegnum sig. Utan yfir
flíkurnar sem eru innst er gott að
vera í þunnum rúllukragabol sem
er úr gerviefnum, eða úr blöndu
af gerviefnum og bómull.
Best er að yfirhöfnin sé léttur
vatnsheldur vindjakki úr efni
sem andar. Á virkilega köldum
dögum kemur Gore-Tex jakki að
góðum notum sem vernd í mikl-
um kulda.
{ vetrarlíf }